Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 17

Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 17
ofannefnt markmið beinna viðskipta fyrir aug- um. Þetta tekst einkum vel, þegar um ýmiss konar varning er að ræða, sem tilheyrir dagleg- um neyzluvenjum. Kaupstefnur og vörusýningar eru ein elzta viðskipta- og auglýsingaaðferð sem þekkist, og þar sem viðgangur þeirra hefur sízt minnkað við tilkomu nýrra aðferða og tækni við auglýs- ingar, verður að gera ráð fyrir, að þær borgi sig fyrir þá, sem þátt taka í þeim. — Á hinn bóginn hefur hin hraða þróun, sem átt hefur sér stað í íramleiðslu, samgöngum og vöru- dreifingu nokkuð breytt eðli þeirra og einmitt í það horf, sem getið var um að framan — að vera jaínframt vörusýningar fyrir almenning, en það hefur líka breytt viðhorfum framleiðandans og þeim aðferðum, sem hann beitir. — Langtum meira er nú vandað til þátttöku en áður og meira fé varið til hennar. Mestöll viðskipti fara nú fram eftir sýnishornum, en segja má, að upprunalega hafi kaupstefnan eða vörusýningin verið lítið annað en árlegur markaður, þar sem mikil viðskipti áttu sér stað beint við almenn- ing, sem gjarnan var þar einnig með eigin afurðir til sölu. Önnur breyting, sem átt hefur sér stað í þróun vörusýninga, er vöxtur sérsýninga. Þetta hefur að sjálfsögðu komið greinilegast í ljós með vörur, sem hafa takmarkaða eða fremur takmarkaða útbreiðslumöguleika, og vekja einungis áhuga tiltölulega fámenns hóps manna. — Kn þessarar tilhneigingar hefur einnig orðið vart í allríkum mæli með vörutegundir, sem hafa mikla út- breiðslu og mikið gildi í almennum neyzluvenj- um, t. d. matvæli ýmiss konar, vefnaðarvörur, húsgögn, búsáhöld, leikföng o. fl. Framleiðendur þessara og fleiri vörutegunda hafa smám saman horfið frá hinum stóru almennu vörusýningum og myndað sérsýningar. I öllum tilfellum þjónar vörusýningin samt þeim tilgangi að vera vettvangur, þar sem kaup- endur og seljendur, hittast. — Jafnvel þegar svo háttar, sem nefnt var að framan, að um mjög sér- hæi'ða framleiðslu er að ræða, þykir oft borga sig að taka þátt í vörusýningum, sem gott orð hafa á sér. Mikill fjöldi vörusýninga er haldinn ár hvert víðs vegar um heim. Sumar þeirra hafa mikið orð á sér og þýðing þeirra fyrir viðskipti viður- kennd. — Af skiljanlegum ástæðum er ekki sama, Sýningardeild Flugfélags íslands í hvaða sýningu tekið er þátt, eða hvernig það er gert. — Margir framleiðendur átta sig ekki á þessu, en snúa vonsviknir heim að sýningunni lokinni og hafa litlum árangri náð. — Það þarf bæði reynslu og hæfileika til að notfæra sér þá möguleika, sem ákveðin vörusýning getur boðið. í fyrsta lagi verður að skoða þátttöku sem hluta af auglýsinga- og söluherfcrð, en ekki sem SKAL DE TiL FLYV ViA REYKJAViK mazMxœnm ípHANÚW fiik œzzsxscnzm Sýningardeild Loftleiða FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.