Frjáls verslun - 01.06.1947, Síða 9
BIRGIR KJARAN, hagírœðingur:
Um kaupgjaldsmál
Grein þessi er skrifuð áður en samið 'var um
hækkun timakaups í Reykjavík í þessum mánuði
og mun sú hækkun auðvitað auka enn á misræmið
milli framleiðslukostnaðarins og söluverðs afurðanna
og hækka vísitölur timakaupsins og kaupmáttarins,
sem sýndar eru á linuritum, sem fylgja greininni.
KAUPGJALDIÐ OG ÞJÓÐIN.
Kaupgjald verkamanna er mál, sem skiptir
alla þegna þjóðfélagsins. Fyrst og fremst varðar
það þá, sem kaupið fá, launþegana, sem eru
meirihluti hinna framfærandi þegna, í öðru lagi
framleiðendur, sökum þess að kaupið er oft
stærsti hluti framleiðslukostnaðarins og arðbæri
(rentabilitet) atvinnurekstursins undir því kom-
ið. Að lokum er þetta hagsmunamál allrar þjóð-
arinnar, vegna þess að kostnaðarverð og þá um
leið söluverð og sölumöguleikar útflutningsafurð-
anna eru að verulegu leyti háðir kaupgjaldinu.
I>ar sem flestir eiga beint eða óbeint afkomu
sína undir kaupgjaldinu, eru umræður um það
venjulega mjög viðkvæmt mál, einkum af því
að inn í þær blandast ósjaldan efni, sem eru af
öðrum toga spunnin, svo sem pólitík, tilfinningar
fordómar ofl. Hér verður leitazt við að sneiða hjá
því að flækja málið að óþörfu með íjarskyldu
efni. iJað er heldur ekki tilætlunin að kveða upp
neinn algildan dóm um það, hver eigi almennt
að vera hlutdeild verkamanna í þjóðartekjunum.
Hinsvegar gefur ástand og útlit í kaupgjaldsmál-
unum hér á landi nú nægt tilefni til nokkurra
almennra athugana á sviði kaupgjaldsmálanna,
einkum þó varðandi samband þróunar kaup-
gjaldsins og framfærslukostnaðarins og áhrif
þeirrar þróunar á lífskjör verkamanna, frarn-
leiðslukostnaðinn og sölumöguleika útflutnings-
afurðanna, og mun grein þessi einskorðuð við
það efni.
ÞRÓUN TÍMAKAUPSINS.
Á línuriti, sem fylgir hér á eftir, er þróun
FRJÁLS VERZLUN
tímakaups í Reykjavík sýnd yfir all langt
árabil (1914 - 1947). Árið 1914 var verkakaupið
í Reykjavík kr. 0,35 á klukkustund. Frá þeim
tíma hækkaði það nokkuð stöðugt fram til ársins
1924, að það komst upp í kr. 1,40 og hélzt lítið
breytt, þar til það rétt fyrir stríð (1938 - 1939)
var komið upp í kr. 1,45 á klst. Á ófriðarárunum
hefur liækkun kaupsins verið svo mikil og ör,
að slíks eru ekki dæmi hér á landi, og mér er
nær að halda, að erfitt sé að finna hliðstæðu
annarsstaðar frá, og er nú (marz 1947) komið
upp í kr. 8,37 á tímann. Sé reiknuð vísitala
kaupsins til þess að sýna greinilegri mynd þró-
unarinnar, og kaupið 1914 notað sem grunn-
eining vísitölunnar, kr. 0,35 = 100, þá er vísi-
tala kaupsins nú orðin 2391.
7
/
i
/
/
/
/
i
1
|
/ -
jT
f / /
/ j
-LL
1914 2 2
24oo
2ÍOO
22oo
21oo
2ooo
19oo
löoo
17oo
16oo
15oo
l4oo
ljoo
l2oo
lloo
looo
9oo
8oo
7oo
6oo
6oo
400
)00
2oo
loo
Svarti flöturinn neðst á myndinni táknar vísitölu kaupmáttar
tímakaupsins, strikalínan vísitölu frainfærslukostnaðarins og
svarta línan vísitölu tímakaupsins.
105