Frjáls verslun - 01.12.1952, Blaðsíða 6
H. Th. A. Thomsen.
Hannes St. Johnsen.
Hans A. Sivertsen.
STYRKTAR- OG SJÚKRASJÓÐUR
VERZLUNARMANNA 85 ÁRA
Einhver merkustu samtök, sem verzlunarstéttin hér
í Reykjavík hefur staðið að, er stofnun Styrktar- og
sjúkrasjóðs verzlunarmanna, er varð 85 ára 24. nóv-
ember s.l. Upphaf sjóðsstofunar þessarar er fyrst
hreyft í Kaupmannafélaginu í Reykjavík eða Hand-
elsforeningen. Ekki er vitað með vissu, hver hafi átt
upptök að stofnun sjóðsins Handelsforeningen var
einskonar klúbbur reykvískra kaupmanna og verzlun-
arstjóra, en þessháttar klúhbar höfðu verið hér til frá
því um byrjun aldarinnar.
Verzlunarmenn í Reykjavík hafa oft látið sér annt
um ýmis framfara- og félagsmál í bænum. Komu þeir
t.d. mjög við sögu skólamála og heilbrigðismála í
bænum, en það verður ekki rakið nánar hér.
Gengið var frá stofnun sjóðsins í samkomustað
Handelsforeningen í Hafnarstræti 16, og er hann tal-
inn stofnaður 24. nóvember 1867. Sjóðurinn var ekki
sjálfstætt félag eða fyrirtæki, heldur þáttur í starf-
semi Handelsforeningen — og var svo til 1873.
Reglugerð sjóðsins var samin á dönsku — Statuer
for Reykjaviks Handelsforenings Understöttelses- og
Sygekasse — og samkvæmt fyrstu greininni eru félag-
ar Kaupmannafélagsins einnig reglulegir félagar
sjóðsins, en aðrir verzlunarmenn, sem greiða gjald til
stofnunar sjóðsins, geta einnig orðið hluttakendur í
honum.
í reglugerðinni er starfssvið sjóðrins ákveðið verzl-
unarstaðirnir við Faxaflóa, að meðtöldum Búðum og
Keflavík. Tekjur sjóðsins áttu að vera: 6 marka inn-
tökugjald, 16 marka ársgjald, greitt ársfjórðungslega,
og svo nokkrir aðrir lausari tekjustofnar, sem bentu
ótvírætt til hins nána sambands sjóðsins við Kaup-
mannafélagið og klúbblíf þess. Tckjuafgangur af leigu
fyrir húsnæði félagsins átti að renna til sjóðsins, enn-
fremur sektir þær, sem fclagar kýnnu að verða dæmd-
ir í fyrir vanrækslu í félaginu, og loks tíund af spila-
gróða á fundum félagsins. Þriggja manna stjórn, kos-
in til þriggja ára í senn, fór með málefni sjóðsins, en
tveir endurskoðendur áttu að líta eftir fjármunum
hans mánaðarlega, en stjórnin átti að ráðstafa þeim
á arðvænlegan en öruggan hált. Vöxtunum af höfuð-
stól sjóðsins eða þeim hluta þeirra, sem ákveðinn
yrði, skyldi stjórnin verja „til styrktar verzlunar-
mönnum eða munaðarleysingjum þeirra, sem óverð-
skuldað eru sviptir atvinnuvegi sínum, annað hvort
sökum veikinda eða annarra óhappa, er að kunna að
bera og fljótrar hjálpar þarf.“ Stofnendur sjóðsins
munu hafa verið 21 að tölu, og í fyrstu sjóðsstjórn
voru kosnir H. rh. A. Thomsen, formaður, og Hannes
St. Johnsen og Hans A. Sivertsen, verzlunarstjóri.
Unnið var kappsamlega strax í upphafi að afla
sjóðnum nýrra félaga. Um áramótin 1869—70 eru
félagar sjöðsins orðnir 70, og ári síðar er fyrst veitt-
ur styrkur úr sjóðnum, en hann var þá orðinn rúmar
5 þús. krónur.
Verzlunarstéttin var á ýmsan hátt dansklunduð á
118
FRJÁLS VERZLUN