Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 1

Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 1
FRJÁLSVERZLUN Utij.: Frjáls Verzlun Utgáfufélag h/f liitstjóri: Pótur Pétursson Ritnejnd: Birgir Kjaran, formaður Gunnar Magnússon Valdimar Kristinsson í ÞESSU HEFTI: GUDJÓN HANSEN: Tvíþætt kjarabarátta ★ JÓHANN JAKOBSSON: Hagnýtar rannsóknir ★ íslenzka vinnulöggjöfin ★ BARÐI FRIÐRIKSSON: Samstarfsnefndir vinnuveitenda og launþega í Noregi og Danmörku ★ MÁR ELÍSSON: Vörusýningar og útflutningur ★ JÓNAS SVEINSSON: Torfi í Ólafsdal ★ GUÐMUNDUR G. HAGALÍN: Hálft á landi og hálft í sjó ★ o. m. fl. Stjórn útgájujélags FRJÁLSRAll VERZLUNAR Birgir Kjaran, formaður Gunnar Magnússon Melgi Olafsson Sigurliði Kristjánsson Þorvarður J. Júlíusson Slcrijstoja: Skólavörðustíg 3, 3. hæð Sími 1-90-85 — Pósthólf 1193 VÍKINGSPRENT HF FRJÁLS VERZLUN 19. ÁRGANGUR — 3. HEFTI — 1959 Athygltsverð játn i?ig Deilan um rekstrarform, verzlunar í landinu er orðin gömul og þrautrædd. Kjarni hennar liefur verið ágreiningur um ágæti liinna mismunandi rekstrarforma, samvinnurekstrar og einkarekstrar (þar og meðtalin hlutafélög og sameignarfélög). A síðarí árum hefur þó ádeilan af hendi þeirra sem aðhyllast séreignarskipulag, ekki fyrst og fremst beinzt að samvinnu- rekstri. sem rekstrar- eða eignarformi, lieldur fremur að þeirri staðreynd, að samvinnufyrirtœkin byggju við annan rétt og sœttu betri kjörum af liendi þess opinbera á ýmsum sviðum heldur en einkareksturinn. En þessu hefur löngum veríð mótmælt af samvinnumönnum. Nú liggur liins vegar fyrir viðurkenning á þessarí staðreynd, og er ástœða til að vekja athygli lesenda „Frjálsrar Verzlunar ‘ á henni. I nýútkomnu ríti, „íslenzkt samvinnustarf", sem Benedikt Gröndal hefur samið og gefið er út af Norðra, útgáfufyrirtœki Sambands íslenzkra samvinnufélaga, segir á bls. 82: „Það er skoðun fiestra kaupfélagsstjóra, sem eru þessum málum kunnugastir, að nokkur hluti hinnar miklu fjölgunar (félagsmanna kaup- félaganna) síðasta áratuginn liafi stafað af því, að vöru- sleömmtun var þá á flest árínF Með þessum orðum er viður- kennt að skömmtun og innflutningssérstaða, sem lienni var samfara, hafi veríð einn höfuðþáttur í eflingu kaupfélaganna um árabil. Slílc sérstaða, sem á þessu og fjölmörgum öðrum sviðum hefur veríð sköpuð til hagrœðis fyrír samvinnufélög- in, er ranglát og verður eklci viðhaldið til lengdar. Værí það vissulega œskilegt að nefnd játning værí vottur þess, að sam- vinnufélögunum sjálfum væri að verða þessi staðreynd Ijós, og myndu sætta sig við það í framtíðinni að sitja við sama borð og aðrír þegnar þjóðfélagsins.

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.