Frjáls verslun - 01.12.1952, Síða 37
samþykkt með 133 atkvæðum gegn 28. Margir sátu
hjá við atkvæðagreiðsluna.
Formaður félagsins las upp tillögur þær til laga-
breytinga, er stjórnin hafði komið sér saman um. Á
eftir formanni tók til máls Björn Jónsson, félagsmála-
fulltrúi KRON. Taldi liann ýmsa annmarka á fram-
komnum lagabreytingum og bar jafnframt fram
margar og róttækar breytingatillögur við félagslögin.
Er hér var komið málum, kom fram tillaga um að
fresta umræðum um lagabreytingar, þar sem margir
voru á mælendaskrá og áliðið kviilds, og ganga til
stjórnarkosninga. Var tillaga þessi samþykkt sam-
hljóða.
9) Þá var gengið til stjórnarkosningar og skyldi
fyrst kjósa formann til eins árs. Stungið var upp á
Guðjóni Einarssyni, og var hann kosinn formaður i
einu hljóði.
Næst var kosning þriggja meðstjórnenda til tveggja
ára. Kosnir voru Njáll Símonarson með 155 atkvæð-
um, Daníel Gíslason með 153 atkvæðum og Pétur Sæ-
mundsen með 146 atkvæðum. Onnur atkvæði féllu
þannig, að Björgúlfur Sigurðsson hlaut 100 atkv.,
Jónas Gunnarsson 93 atkv. og Guðmundur Jónsson
88 atkv., en aðrir fengu færri. Fyrir voru í stjórninni
þeir Einar Elíasson. Ólafur Stefánsson og Þórir Hall.
1 varastjórn til eins árs voru kosnir: Einar Ingi-
mundarson með 148 alkvæðum, Ágúst Hafberg með
145 atkv. og Sigurlaugur Þorkelsson með 143 atkv.
Önnur atkvæði féllu þannig, að Kjartan Helgason
hlaut 73 atkvæði, Böðvar Pétursson 61 atkv., Einar
Andrésson 56 atkv. og aðrir færri.
í húsnefnd voru endurkosnir: Egill Guttormsson,
Friðþjófur Ó. Johnson, Oddur Helgason, Sigurður
Árnason og Sveinbjörn Árnason.
Endurskoðendur voru endurkosnir samhljóða, þeir
Þorsteinn Bjarnason og Einar Björnsson, og til vara
Gunnar Ásgeirsson.
Heiðursfélaganefnd var endurkosin með lófataki, en
hana skipa: Guðmundur Breiðfjörð, Guðmundur Kr.
Guðiónsson, Hjörtur Hansson, Jón Guðmundsson og
Sigurión Jónsson.
Meðan talning atkvæða við stjórnarkjör fór fram,
héldu umræður um lagabreytingar áfram, en fram
hafði komið tillaga þess efnis að fresta umræðum
og afgreiðslu lagabreytinga til framhaldsaðalfundar,
þegar úrslit stjórnarkosninga hafði verið kunngerð,
þar sem mjög væri orðið áliðið kvölds.
Var tillaga þessi samþykkt í einu hlióði, og var
fundi síðan frestað til framhaldsaðalfundar. Var þá
kl. 1,15 eftir miðnætti.
FRJÁLS VER-ZLUN
Stjórn launþegadeildar V. R. boðaði til almenns
launþegafundar að Tjarnarcafé hinn 3. nóvember. Á
fundinum var til umræðu uppsögn á launakjarasamn-
ingi félagsins við atvinnurekendur. Eftirfarandi til-
laga var samþykkt með samhljóða atkvæðum fundar-
manna: „Almennur launþegafundur V.R. haldinn í
Tjarnarcafé, mánudaginn 3. nóvember 1952, sam-
þykkir að stjórn launþegadeildarinnar segi nú þegar
upp gildandi kjarasamningum við atvinnurekendur,
dags. 3. marz 1948 og viðbótarsamningi, dags. 10.
ágúst 1950.“
Nokkrar umræður urðu á lundinum, bæði um upp-
sögn samninga svo og skipulagsmál deildarinnar. Til-
laga var borin upp í lok fundarins þess efnis, að kos-
in yrði fjögurra manna nefnd til að’stoðar stjórn
deildarinnar við undirbúning samningsuppkasts, sem
leggia skyldi fyrir atvinnurekendur. Var tillaga þessi
samþykkt og eftirtaldir félagar kosnir í nefndina:
Björgúlfur Sigurðsson, Guðmundur Jónsson, Gyða
Halldórsdóttir og Jónas Gunnarsson.
Verkaski])ting stjórnar V.R. er nú sem hér segir:
Formaður, Guðjón Einarsson, varaform., Njáll Sí-
monarson, ritari, Ólafur Stefánsson og gialdkeri,
Pétur Sæmundsen. Meðstjórnendur: Daníel Gíslason,
Einar Elíasson og Þórir Hall. Varamenn í stjórn:
Ágúst Hafberg, Einar Ingimundarson og Sigurlaugur
Þorkelsson.
•
Hinn 30. nóvember var efnt til launþegafundar að
Félagsheimilinu, en á dagskrá var samningsuppkast
það, sem stjórn launþegadeildar V.R. hafði unnið að
ásamt fjögurra manna aðstoðarnefnd, og sem leggja
skyldi fyrir atvinnurekendur. Njáll Símonarson hafði
framsögu um málið fyrir hönd stjórnarinnar og nefnd-
arinnar. Skýrði hann frá undirbúningi samningsupp-
kastsins og greindi síðan frá einstökum liðum þess.
Breytingar þær á gildandi launakiarasamningum V.
R., sem farið er fram á, eru í aðalatriðum þessar:
Grunnkaup A-Iiðs (skrifstofufólk) hækki um 15% og
greidd skuli full framfærsluvísitala á það. Grunn-
kaup í B-lið (afgreiðslufólk) hækki um 30% og við
það skuli bætast full framfærsluvísitala. Lokunar-
tími verzlana og skrifstofa skuli vera kl. 12 á hádegi
á laugardögum allt árið. Ennfremur er farið fram á
nokkrar aðrar breytingar í sambandi við vinnutíma
afgreiðslufólks í verzlunum. Þá er óskað eftir því, að
orlof verði lengt í þrjár vikur. I samningsuppkastinu
er isömuleiðis gert ráð fyrir allmiklum samræmingum
1.49