Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1939, Side 15

Frjáls verslun - 01.04.1939, Side 15
Pétur Olafsson: H eimspo Slitík og vi iðskipti 'T' veir Englendingar voru að tala saman. Seg- A ir annar: Ég geri ekki ráð fyrir að fara að heiman í sumar, vegna þess hve horfur eru ískyggilegar. Hinn svarar: Ég er að vona að ég geti farið í sumarleyfi milli hinnar minni ófrið- arhættu í vor og meiri haust-hættunnar. Þannig var í fyrra hægt að tala um „minni“ vor-hættu og „meiri“ haust-hættu. Þegar Hitler tók Aust- urríki í fyrravor óttuðust fæstir að styrjöld myndi af hljótast. í fyrrahaust, í september, mátti aftur á móti ekki muna hársbreidd, að deilan um Tékkóslóvakíu leiddi til ófriðar. Nú er aftur komið vor og ,,vor-hættan“ hafin. En að bessu sinni væri rangt að tala um „minni“ vor-hættu. Hættan á friðslitum er nú margfalt meiri en hún hefir nokkru sinni verið síðustu tvo áratugi, hún er meiri en í september síðast- liðnum, vegna þess að engin von er til að fundin verði „patent“ lausn, eins og í Miinchen. Al- menningsálitið í Vestur-Evrópuríkjunum mun rísa upp gegn hverri þeirri ríkisstjórn, sem slakar til gagnvart „öxuls“-ríkjunum, Þýzka- landi og Ítalíu, meir en orðið er. "Ar * ★ Mr. Chamberlain hefir lagt regnhlífina á hilluna, og tekið sér sverð í hönd í staðinn. Or- sök .þessa breytta viðhorfs er endalok Tékkósló- vakíu og hernám Albaníu. En báðir þessir at- burðir eru þættir í viðleitni Þjóðverja, til þess að gerast einráðir á meginlandi Ev- rópu, og ítala, til þess að brjótast út úr Miðjarðarhafs„fangelsinu“, — slagorð, sem Mussolini bjó til nýlega. Það sem Mussolini á við með bessu slagorði er að fá í hendur Itala vörzlu hliðanna að Miðjarðarhafi, Gibraltar í vestur og Suezskurðarins í austur, en bæði þessi hlið eru í höndum Breta og Frakka. Hernám Al- baníu á sér engar viðskiptalegar orsakir. ítalir fá þar að vísu nokkra náma, olíunáma o. fl. En annars er landið fjalllendi, bar sem lítil skilvrði eru til að setjast að fyrir ítalskar fjölskvldur, sem ekki geta fleytt fram lífinu heima í Italíu, vegna brengsla. — Fyrsta beina afleiðingin af því að f-t-aPV hafa nú ná?s fótfestu á Balkanskaga, er að Balkanríkin, — og þá fyrst og FRJÁLS VERZLUN fremst Grikkland og Júgóslavía — verða tregari til þess en áður að ganga í ber- högg við þá og félaga þeirra við hinn enda Berlín-Róm-öxulsins, með því að gerast aðilar að varnarbandalagi því, sem Bretar hafa verið að reyna að koma á fót, síðan Hitler tók Tjekkó- slóvakíu. Mussolini hefir þannig spilað upp í hendurnar á Hitler, vafalaust að sameiginlegu ráði beggja, enda höfðu Þjóðverjar lýst yfir því, að þeir myndu ekki sitja hjá aðgerðar- lausir, þar til Bretar hefðu lokið við að leggja einangrunarhlekkina um háls þeirra. Fyrirætlanir Þjóðverja í Austur-Evrópu og Suð-austur-Evrópu eru engu síður hernaðarlegs eðlis, en fyrirætlanir Itala í Miðjarðarhafi. En þær eiga þó fyrst og fremst rót sína að rekja til viðskiptalegra (nánar tiltekið: hráefnalegra) þarfa, sem Þjóðverjum er nauðsynlegt að geta fullnægt, til þess að gera öryggi sitt meira, ef til styrjaldar skyldi draga. Vér vöktum á því athygli síðast í þessum dálki, að Akkilles-hæll- inn á viðskiptakerfi Þjóðverja væri hin mikla nauðsyn þeirra, að geta flutt inn ýms matvæli og mikilvæg hráefni til iðnaðar. Mikið af þeim vörum, sem þeir þurfa að flytja inn, geta þeir fengið eininitt hjá smáþjóðunum í Suðaustur- Evrópu. Og með því að gerðar yrðu ráðstafanir til þess að efla þann iðnað, sem þjóðir þessar nú þegar reka og vakinn yrði nýr iðnaður af auðlindum , sem þær hafa ekki haft sjálfar f jár- hagslegt bolmagn til þess að hagnýta sér, væri hægt að sjá jafnvel betur fyrir þessum þörfum en ella. Markmið Þjóðverja hefir þess vegna verið, að einoka sem mest viðskiptin við þessar þjóðir. Þeir hafa sætt nokkurri gagn- rýni, einkum af hálfu Breta, fyrir aðferðir þær, sem þeir hafa notað. Þeir hafa gert „clearing“- samninga við þessar þjóðir og með því að auka kaup sín hjá þeim stórlega, hafa þeir neytt þær fyrir sitt leyti til að auka kaup sín í Þýzkalandi, til þess eins að jafna „clearinginn", án tillits til þess, hvort þær hefðu þörf fyrir hinar þýzku vörur. Þannig hafa Júgóslafar keypt aspirín í Þýzkalandi, sem nægir þeim til tíu ára! Þjóð- Framh. á bls. 31. 16

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.