Vísbending


Vísbending - 23.12.2005, Page 45

Vísbending - 23.12.2005, Page 45
Gengisþróun hlutabréfa (ISK) m Velta 100.000.000 90.000.000 80.000.000 70.000.000 60.000.000 - 50.000.000 - 40.000.000 - 30.000.000 - 20.000.000 - 10.000.000 -Gengi ágú.01 mar.02 sep.02 apr.03 nóv.03 tilkynningar var ákveðið að kaupa hlutinn í tveimur skrefum. Fyrst voru 10,3% keypt 28. maí 2004 og svo var hluturinn aukinn í 20,3% 18. júní. Á innan við þremur vikum var Bakkavör orðin langstærsti hluthafinn í Geest. Stjórnendur Bakkavarar máttu ekki tjá sig mikið um þessi hlutabréfakaup vegna þeirra reglna sem gilda um upplýsingarskyldu í bresku kauphöllinni. Það stöðvaði hins vegar ekki fjölmiðla og fjármálamenn sem veltu vöngum yfir þróuninni. Það eina sem fjölmiðlar fengu út úr Ágústi var að þetta væri „langtímafjárfesting“. Margir fjölmiðlamenn áttu einnig erfitt með að sjá hvernig fyrirtæki með 2.500 starfsmenn og 138 milljóna punda veltu gæti yfirtekið fyrirtæki með fleiri en 10.000 starfsmenn og veltu upp á 902 milljónir punda. „Þegar maður segir ekki neitt við fjölmiðla fara þeir að spekúlera og niðurstaða þeirra var, réttilega í sjálfu sér, að við hefðum ekkert bolmagn til þess að kaupa þetta félag og það væri ekki í deiglunni. Það hentaði okkur ágætlega." Þegar Bakkavör jók stöðu sína í 20% hlut í Geest þurfti að tilkynna til kauphallarinnar að ekki væri ætlunin að yfirtaka fyrirtækið á næstu sex mánuðum. Daginn eftir að þessir sex mánuðir voru liðnir, þann 9. desember 2004, tilkynnti Bakkavör hins vegar að ætlunin væri að gera kauptilboð í öll hlutabréf Geest. Þegar Bakkavör keypti hlut sinn í Geest í maí og júní var stjórnendum fyrirtækisins ljóst að eitthvað væri í aðsigi. Þeir létu hins vegar lítið eftir sér hafa. Viðskiptavinir Geest og Bakkavarar höfðu hins vegar áhuga á því sem var að gerast og kölluðu bræðurna á fund til sín. „Fyrir þeim var þetta mjög mikilvægt því að Geest var stærsti birgir margra af stærstu verslunarkeðjum Bretlands. Ferskvörubransinn er langarðbærasti hluti viðskiptanna sem stórmarkaðir eru í.“ Það var hins vegar almenn ánægja innan geirans með að við værum að kaupa Geest. „Stærstu viðskiptavinirnir, eins og Tesco og fleiri, voru mjög ánægðir með að við kæmunt að þessu máli sent kaupandi vegna þess að fyrir þeim er það miklu betri kostur en að fá fjárfestingarsjóði sem fjárfesta ekkert í rekstrinum og taka alla pcningana út úr honum.“ Það sama átti við um stjórn félagsins. „Þegar við vorum búnir að kaupa 20% hlut þá áttum við samskipti við stjórnendur fyrirtækisins. Við sögðum við þá að við hefðum áhuga á að kaupa félagið. Það sem var mikilvægt í því var að við vorum í raun gott félag fyrir Geest, fyrir stjórnendurna, að vera keypt af.“ Ástæðan fyrir því er sú að í fyrri uppkaupum hafði Bakkavör haldið sömu stjórnendum fyrirtækjanna áfram og ekki farið út í stórfelldar uppsagnir á starfsmönnum. 1 breskum fjölmiðlum mátti sjá að þau skilboð komust til skila. Þetta var mikilvægt. „Það var mjög auðvelt að selja stjórnendunum þessa hugmynd, þetta var bara spurning um að borga rétta verðið. Það var mikilvægt fyrir stjórnina, fyrir hluthafana, að þeir gætu sætt sig við verðið, sem við buðum. Ég held að allir hafi gengið ánægðir frá því borði. Við sameinuðum þessi fyrirtæki til að búa til meiri verðmæti fyrir alla og gera eitthvað meira úr fyrirtækinu en áður en ekki til að skera niður og loka verksmiðjum og svoleiðis.“ Þetta var lykilatriði í að yfirtakan væri í raun vinveitt en ekki óvinveitt. „Eigið þið pening?“ Það gefur augaleið þegar tiltölulega lítið fyrirtæki ætlar að yfirtaka miklu stærra fyrirtæki að einhverjir efast um bolmagn dvergsins til að leggja undir sig risann. Ráðgjafar Geest voru Citigroup og það var hlutverk þess fyrirtækis að spyrja erfiðu spurninganna. „Það sem þeir vildu bara fá að vita var: „Eigið þið peninga?" Það þýðir ekkert að fara út í svona ferli fyrir eitthvert smákompaní frá íslandi. „Show rne the money,“ sögðu bankamennirnir. Við bara gerðutn það. Við vorum komnir með nauðsynleg gögn frá fjármögnunaraðilum okkar áður en við fórum á þennan fund. Þá vorum við komnir með Barclay’s og Kaupþing og í raun búnir að vinna alla vinnuna. Síðasta dærnið var að tala við fyrirtækið og segja: „Við ætlum að kaupa ykkur“.“ Þegar Bakkavör ákvað síðla árs 2003 og í byrjun árs 2004 að fara af alvöru að skoða hvort og hvernig hægt væri að yfirtaka Geest var Kaupþing fengið til að hafa yfirumsjón með verkefninu. Aðrir ráðgjafar komu einnig inn í ferlið á fyrstu stigum, lögfræðingar og endurskoðendur til að skoða tæknileg atriði við yfirtökuna og mögulegar fjármögnunarleiðir. Verðbréfafyrirtækið Teather & Greenwood, sem Landsbankinn keypti nýlega, sá um að „hlusta“ markaðinn og kaupa bréfin á sent hagkvæmastan hátt. Mikilvægasti þátturinn í ferlinu var þó að fá banka til þess að fjármagna kaupin að stórum hluta, það var einn stærsti þröskuldurinn á ferlinu. Síðar í ferlinu voru svo - 45-

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.