Frjáls verslun - 20.06.1948, Qupperneq 4
sem oidshiptin
Tvær vörusýningar
I.
Benelux-löndin, Holland og Belgía, leljast
hvorugt meðal stórveldanna í heiminum, en
þjóðirnar, sem þessi lönd byggja, hafa á sér orð
fyrir dugnað og hagsýni í framleiðslu og verzl-
un. Standa verzlunarsambönd Hollendinga og
Belga föstum fótum víða um lönd og álfur.
Eins og gefur að skilja, rofnuðu þessi sam-
bönd meðan á stríðinu stóð og löndin voru her-
setin af Þjóðverjum. En síðan hefur ósleitilega
verið unnið að því að bvggja upp það sem nið-
ur féll þá, og hvað Belga snertir, er hægt að
fullyrða, að framleiðsla þeirra og verzlun stend-
ur með miklum blóma. A hinn bóginn eiffa Jteir
við erfiðleika að etja um öflun markaða fyr-
ir vörur sínar, veena vöruskiptaverzlunar þióða
í millum og allra þeirra takmarkana, sem henni
og s'iaidevristakmörkunum fylgja.
Hollendingar eru ekki eins langt á veg komn-
ir og Belgar. Veidur bar um fyrst og fremst það,
að þeir komu þjakaðri undan hersetunni, svo og
Frá Utrecht.
A miSri myndinni sést aSalbygging sýningarinnar.
þeir erfiðleikar sem orðið hafa á síðustu árum
í sambúð þeirra og þjóðanna, sem byggja hol-
lenzku nýlendurnar. Hins vegar segja þeir, sem
árlega hafa komið til Hollands síðan stríðinu
lauk, að um miklar og stórstígar framfarir sé
að ræða í framleiðslu þjóðarinnar og aukningu
siglingaflotans. Hagur almennings hafi stórbatn-
að og sé þjóðin á góðum vegi að jafna sig eftir
styrjaldarárin.
Bæði Hollendingar og Belgar hafa tekið upp
þann sið, að halda árlegar alþjóðakaupstefnur
í þessum löndum. Er hollenzka kaupstefnan
haldin í Utrecht, skemmtilegri borg í miðju
landinu, en belgíska sýningin í Brússel, höfuð-
borginni, sem margir kalla nú New York Ev-
rópu.
IL
Utrecht á sér langa sögu sem sýningarborg.
Er frá því sögn í gömlum hollenzkum skjölum,
að þegar á 12. öld hafi verið haldnir þar mark-
aðir, þar sem kaupendur og seljendur hittust
til að verzla. Eru sagnir um að byggingar hafi
verið reistar í borginni í þessu skyni, og að
ráðamenn staðarins hafi ábyrgst þeint, sem Jrang-
að komu í verzlunarerindum, friðhelgi í borg-
inni. HoIIendingar segja að þessir markaðir
megi, frá sögulegu sjónarmiði, kallast upphaf
þeirrar starfsemi sem þar er nú lialdið uppi.
Sýningin, sem háð var í Utrecht í vor, var
sú fimmtugasta í röðinni. Var þess minnst á
ýmsan hátt í sambandi við Jtessa sýningu. Til
garnans og samanburðar um vöxtinn í þessari
starfsemi má geta þess, að minnst hefur sýning-
in tekið yfir gólfflöt að stærð 4500 ferm., en
mestan í ár, eða um 33 þúsund fermetra flöt.
128
FRJÁLS VERZLUN