Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1952, Page 31

Frjáls verslun - 01.12.1952, Page 31
Bókadálkur ENSK-ÍSLENZK ORÐABÓK eftir Sigur'S Örn Bogason. Cltgefandi Ísafoldarprentsmi'öja h.f. 1952. Ísafoldarprenlsmiðja hefur nýlega sent á inarkað- inn kærkonma bók í nýjum búningi. Er liér um að ræð'a ensk-íslenzka orð'abók, sern Sigurður Orn Boga- son, magister, hefur tekið saman með aðstoð föður síns, Boga Ólafssonar, fyrrv. yfirkennara. Við samn- ingu bókarinnar hefur verið höfð hliðsjón af orðabók Geirs T. Zoega og auk þess hefur verið stuðzt við: The Concise Oxford Dictionary of Current Eglish eftir bræðurna Fowler, The Universal English Diction- ary eftir H. C. Wyld, auk ýmissa annarra ensk-enskra, ensk-þýzkra, ensk-norskra og ensk-danskra orðabóka. Með útgáfu hinnar nýju orðabókar hefur verið bætt úr brýnni þörf á hentugri handbók fyrir alla þá, sem enskt mál þurfa að lesa eða skrifa. Hin gamal- kunna orðabók Geirs heitins Zoega er fyrir löngu orð- in úrelt hvað orðaval og þýðingar flestar snertir. Er þetta vissulega vel skiljanlegt, þegar þess er gætt, að síðasta útgáfa þeirrar orðabókar var búin undir prent- un fyrir 24 árum síðan. Eru þau ekki svo fá nýyrðin, sem tekin hafa verið upp í enska tungu á þessu ára- bili, og var því fyllilega tími til kominn að endur- skoða og auka orðaval ensk-íslenzkrar orðabókar. Höfundur hinnar nýju orðabókar er ungur og vel menntaður maður. Virðist honum hafa farizt erfitt og vandasamt verk vel úr hendi, því það er ekki heglum hent að semja orðabók sem slíka svo óaðfinnanlegt sé. Hefur orðaforði verið aukinn að miklum mun frá því, sem menn áttu að venjast í gömlu Geirsbókinni, og nýyrði mörg upptekin að fráskvldum ýmsum tækniheitum. Frágangur og prentun nyju .orðabókarinnar er með ágætum, og á ísafoldarprentsmiðja þakkir skyldar fyrir að ráðast í útgáfu þessa þarfa verks, sem svo margir voru orðnir langeygir eftir. Er ekki úr vegi að skjóta því hér fram að lokum, hvort ekki sé orðið tímabært að endurbæta og auka íslenzk-enska orðabók. Virðist hér vera um mikið nauðsynjamál að ræða og tilvalið verkefni fyrir þá að- ila, sem lagt hafa hönd á plóginn í sambandi við hina myndarlegu útgáfu nýju ensk-íslenzku orðabókar- innar. NS. Uppniiii lílikoiisins "■/— Framh. af hls. 127. i, \ ~' U Voru verðlaunin oft og tíðum ríkuleg, enda ávinn- ingur þeirra útgefenda mikill, ef þeir kunnu að greina kornið frá hisminu. Eftirmyndir af verkum frægra listamanna voru á mörgum kortum, og þeir urðu æ fleiri til bess að gefa sig að þessari iðju. Fólkið gerði jafnframt rneiri kröfur til útlits og gerð jólakortanna, og útgetendur þeirra gátu ekki skellt skolleyrum við þeim óskum. Vegur jólakortanna hefur aldrei verið meiri ei. nú. Þekktustu listamenn teikna jólakortin. og þau eru gefin út í stórum upplögum. 1 Bandaríkjunum er notkun jólakorta gevsimikil, og forsvarsmenn bessa iðnaðar þar í landi fullyrða, að árlega séu gefin út 100 þús. mismunandi gerðir af jólakortum og nemur salan yfir 30 millj. dollara. Óneitanlega eru möguleikar þessa markaðar miklir, en samkeppni harðnar stöðugt. Nú á dögum gerir almenningur miklar kröfui um listrænnt gildi iólakortanna, en bað er réttmætt að viðurkenna. að mörg af aömlu jólakortunum eru, lirátt fyrir frumbýBsbrag á öBum sviðum tækninnar í þá daga. fvllilega rambærileg við jólakort þau, sem eru á boðs'ólum í dag. Yfir hinum einföldu jólakortum fvrri daga, sniókarlar með pípuhatta, glaðlvndir jólasveinar. sruBvíravirki og stjörnur, hvíldi ei.ihver sérstakur Bómi. .Tólakortin voru stór þáttur í undir- búnirgi iólahaldsins. og ungir sem gamlir dáðust að þeim. Þau verða ávaBt minnisstæð þeim. sem nú eru kompir af æskuskeiði, þótt Bstrænnt gildi jóltikorta nú sé meira. (Lauslega þýtt). FRJÁLS ..VE RZLUK. L4S.'

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.