Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1952, Síða 18

Frjáls verslun - 01.12.1952, Síða 18
Aðsetur frönsku nýlendumálastjórnarinnar í Oran. Þegar við erum komin út úr Arabahverfinu, hóum við á bíl. Þegar við erum sezt inn í bílinn og búin að semja við bílstjórann um gjaldið, munum við allt í einu eftir því, að okkur hefur að mestu láðzt að heiðra bjórstofur borgarinnar með nærveru okkar og eru nú síðustu forvöð að bæta úr því. Við biðjum bílstjór- ann, sem kveðst heita Ali Baba, að vísa okkur á bjór- stofu, og tekur hann því glaðlegar en þótt við hefðum beðið hann að vísa okkur á himnaríki, enda ekki víst, að hann hefði ratað eins vel þangað. Ég spyr Ali Baba, hvort hann sé ekki töframaður, eins og nafni hans úr ævintýrunum, og lætur hann alldrýgindalega yfir því. Ég býð honum þá sígarettu og rétti honum vindlinga- veski með þeim orðum, að hann verði að opna það sjálfur, ef hann vilji fá sígarettuna, en veskið er með ofurlílilli galdralæsingu, og hafði ég keypt það fyrir fáeinum mínútum af hrokkinhærðum þrekkjúða á sölutorginu í Arabahverfinu. Ali Baba setur upp Ed- isonssvip og reynir að opna veskið, en allt kemur fyrir ekki. Hann fer með töfraþuluna á Afríku- frönsku sinni: „Sesam, ouvrez toi“, „Sesam, opnist þú“j en Sesam opnast ekki. Þetta hlýtur að vera einhver plat-Ali svindil-Baba, og ég verð að lokum að opna fyrir hann veskið. Hins vegar er hann enga s'tund að finna fyrir okkur bjórstofu, og þegar við erum ný- sezt inn í bílinn að fenginni afgreiðslu þar, segist hann vita af annarri bjórstofu ennþá betri, og hún sé einmitt í leiðinni. Mann getur iðrað þess lengi, ef maður lætur undir höfuð leggjast að drekka þann bjór, sem verður á vegi manns, svo það er ekki um annað að ræða en að hlýta leiðsögn AIi Baba í bjór- málinu, og þegar við komumst loks niður að skipi, eru þær orðnar nokkuð margar bjórstofurnar, sem hafa orðið á leið Ali Baba og okkar, enda eru þá liðnar tuttugu mínútur fram yfir þann tíma, sem við höfðum samið um við Ali Baba. Um þessar tuttugu mínútur, sem farið bafa í að ræða bjórfrumvarpið í Oran, ætlum við auðvitað að reyna að semja við Ali Baba, á jafnréttisgrundvelli og helzt þannig, að báðir hagn- ist, en þá er eins og hinn vingjarnlegi og glaðlegi Ali Baba-svipur hafi skyndilega þurrkast af andliti bíl- stjórans, en í staðinn er eins og sviðinn inn í ásjón- una svipur hinna fjörutíu ræningja. Þessar tuttugu mínútur eiga að verða okkar dýrari en klukkutíminn, sem við höfðum samið um fyrirfram. En þess háttar trakteinent látum við ekki bjóða okkur, og við förum til lögregluþjóns, sem stendur á bryggjunni, skýrum honum frá málavöxtum og spyrjum, hvað sanngjarnt sé að borga. Að fengnum úrskurði hans, fáum við honum peningana og biðjum hann að afhenda Ali Baba þá, þegar hann sé búinn að átta sig. Meðan í þessu stappi stendur, hafa hinir farþegarnir farið um borð, en AIi Baba stendur í miðjum skipsstiganum, hinn vígamannlegasti, og steypir yfir mig orðaflaumi á Afríkufrönsku sinni og er svo fljótmæltur, að ég skil ekki stakt orð, og tel ég það ekki með skaða mínum, enda sennilega ekki misst af miklu. Ég fer mér að engu óðslega, læt Ali Baba þusa, en fer að skoða varninginn hjá pröngurunum, sem híma ennþá við skipshliðina í þeirri veiku von, að þeir geti kom- ið út þó ekki sé nema einu ilmvatnsglasi. Þeir hafa lækkað verðið mikið síðan í morgun, cn það er enn- þá alltof hátt, og þeim skal reynast seintekinn gróði að hafa hestakaup við Sumarliða póst. Mér verður litið um borð. Þar er sýnilega allt bú- ið til brottferðar og aðeins beðið eftir því, að síðasti Mohikaninn komi sér um borð. En Ali Baba stendur ennþá í skipsstiganum og ætlar sýnilega að varna manni að komast um borð. Lögregluþjónninn stendur á bryggjunni og gerir sig ekki líklegan til að fjar- lægja Ali Baba, þá það. Chcun tue ses puces a sa facon, eins og þeir segja í Parísarborg, eða: sérhver drepur sínar flær með sínu lagi. Sinn er siður í landi hverju, og hér í Oran verður maður víst sjálfur að vera sinn eigin lögregluþjónn. Langt er nú síðan maður hefur brugðið sér í eina bröndótta, en það verður víst ekki hjá því komizt að reyna, hvað eftir er af manni, eða hvort það er nokkuð, og rifja upp það litla maður lærði einu sinni í jiu-jitsu. En bezt er að fara að öllu með hægð fyrst, ganga að Ali Baba og segja með alvöruþunga: „Sesam, ouvrez toi!“ og ef það dugir ekki, verður að tala við hann á máli, sem hann getur ekki misskilið. Ég er að byrja að fara úr frakkanum, en þá gerizt allt í einu kraftaverkið. Ali Baba tekst skyndilega á loft, svífur framhjá mér með eldingarhraða, eins og fljúgandi diskur, landar á 130 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.