Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1952, Side 2

Frjáls verslun - 01.12.1952, Side 2
KLEMENS JÓNSSON: Búílarlíf og bæjarbragur fyrir 80 árum Búðirnar í Reykjavík voru um 1870 aðeins í Hafn- arstræti, þó var ein í Aðalstræti (ég tel Fischefbúð, nú Duus-búð, í Hafnarstræti). Hana átti Jóhann Heil- mann, og var hún í litlu, svörtu húsi, þar sem Coghill bjó síðar lengi, við hliðina á gestgjafahúsi Jörgen- rens (Hótel fsland). í Glasgow, sem bar ægishiálm yfir öll hús í Reykjavík, var þá verzlun um það leyti að Iíða undir Iok. Þetta var eðlilegt; Hafnarstræti var næst sjónum, og þarna höfðu búðirnar verið frá því bærinn byggðist. Reykiavíkurbær í eiginlegum skilningi var þá h'lið annað en kvosin með kota- þorpunum umhverfis, Grjótaþorpinu og Hlíðarhúsa- hverfi að vestan, og Þingholtshverfi og Skuggahverfi að austan. ÖII húsin voru í miðbænum. Þó voru timb- urhús byggð við Vesturgötu (sem þá hét Hlíðarhúsa- stígur) vestur að Hlíðarhúsum, og við Bankastræli (sem þá hét Bakarastígur) unn að Vegamótum. Svo voru og nokkur hús neðst við Skólavörðustíg, og fram með læknum að austanverðu, svo sem stiftamtmanns- húsið. bakanið. latínuskólinn o.fl. í flestar búðir var gengið úr Hafnarstræti. Þó var í eira búð (Möllersbúð, síðan lengi Hótel Alexandra, nú nr. 16) gengið úr bakgarðinum, fvrst í gegnum dimman skúr og síðan inn í búðina, sem var svo dimm, að komumaður gat í fyrstu ekki greint neitt. Það, sem nútíðarmanni myndi fyrst breaða við að sjá, var, hve afarhá búðarborðin voru, sjálfsagt hátt á aðra alin. Frá einokunartímunum var meðfædd ó- vinátta milli kaupmanna og landsmanna. Þeir síðar- nefndu álitu, að kaupmenn notuðu hvert lækifæri til að hafa af þeim fé, og töldu það því hvorki synd né lagabrot að hnunla aftur frá kaupmanninum. Af þessu hygg ég. að búðarborðin hafi verið höfð svona há upphaflega. og svona héldust þau allt fram undir 1880. hó að slíkur hugsunarháttur væri þá almennt útdauður. Borðið í þeirri búð, sem ég var í, var svo hátt. að ég gat aldrei mælt léreft við það, nema með því að standa í stiga. Það var ekki verið lokka kaupendur að með því Klemens Jónsson, fyrrum lamlritari, reit eftirfaramli ffrein, off birtist hún í ,,Skírni“ lí>13. Ji'BJÁLS VERZI-- UN birtir hér ffreinina nokkuð stytta, J»ar sem hún geymir merkileffan fróðleik um verzluharhætti or búð- arlíf, ofí jafnframt bæjarlífið, litlu eftir 1870. Sjálfur var Klemens búðardrensur liér í bæ á þeim árum, og því nákiinnu^ur þessum máluin. Er fróðlefft fyrir unpu kynslóðina nú á dög’um að kynnast lítillefija bæjarlífinu í bá dafi;a. aí? áuglýsa vörur í blöðunum. Þers gerðist heldur ekki þörf, allir vissu hvar hvers um sig var að leita, því að búðirnar voru ekki svo margar eða fjölskrúðugar. Það var heldur ekki verið að tæla menn inn með því að trana vörunum fram í gluggana, enda var það ekki hægt, því að bæði voru þeir fáir og smáir, og svo voru á hverju kvöldi settir hlerar fyrir þá að innan (í sumum búðum voru þó hlerar að utan), og því hefði það verið mikið umstang að flytja til og frá í gluggunum. 1 minni búð voru tveir gluggar. Undir öðrum stóð skrifpúltið, og birtan var ekki svo mikil fyrir, að ástæða væri til að skerða hana. En í hinum voru tvær glerkrukkur, í annari voru sápustykki. sem kostuðu túskilding hvert, og í hinni var brjóstsykur. Þetta var öll sýningin, og ekki voru gluggarnir fjöl- skrúðugri í öðrum búðum. Á sumrum, einkum um lestatímann, því þá var af- armikið að gera, voru búðir opnaðar kl. 6 að morgni og lokað venjulega kl. 8 að kvöldi, oft gat það þó dregizt lengur. En á vetrum voru þær eigi opnaðar fyrr en kl. 8, eða jafnvel seinna, en lokunartími var eigi viss. Það var nefnilega þá alsiða, að búðirnar voru fullar af fólki, sem ekkert keypti. Menn hímdu þarna, þegar ekkert var að gera, sumpart af því, að þar var þó hlýrra en úti, eða heima í kotunum, og svo voru þeir að doka eftir því, að einhver náungi eða búðarþjónarnir gæfu þeim í staupinu, hvert handar- vik var þá borgað með „snaps“. Þar sem nú þyrping- in í búðinni fór vaxandi eftir að rökkva 'tók, gerðist þar venjulega hávaði mikill, sem oft endaði í illind- 114 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.