Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1947, Side 11

Frjáls verslun - 01.06.1947, Side 11
ýms önnur hlunnindi o£t engu minni þýðingu fyrir lífskjör þeirra. Einmitt á því sviði hafa þeir á umræddum árum fengið talsverðar kjara- bætur, að nokkru leyti með beinum samningum við atvinnurekendur, en sumpart fyrir tilstilli löggjafans, má þar m. a. nefna lög um orlof, verkamannabústaði, vinnuvernd, almannatrygg- ingar og nýju fræðslulögin. Allt mun þetta beint eða óbeint koma frarn sem kjarabætur fyrir verkamenn, en á hinn bóginn sem auk- inn kostnaður (bein útgjöld eða hækkaðir skatt- ar) fyrir framleiðendur og aðra atvinnurek- endur. KAUPGIALDIÐ OG VERÐ ÚTFLUTNINGS- AFURÐANNA. Tilgangur búskaparstarfseminnar er að full- nægja þörfum þegnanna, og stefnan á að vera sú, að lífskjör þeirra fari batnandi og þeir geti aukið neyzlu sína. Hin stórstíga hækkun kaup- gjalds hér á landi og umbætur á lífskjörum verkamanna á síðustu árum eru því gleðilegt fyrirbæri, e£ þær byggjast á varanlegum og hald- góðum grundvelli, en séu Jþær liinsvegar augna- bliks fyrirbæri og ekki í samræmi við getu at- vinnuveganna, eru þær skammgóður vermis og leiða til stöðvunar framleiðslunnar og verða varkamönnum, þegar til lengdar lætur, til ófarn- aðar. íslendingar selja verulegan hluta framleiðslu sinnar til útlanda og kaupa erlendar vörur, sem þeim er nauðsynlegt að flytja inn, fyrir and- virði útflutningsins. Þjóðinni er jjví lífsnauð- syn, að jreir atvinnuvegir, sem framleiða vörur til útflutnings, beri sig, J). e. a. s. útflutnings- vörurnar seljist við verði, sem nægir til greiðslu á framleiðslukostnaði þeirra, en stærsti hluti framleiðslukostnaðarins er einmitt innlenda kaupgjaldið. Prófsteinninn á það, hversu heilbrigð stefna hin öra kauphækkun Itefur verið, fæst þess vegna með J)ví að bera sarnan, livort verð útflutnings- varanna hefur hækkað að sama skapi og kaup- ið. Línuritið, sem hér fer á eftir, sýnir Jtróun kaupgjalds og verðs útflutningsvaranna frá Jwí árið 1935. Verðbreytingar útflutningsafurðanna eru byggðar á vísitölu Hagstofunnar um þetta efni, en þær birtast jafnan í verzlunarskýrslun- um. Vísitala kaupsins hefur hinsvegar verið reiknuð hér sérstaklega til samanburðar. Við at- hugun kemur þá í ljós, að vísitala verkakaupsins miðuð við 1935 er nú komin upp í 615 stig, og FRJÁLS VERZLUN 1935 36 37 38 39 4o 41 4? 43 44 45 «6 1947 Svarta línan táknar vísitölu tímakaupsins, en strikalínan vísitölu verðs útflutningsafurðanna. Hver vísitala er á línuritinu gefin upp í árslok. hefur því kaupgjaldið á Jressum tíma liækkað um rúm 500%. Vísitala verðs útflutningsafurðanna er aftur á móti um áramótin 1945—1946, en lengra nær hún Jdví miður ekki, aðeins komin upp í 294 stig, og hefur því ekki hækkað um nema tæp 200%. Frá þessum tíma liefur hún sennilega ekki liækkað svo verulega, að um muni í Jtessum samanburði, því að Jrótt verð sumra útflutningsafurða, svo sem lýsis, síldarafurða og jafnvel hraðfrysts fisks hafi hækkað, þá hefur verð annarra vara, sem mikil áhrif hafa á vísi- tölu útflutningsafurðanna, svo sem ísfisksins, fallið mjög mikið. Niðurstaðan er því með öðr- um orðum sú, að kaupgjaldið hefur hækkað langt fram yfir verðhækkun útflutningsafurð- anna, og Jjað svo rnjög, að sumar greinar útflutn- ingsframleiðslunnar eru hættar að bera sig (t. d. hraðfrystur og saltaður fiskur). Er það því augljóst mál, að boginn í kaupgjaldsmálunum liefur verið spenntur hátt, og það svo freklega, að kauphækkun nú hlýtur, að óbreyttunr að- stæðum, að leiða til stöðvunar margi'a þýðingar- mestu greina atvinnulífsins. HVERT BER AÐ STEFNA 1 KAUPGJALDS- MALUNUM? Ef dregnar eru almennar ályktanir af því, sem hér að frarnan hefur verið sagt, verður niðurstað- an ótvírætt sú, að kaupgjald verkamanna hér á landi hefur á síðustu árum hækkað risaskrefum, jafnframt Jjví sem félagslegum umbótum og hlunnindum til handa verkamönnum hefur fleygt fram, svo að vafasamt er, að raunveru- 107

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.