Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1952, Side 33

Frjáls verslun - 01.12.1952, Side 33
gagnfræðanámi, en fór síðan í Verzlunarskóla íslands og lauk þar einnig námi. Að loknu skólanámi starfaði Stefán um skeið hjá ýmsum verzlunarfyrirtækjum, bæði hjá þeim sem voru honum óviðkomandi og eins öðrum, sem hann átti hlutdeild í. Hann stofnsetti fyrirtækið Kauphöllina hór í Reykja- vík árið 1934 og starfrækti það jafnan síðan, ásamt félaga sínum og meðeiganda, Aron Guðbrandssvni. Stefán átti oft við heilsuleysi að stríða, en hann átti óbilandi þrek og kjark. Háttvísi hans og prúð- mennska var rómuð. Hann var ljúfmenni hið mesta og drengur góður. Kvæntur var hann Þóreyju Þórðardóttur, Bjarna- sonar frá Reykhólum, er lifir mann sinn. Eignuðust þau þrjá syni, og eru tveir þeirra á lífi. Leifur Theódór Þorleifs- son bóklialdnri andaðist 14. nóv. s. 1. Ilann var fæddur 2. júlí 1878 að Vörðufelli á Skógarströnd. Foreldrar hans voru Mar- grét Marísdóttir og Þor- leifur Jónsson, harnakenn- ari hér í bæ. Hingað til Reykjavíkur fluttist hann með foreldrum sínum tveggja ára að aldri og átti hér heima alla tíð síðan. ifur verzlunarstörf. Starfaði liann lengi við hina þekktu verzlun Sturlubræðra hér í Reykjavík. Aðalhókari og gjaldkeri Slij)])félagsins í Reykjavík var liann í mörg ár. Síðustu 17 ár starfaði Leifur við skóverksmiðju, er hann og sonur lians starfræktu sameiginlega hér í bæ. 1 Etjórn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur átti hann sæti um eitt skeið og starfaði ötullega að mál- efnum þess. Leifur var mikið prúðmenni í framkomu. Ilann var afskiptalaus um annarra hagi, en vinur vina sinna. Léttlyndur var hann og kíminn án græsku. Leifur var kvæntur Jónínu Magnúsdóttur frá Mið- seli, er andaðist árið 1940. Eignuðust þau tvö hörn. Ungur að aldri hóf L Isleifur Briem verzlunar- stjóri andaðist 21. nóv s. 1. Hann var fæddur 24. des. 1904 liér í Reykjavík, son- ur Sigurðar Briem, fyrrum ]>óstmálactjóra, og Guðrún- ar ísleifsdóttur konu hans. Ungur að aldri fór hann í Verzlunarskóla íslands og útskrifaðist þaðan 1922. Að loknu námi fór hann utan til framhaldsnáms í verzlunarfræðum og dvald- ist um skeið í skóla og við verzlunarstörf, ýmist í London, París og Kaupmannahöfn. Eftir nokkra ára dvöl erlendis kom ísleifur heim. Hóf hann starf í Skartgripaverzlun Árna B. Björns- sonar árið 1935 og starfaði þar jafnan síðan. Isleifur var dulur að eðlisfari, en tryggur vinum sínum, glaðvær í vinahóp og hafði kýmnigáfu í rík- um mæli. Málamaður var hann mikill og hafði ágæta þekkingu á ýmsum sviðum. ísleifur var ókvæntur. FRJÁLS VERZLUN 145

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.