Vísbending


Vísbending - 23.12.2005, Qupperneq 46

Vísbending - 23.12.2005, Qupperneq 46
VISBENDING Yfirlit yfir fjármögnun £m Kaupverö 497,3 Kostnaður 22,7 Endurfjármögnun skulda 124,1 Rekstrarfjármögnun 50,0 Skuldir samtals 694,1 Fjármögnun frá Barclays 500,0 Brúarlán frá KB banka 75,0 Eigin bréf 119,1 Fjármögnun samtals 694,1 sérfræðingar fengnir til þess að framkvæma áreiðanleikakannanir á ýmsum hliðum fyrirtækisins. Hlutur ráðgjafa er mikilvægur í þessu ferli og það koma margir að þessu ef vel á að vera. „Þetta er heilmikill pakki, reyndar margra milljarða pakki. Þetta er dýrt dæmi.“ Kostnaður vegna yfirtökunnar var upp á 22,7 milljónir punda (2,6 milljarða króna). Enginn vafi er á því að það er áhættusamt að taka yfir fyrirtæki með skuldsettum kaupum þegar lánahlutfall samningsins fer yfir 80% af fjármögnuninni. Ef menn hafa getuna, kjarkinn og framtíðarsýnina til þess að skapa meira verðmæti en fyrri eigendur og skýra áætlun til þess að leysa reikningsdæmið getur þetta verið ágóðasamt verkefni, eins og kaupin á KFF hafa sýnt. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB-banka, kont mcð athygliverða sýn á slíkar yfirtökur í viðtali við Vísbendingu, hann sagði: „Okkar reynsla er sú að þegar við höfum tekið yfir góð fyrirtæki þá hafa þau yfirleitt verið betri en við héldum. Þegar við erum að taka yfir slæm fyrirtæki þá hafa þau verið verri. Það hefur verið okkar reynsla. Þegar fyrirtæki eru að skila hagnaði þá er oft sem hlutirnir eru í miklu betra standi en í fyrstu virðist.“ Ekki er ósennilegt að þetta hafi verið ráð sem KB-banki gaf bræðrunum í Bakkavör. KB-banki var aðalráðgjafinn og fékk að borga fyrir veisluna þegar samningurinn var í höfn. Eins og Agúst sagði: „Við vorum með lokapartí á sveitarhóteli fyrir utan London þar sem við buðum ráðgjöfum og Geest-stjórnendum til mikillar veislu. Þegar við semjum við Kaupþing þá endar það alltaf með því að þeir borga partíið." Eftir öll þau fjárútlát sem fyigir því að gera risayfirtöku af þessu tagi er ekki ólíklegt að bræðurnir í Bakkavör hafi verið fegnir því að geta skálað á reikning einhvers annars. Bræðrunum létti talsvert þegar Barclay’s samþykkti að lána um 500 milljónir punda (58,3 milljarða króna), eða 72% af 694 milljóna punda fjármögnunarþörf. Bakkavör bauð 655 pcnní á hlut, eða 7,7 sinnum EBITDA ársins 2004, auk arðgreiðslu sem nam 7 penníum á hlut. Verðið sem greitt var fyrir hlutabréfin í Geest var því497,3 milljónir punda en að meðtöldum skuldum var heildarkaupverðið 579,6 milljónir punda (67,2 milljarðar króna). Brúarlán frá KB-banka og eigin bréf voru notuð til að fjármagna það sem á vantaði (sjá töflu). Þetta voru skuldsett kaup. Eins og Sigurjón Þ. Árnason benti á í viðtali við Vfsbcndingu eru skuldsett kaup þekkt form fjármögnunar í Bretlandi en þau snúast annaðhvort um að sé hægt að fá lán út á eignir sem hægt er að selja út úr fyrirtækinu eða sterkt sjóðstreymi (sjá viðtalið „Bankamennirnir" hér í blaðinu). Ágúst sagði: „Við vissum vel hvað við ætluðum að gera við fyrirtækið ef við myndum kaupa það, hvaða tækifæri lægju í því. Eitt stærsta tækifærið sem við sáum í