Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1952, Page 1

Frjáls verslun - 01.12.1952, Page 1
14. ARG. 11.—12. HEFTI — 1952 Erum við vandanum vaxin? Um hátíðimar, er menn hvíla sig frá önn daasins, gefst tóm til íhugunar. Áramótin fara i hönd, menn láta hugann hvarfla yfir liSna árið, meðlœti þess og andstreymi, gera upp reikniugana og hugsa sitt ráð. Það er gamall siður að byrja nýja árið með góðum ásetning. Þetta á ekki síður við um þjóðir en einstak’inga. Hvemig eru reikningssldl okkar litlu þjóðar um þessi áramót? Við erum orðin svo gegn- sýrð af þeim hugsunarhœtti, sem fvlgir taum- lausri togstreitu um skiptingu auðsins, að við vegum velferð okkar aðeins í krónupeninaum kaups, k'ara, afurðaverðs og verzlunarjafnaðar, en gleymum allt of oft kiarna má'sins; þeim gœðunum, sem ekki vorða metin til fjár, frels- inu, sjálfstœðinu, tilveru sjálfrar þjóðarinnar. Allt eru þetta jafnt andleg sem efnaleg verð- mœti, hlekkir í sömu keðiu, og enginn þeirra má bi'a, ef ekki á að h'jótast illt af. Þegar reikningamir verða gerðir hér upp í þessum fáu línum, verður því ekki einb'ínt á efnahags- legu hliðina, heldur einnig og ekki síður höfð huaföst þau verðmceti, sem mölur og ryð fá ekki grandað. Því miður verðum við að horfast í augu við þá staðreynd, að reikningsútkoman er okkur um þessi áramót mjög andstœð. Atvinnuveg- irnir berjast í bökkum. Þeim örðugleikum höf- um við mœtt með því að hœtta að vinna. Vold- ugt stórve'di rœðst á bjargrœði okkar og beitir okkur hörðu. Því svörum við með því að efla til innbyrðisófriðar. Þetta stórveldi brýtur á okkur alþjóðalög, en sjálfir fótumtroðum við okkar eigin lög og beitum hvorir aðra valdi eítir getu. Við erum ráðvilltir og neitum stað- reyndum. Allir krefjast alls af öðrum, en ekki neins af sjálfum sér. Ef einhver sýnir dugnað og framtak, er séð ofsjónum yfir því, því eng- inn má standa upp úr flatneskjunni. Sjálfir vörpum við svo öllum áhyggjum á einhverja opinbera forsjón, rikið eða bœjarfélögin. Kröf- ur okkar og óskir stangast hvorar á aðrar. Við vi’jum hœkkað kaup en lœkkaða dýrtíð. Við viljum auknar framkvœmdir, en lœkkaða skatta, og þannig mœtti lengi telja. Það þarf enga sérlega bölsýni til, að þeirri hugsun skjóti upp, hvort þjóð, sem þannig hegðar sér, sé þeim vanda vaxin að stjóma sér sjálf, hvort sundrungin muni ekki leiða til upp'ausnar og upplausnin til ánauðar, því að sundruð þióð er auðhremmdur biti fyrir erlend stórveldi. Við skulum öll vona, að svo ógasfu- lega takist ekki til. En það stoðar ekki að vona; við verðum að vilja og vinna að því, að slíkt hendi aldrei. Við verðum að gera okkur Ijóst, að aðeins er til eitt ráð til þess að rétta við hag okkar og tryggja sjálfstœði og tilveru þjóðarinnar og það er samheldnin. Með sam- taki verðum við að byggja upp þetta erfiða land, og erfiðleikunum verðum við að mœta með því að snúa bökum saman. Við erum öll í sama bát, og lendi skipið í sjávarháska, bjargast enginn öðrum fremur, af því að hann sé í einni eða annarri stétt. Þá verður ekki farið í manngreinarálit. Við verðum því að temja okk- ur umburðarlyndi og skilning á kjörum hvers Framh . á blí. 151.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.