Frjáls verslun - 01.12.1952, Síða 36
Félagsm
Aðalfundur V.R.
Aðalfundur V. R. var haldinn í Sjálfstæðishúsinu
12. nóv. s.l., og var hann fjölmennur. Formaður fé-
Iagsins, Guðjón Einarsson, setti fundinn og bauð með-
limi velkomna. Áður en gengið var til dagskrár, minnt-
ist formaður þeirra félaga, er látizt höfðu frá því að
síðasti aðalfundur var haldinn. Risu fundarmenn úr
sætum til virðingar hinum látnu.
Fundarstjóri var kjörinn Lúðvíg Hjálmtýsson, og
tilnefndi hann sem fundarritara þá Njál Símonarson
og Sigurlaug Þorkelsson.
Var síðan gengið til dagskrár:
1) Lesin var upp fundargerð síðasta aðalfundar
og var hún samþykkt athugasemdarlaust.
2) Lesin voru up]> nöfn allra þeirra, sem teknir
höfðu verið inn í félagið á árinu. Var það fjölmennur
hópur. Urðu nokkrar umræður um þennan dagskrár-
lið, en að lokum leitaði fundarstjóri samþykktar á
þessum nýju félögum, og voru þeir samþykktir sam-
hljóða.
3) Að því ioknu flulti formaður V.R. skýrslu fé-
lagsstjórnar. Rakti hann starfsemi félagsins í stórurr-
dráttum og verkaskiptingu stjórnarinnar. 1 félagið
gengu á árinu 127 karlar og 178 konur. Fullgildir
félagar eru 1576, en þar af 1320 launþegar. Á árinu
var stofnuð sameiginleg launþegadeild í stað þeirra
þriggja, sem starfað höfðu áður. Þá greindi formaður
í skýrslu sinni frá starfsemi hinna ýmsu nefnda. sem
starfandi eru innan félagsins.
Umræður urðu engar um skýrslu formanns.
4) Gjaldkeri húsbyggingarsjóðs, Sigurður Árna-
son, gaf skýrslu um fjárhag sjóðsins. Aukning hans
á árinu nam kr. 10.136,64, og er sjóðurinn nú að
upphæð kr. 253.825,12.
5) í forföllum formanns húsnefndar, Egils Gutt-
ormssonar, las Sigurður einnig upp reikninga hús-
eignarinnar Vonarstræti 4. Skuldlaus eign nemur kr.
54.613,07.
6) Gunnar Magnússon las upp heildarreikninga V.
R. Varð heildarreksturshagnaður á allri starfsemi fé-
lagsins á árinu, og nam hann kr. 58.600,20. Bókfærð
eign nemur samtals kr. 391.894,00. Að lokum las
Gunnar svo upp reikninga blaðs félagsins, „Frjálsrar
verzlunar.“
7) Fundarstjóri gaf orðið laust, ef einhverjir vildu
ræða framkomna reikninga. Tveir menn gerðu at-
hugasemdir við þá og báru fram fyrirspurnir, sem
Gunnar svaraði. Reikningarnir voru að því loknu
bornir undir atkvæði og samþykktir samhljóða.
8) Lagabreytingar voru næst á dagskrá. Fundar-
stjóri har upp eftirfarandi tillögu frá stjórn V. R.:
„Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur,
haldinn í Sjálfstæðishúsinu 12. nóv. 1952, samþykk-
ir að fela stjórn félagsins að leita inngöngu í Alþýðu-
samhand Islands.
Jafnframt samþykkir fundurinn að gera þær breyt-
ingar á lögum félagsins, sem nauðsynlegar eru vegna
inngöngu þess í A.S.Í.“.
Umræður urðu miklar um tillögu þessa og tóku
margir til máls. Frá Kjartani Helgasyni kom fram
tillaga þess efnis, að tillaga sljórnarinnar yrði bor-
in upp í tvennu lagi. Síðari málsgreinin yrði borin
upp, áður en lagabreytingar væru ræddar, en fyrri
málsgreinin eftir að lagabreytingar hefðu verið rædd-
ar. Tillaga Kjartans var felld með 132 atkvæðum
gegn 91.
Einar Guðmundsson har þá fram svohljóðandi til-
lögu lil rökstuddrar dagskrár:
„Þar sem hér er um stórmál að ræða og sem ekki
er hægt að afgreiða svo illa undirbúið, að félagsmenn
almennt hafa ekki haft tækifæri til að kynna sér mál-
ið, samþykkir fundurinn að slá máli þessu á frest og
taka fyrir næsta mál á dagskrá.“
Atkvæðagreiðsla um þessa tillögu fór þannig, að
hún var felld með 127 atkvæðum gegn 114.
Þá var gengið til atkvæða um tillögu stjórnar V.
R, er getið var um hér fyrst að framan, og var hún
148
FRJÁLS VERZLUN