Frjáls verslun - 01.12.1952, Qupperneq 23
Smárablaðs-búsáhöld
tilbúin til afprreiðslu
úr verksmiðju.
kynna vörurnar, og hefur sölustjóri verksmiðjunnar,
J. Thorsen, árlega komið hingað til landsins til þess
að kynna sér þær sérstöku óskir, er íslenzkir seljend-
ur og notendur hefðu fram að færa viðvíkjandi fram-
leiðslu smárablaðsvaranna. Verksmiðjan hefur einnig
lagt mikla vinnu í að aðstoða búsáhaldaverzlanir þær,
sem selja smárablaðsvörur, við að koma upp smekk-
legum gluggasýningum, og hefur auglýsingadeild
verksmiðjunnar látið gera ýmsar gerðir af mjög
smekklegum sýningarspjöldum með íslenzkum texta.
ALUMINIUM var fyrst uppgötv- Ei,m af vinnusoium
' . verksmiðjunnar.
að at ungum Bandankjamanm, Framlciðsla hafin.
Charles Martin Hall, þann 23.
febrúar 1886. 1 fyrstunni fékkst enginn til þess að sinna
þessari uppgötvun unga mannsins. Það var fyrst tveim
árum seinna, sem byrjað var í smáum stíl að framleiða
aluminium. En í dag eru óteljandi hlutir framleiddir
úr aluminíum, allt frá títuprjónum til flugvéla. Alum-
iniummálmur finnst hvergi frír í jörðu, en er einkum
framleiddur úr steintegund, er nefnist báxit og er leir-
kennd steintegund mynduð úr aluminíumhydroxydi,
sem blandað er ýmsum öðrum efnum. Báxit fannst
fyrst við Les Baux í Suður-Frakklandi, og er nafnið
dregið af staðnum. Einn af fyKtu hlutunum, sem bú-
inn var til úr aluminium, var tepottur. Aluminium-
málmur er mjög heppilegur til framleiðslu á eldhús-
suðuáhöldum alls konar, sökum þess að hann heldur
svo vel í sér hita, og auðvelt mjög er að hreinsa áhöld
framleidd úr aluminium.
Aluminiummálmur er einnig
mjög léttur og því mjög heppi-
legur í flugvélaframleiðslu og er
því mjög þýðingarmikið efni í
hergagnaframleiðslu. Aluminium
er notað í alla mögulega hluli:
málningu, niðursuðudósir, yfir-
byggingu skipa, til umbúða t. d.
á sígarettum, sælgæti o.f 1.; heil
hús eru byggð úr aluminium, svo
að nokkuð sé nefnt, og fjölgar
stöðugt þeim hlutum, sem eru
framleiddir úr þessum ágæta
málmi.
VerkamaÖur viö
rennibekk í
verksmiðjunni