Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1952, Page 27

Frjáls verslun - 01.12.1952, Page 27
Skerpið athyglina! Fljótt á litið virðast báðar þessar myndir vera eins. I>egar betur er að ffáð, eru 8 inismunandi atriði í myndinni til hœgri frábrugðin því sem er að sjá á myndinni til vinstri. Geturðu séð í hverju mismunurinn er fólginn? — Sjá svör á bls. 150. ÆVINTÝRI I RÖM Fmmh. aj bls. 121. þá ekki um annað að ræða fyrir niig en að veita kök- unni móttöku og þakka fyrir. Svo hvarf hávaxna ver- an í þvöguna, en ég stóð eftir mcð kökuna, harðá- nægð yfir þessari óvæntu gjöf, enda þótt cg mætti þola stríðnina frá félögum mínum, sem dundi á mér lengi á eftir. Ekki gat ég samt betur séð en þeir hefðu góða lyst á kökunni, enda var hún mjög ljúffeng. Sjálfsagt hefur þetta allt saman verið eintómt aug- lýsingabrell fyrir verzlunina, sem sendi frá fér kökuna. Allar leiðir liggja frá Róm. Þegar við fórum frá hótelinu út á flugvöll morgun- inn eftir, komum við að stórri torgsölu, þar sem með- al annars voru seld allskonar blóm. Datt einhverjum í hug, að gaman væri að stoppa og kaupa blómvönd til að hafa með sér heim, og auðvitað fylgdist ég með til að fá mér hlóm eins og hinir. Þegar ég ætlaði að borga, stakk blómasölukonan stórum vendi með hvít- um blómum og einni rauðri rós að auki í minn pakka sem gjöf til mín mér til hinnar mestu undrunar. Þannig byrjaði dagurinn sá, og voru þó ekki öll kurl komin til grafar, því að á heimleiðinni gaf einn far- þeganna mér sígarettukveikjara og þar að auki fékk ég svo sérstaklega fallega ítalska brjóstnál frá öðr- um, og var mér þá farið að þvkja nóg um. Satt að segja klæjaði mig óvenju mikið í annan lófann dag- inn áður, svo ég átti að sömu leyli von á einhverju, en þó aldrei þessum ósköpum. Á heimleiðinni flug- um við yfir Alpana í dásamlega góðu skyggni, og sú sjón er mér ógleymanleg. Flugvélin liafði viðkomu í Ziirich, Frankfurt og Kaupmannahöfn áður en við komum til endastöðvarinnar — Stokkhólms. Viðstað- an heima var ekki löng í þetta skiptið, því ákveðið var að ég skryppi í burtu eftir eins dags hvíld og nú skyldi halda vestur á bóginn til New York. FRJÁLS VERZLUN 139

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.