félaginu var að nýta eignirnar betur en gert var. Við höfðum séð þarna nokkrar verksmiðjur sem voru vannýttar og það hafði verið offjárfest í þeim. Þannig voru allar verksmiðjurnar mjög fullkomnar og nóg pláss í þeim. Við sáum fyrir okkur að 45 milljóna punda fjárfestingu í vélum og tækjum væri liægt að minnka um helming á næstum árum og nota mismuninn lil að greiða niður skuldir. Það var búið að ákveða að byggja nýja verksmiðju en við hættum við það og nýtum í staðinn betur það sem við höfum. Margt í þessu hjálpaði okkur í útreikningum okkar.“ Það voru slíkar hugmyndir um breyttar áherslur á fjármálahlið fyrirtækisins sem fengu virtan banka eins og Barclay’s til að taka þátt í verkefninu. Vaxtakjör lánanna hjá Barclay’s eru 150 punktar ofan á LIBOR, „sem teljast verður mjög gott“, eins og sagði í untfjöllun greiningardeildarLandsbankans. Á hinn bóginn sýnir það hversu mikið peningaflæði er í umferð í heiminum en það hefur gert það að verkum að bankar og fjármögnunaraðilar fá tiltölulega litla ávöxtun fyrir þá áhættu sem þeir taka. Þetta eru viðskipti! Samkeppnisyfirvöld í Bretlandi samþykktu yfirtöku Bakkavarar á Geest í lok apríl og Bakkavör fékk „lyklavöldin" þann 13. ntaí 2005. í kjölfarið var fyrirtækið afskráð úr kauphöllinni í London. „Díllinn" var í höfn en vinnan kannski rétt að hefjast fyrir bræðurna í Bakkavör sem þurfa að reyna að móta fyrirtækið eftir þeirri framtíðarsýn sem þeir hafa. Það eru ekki alltaf auðveldar eða vinsælar ákvarðanir sem þarf að taka í því ferli en nýlega tilkynnti fyrirtækið að hundrað manns á skrifstofu fyrirtækisins í Bretlandi yrði sagt upp. Samþætting og ný markmið leiða alltaf til þess að einhver fórnarlömb verða í því ferli. Það er eðli viðskiptanna. En bræðurnir í Bakkavör eru ekki eins og hákarlarnir á níunda áratuginum. „Við nálgumst þetta sem iðnrekendur en ekki sem spákaupmenn þannig að fyrir okkur var þetta bara gott tækifæri. Þetta tækifæri var fólgið í því að kaupa félagið og ná meira en áður út úr þessum rekstri fyrir framtíðina frekar en við gerðum okkur vonir um að geta selt bréfin með einhverjum hagnaði. Við höfðum engar áhyggjur af því.“ Markmiðið er að byggja upp reksturinn og viðskiptaveldi Bakkavarar enn frekar. Á meðan það gengur upp eru bræðurnir í uppáhaldi bæði hjá fjárfestum og öðrum hagsmunaaðilum. „Við höfðumalltaf verið meðharðfylgna vaxtarstefnu gagnvart markaðinum," segir Ágúst og það er ekkert sem bendir til þess að Geest sé endastöðin á því vaxtarferli. Það er sennilegt að þeir sem stofnuðu þau fyrirtæki sem nú tilheyra Bakkavör horfi forviða á það sem Itefur gerst á þessu ári, rétt eins og stofnendur RJR og Nabisco á sínum tíma. Þeir hafa sennilega spurt sig um hvernig hægt sé að fjármagna yfirtöku með þessum hætti og hvort það sé fýsilegt fyrir framtíð fyrirtækjanna að eiginfjárhlutfal 1 hinnar nýju samstæðu sé einungis um 13%. Þeir myndu hins vegar sjá að þessi kaup snerust um verksmiðjurnar og reksturinn, að byggja hann upp en ekki að brjóta hann niður. Þeir myndu skilja að þessi „gauragangur" snerist um viðskipti. -46-

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.