Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1947, Side 14

Frjáls verslun - 01.06.1947, Side 14
Ef hann spurði nú: „Er það áreiðanlegt að þú sért orðin góð aftur, elskan mín?, hreytti hún svarinu frainan í hann: „Já, þegiðu bara! Lofaðu mér að sofa! Vertu ekki að ergja mig á þessu lengur! Þú ert ófær til allra hluta — getur ekki einu sinni nuddað konuna þína almennilega”. Hann varð ákaflega niðurdreginn. „En, elskan mín ...” Hún æstist upj). „Ég vil ekki heyra neinar hölvaðar vöflur. Nú er nóg komið, eða hvað finnst þér? Á ég ekki að fá að hvíla mig í friði?” Og hún hylti sér í rúminu og sneri sér upp til veggjar. Eina nóttina hristi hún hann svo rækilega, að hann vaknaði með andfælum og var á augabragði setztur upp í rúminu, en slíkur dugnaður var heldur óvana- legur. Hann stamaði: „Hvað ... ha ... hvað er að?” Hún kleip hann svo fast í handlegginn, að hann kveinkaði sér. Þá sló hún hann utan undir og hvísl- aði síðan: „Það er einhver skarkali í húsinu”. Hann var orðinn vanur kenjum og upjjþotum konu sinnar, svo að hann lét sér ekki hregða en spurði hógværlega: „Hverskonar skarkali, ljósið mitt?” Hún skalf og nötraði, eins og undan martröð. „Skarkali — reglulegur hávaði og gauragangur — Það var engu líkara en einhver væri að ganga um”. Hann var vantrúaður. „F.inhver að ganga um? Heldurðu það? Nei, nei, það getur ekki verið, þér hefur bara misheyrzt, góða mín. Hver ætti það svo sem að vera?” Hún hritist af taugaæsingi. „Hver? Hver? Auð- vitað þjófar, fíflið þitt!” Hann Iiallaði sér á bakið aftur og hjúfraði sig undir sængina. „0, sei, sei, nei, góða bczta. Það er enginn. Þig hefur bara verið að dreyma”. Við þessi orð manns síns þeytti hún ofan af þeim sænginni og stökk fram úr rúminu. Hún var ösku- reið: „Þú ert þá jafn huglaus og þú ert duglaus! En ég ætla samt ekki að láta myrða mig hér með köldu blóði, vegna gunguskaparins í þér”. Að svo mæltu þreif hún eldskörunginn frá arninum, læsli dyrunum vandlega og tók sér stöðu innan við þær, hin vígamannlegasta. Þetta fordæmi hugrekkis og ein- urðar hafði þau áhrif á Gustaf Lerebour, að hann reis einnig á fætur, dálítið skömmustulegur á svijjinn, vopnaðist kolaskóflunni og staðnæmdist andspænis betri helmingi sínum. Hann var svolítið fýlulegur, og svo hafði hann gleymt að taka af sér nátthúfuna. Þannig stóðu þau hreyfingarlaus í tuttugu mínútur og hvorugt þeirra mælti orð af vörum. Ekkert hljóð rauf kyrrðina í húsinu. Loks missti frú Palmyra þol- inmæðina og fór aftur upp í rúmið, þrútin af gremju og leiðindum. „Ég er nú samt alveg handviss um, að ég heyrði fótatök”. Daginn eftir minntist Gustaf Lerebour ekki einu 110 orði á ógnir næturinnar, því að hann vildi komast hjá rifrildi. En næstu nótt vakti frúin bónda sinn aftur af værum svefni, með hálfu meiri ofsa en áður, og stundi, snöktandi af hræðslu: „Gustaf, Gustaf — það var einhver að ganga um garðshliðið!” Hann varð steinhissa á þessari þrákelkni eigin- konu sinnar. og fór að halda að hún talaði í svefni. Hann ætlaði að fara að hrista hana úr þessu hættu- lega ástandi, en í sama bili þóttist hann sjálfur heyra eitthvert þrusk utan úr garðinum, rétt neðan undir húsveggnum. Hann fór í flýti fram úr rúminu, hljój) út að glugganum og sá — já, hann sá einhverja hvíta veru skjótast eftir garðstígnum. „Þa ... þa .... þarna er einhver”, stamaði liann og var að því kominn að falla í yfirlið af skelfingu. En svo herti hann upp hugann, tók á öllu viljaþreki sínu og hleypti í sig réttlátri reiði fasteignaeigandans, sem horfir á óviðkomandi menn traðka á landi sínu. Hann kom með hótanir: „Bíddu bara við, lagsi. Ég skal jafna um gúlann á þér”. Hann skundaði að skrifborðinu, ojmaði eina skúff- una, hrifsaði skammbyssuna sína og ruddist út á tröppurnar. Konan hans kom hlaupandi á eflir honum, skelfingu lostin. „Gustaf, Gustaf — farðu ekki frá mér. Skildu mig ekki eina eftir! Gustaf! Gustaf!” En hann lét sem hann heyrði ekki til hennar og þaut út í garðinn. Þá flýtti hún sér inn aftur og læsti sig inni í svefn- herberginu. Hún beið í fimm mínútur ... tíu ... stundarfjórð- ung. Ofsaleg hræðsla gagntók hana. Sjálfsagt hefðu þeir drepið hann — kyrkt hann. Hún hefði miklu heldur viljað heyra skot úr byssunni, vita af honum berjast og verja sig. En þessi ægilega þögn og hræði- lega kyrrð þyrmdi yfir hana. Hún hringdi á Celestu, en Celesta anzaði ekki. Hún hringdi aftur — hana svimaði. Það lá við að hún félli í ómegin. Hvergi var nokkurt minnsta hljóð að heyra. Hún þrýsti sveittu enni sínu að rúðunni og reyndi að rýna gegnum myrkrið úti fyrir, en hún gat ekkert greint nema svarta skugga trjánna á grá- um garðstígnum. Klukkan sló hálfeitt. Nú var Gustaf búinn að vera þrjá stundarfjórðunga í burtu. Aldrei fengi hún að sjá hann framar. Nei, aldrei framar. Og hún lét fallast á kné, kjökrandi. Innan stundar var barið hljóðlega á dyrnar. Rödd fyrir utan sagði: „Opnaðu, Palmyra mín, það er ég ”. Hún hraðaði sér til dyranna, lauk þeim upp og stóð með hendur á síðum og augun fljótandi í tárum fyrir framan bónda sinn. „Hvar hefurðu verið allan þennan tíma, bövuð ótugtin. Það er þokkalegt eða hitt þó heldur að skilja mig hér eina eftir, dauð- vona af hræðslu. Þú tekur ekkert tillit til mín, frem- ur en ég væri ekki til”. Hann lokaði svefnherbergishurðinni og .lók til að hlæja allt hvað af tók. Hann hló og hló og hló eins FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.