Frjáls verslun - 20.06.1948, Blaðsíða 11
Hinn 26. júní
s.l. andaðist Pét-
ur Magnússon,
bankastjóri og al-
þingismaður eftir
uppskurð á Mas-
sachusets General
Hospital í Boston.
.Hafði hann verið
skorinn upp þrem
dögum áður,
vegna illkynjaðr-
ar meinsemdar.
Með honum er
horfinn af sjón-
arsviðinu einn af
merkustu Islend-
ingum þessarar
kynslóðar og verður skarð það, er dauðinn þar hjó
í röð forvígismanna þjóðarinnar ekki auðfyllt.
Pétur Magnússon var fæddur að Gilsbakka í Hvít-
ársíðu 10. jan. 1888 og því rúmlega sextugur að aldri.
— Hann var sonur merkishj ónanna, séra Magnúsar
Andréssonar prófasts og alþingismanns og konu
hans, Sigríðar Pétursdóttur Sívertsen.
Stúdentsprófi lauk hann árið 1911 og lögfræði-
prófi árið 1914. Eftir það gerðist hann lögfræðing-
ur hjá Landsbanka Islands og vann samhliða því al-
menn málfærslumannastörf.
Árið 1920 tók hann við málfærsluskrifstofu herra
forseta Sveins Björnssonar, er hann varð sendiherra
Islands í Danmörku, ásamt Guðmundi sál. Ólafssyni
hrl., og ráku þeir hana saman þar til Guðmundul'
sál. dó, en eftir það rak hann skrifstofuna ásamt Ein-
ari B. Guðmundssyni hrl. og Guðlaugi Þorlákssyni,
uns hann varð bankastjóri Landsbanka íslands árið
1941. Hæstaréttarmálafærslumaður varð hann árið
1921.
Pétur sál. var afburðagóður málafærslumaður. —
Gáfurnar voru miklar, hugsunin skýr og sanngjarn
var hann í bezta lagi.
Það hlaut því að verða, að á hann hlæðust opinber
trúnaðarstörf. — Hann var skipaður framkvæmda-
stjóri Ræktunarsjóðs Islands 1924 og einn af banka-
stjórum Búnaðarbankans 1930, og hélt því starfi þar
til það var lagt niður árið 1937. Árið 1941 var hann
skipaður einn af bankastjórum Landsbanka Islands.
I bæjarstjórn Reykjavíkur sat hann árin 1922—28 og
var um skeið forseti hennar.
Alþingismaður var hann um langt áraskeið. Lands-
kjörir.n 1930—1933, þm. Rangæinga 1933—1937 og
landskjörinn aftur frá 1942—1946. Árið 1946 var
hann kjörinn 1. þm. Reykvíkinga, og var það er hann
féll frá.
Pétur sál. var einn af aðalforvígismönnum Sjálf-
stæðisflokksins og sat bæði í flokksráði hans og mið-
stjórn. Var hann einn af aðalráðamönnum hans, vitur,
framsækinn en gætinn. — Þekking hans á þjóðmál-
um var víðtæk og staðgóð og tillögugóður var hann
um hvert mál. Friðsamur var hann en fastur fyrir.
Þegar Ól. Thors myndaði samsteypuráðuneyti sitt
árið 1944, var Pétur Magnússon fjármálaráðherra
í stjórninni og efast ég ekki um, að sagan muni eiga
eftir að meta verk hans þar að verðleikum.
Eftir að það ráðuneyti vék frá völdum var Pétur á
ný kjörinn einn af bankastjórum Landsbankans, við
andlát Magnúsar sál. Sigurðssonar, en bankastjór-
stöðu sinni hafði hann afsalað sér skömmu eftir að
hann varð ráðherra, og er það eitt dæmi um dreng-
skap hans og sanngirni.
Pétur sál. var kvæntur Ingibjörgu Guðmundsdóttur
Víborg og áttu þau mörg mannvænleg börn. Reyndist
FRJÁLS VERZLUN
135