Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 16
Myndin sýnir hluta af íslenzka sýningarsvæðinu á fiskisýningunni í Kaupmannahöfn árið 1956
Már
LDöntsýningar
Oft er erfitt, sérstaklega nú á dögum, að gera
greinarmun á svonefndum kaupstefnum og vöru-
sýningum, enda mjög algengt að gera þar engan
mun á. Nafnið vörusýning er samt dálítið vill-
andi, þegar það er notað um sýningu muna eða
hluta, sem ekki á að selja og þar sem nafnið
vara eða varningur á bókstaflega ekki við. Nú
tíðkast og mikið sýningar til landkynningar, og
eru þær oft hluti af almennum vörusýningum,
en þar eru venjulega aðeins sýndar myndir, töfl-
ur, línurit o. fl., sem gefur upplýsingar um sögu
og menningu viðkomandi þjóðar, en ekki vörur
í eiginlegri merkingu þess orðs. Má til gamans
Elisson:
og úijluiningur
nefna, að það, sem Norðmenn gerðu sér einkum
far um að kynna á heimssýningunni í Briissel
s.I. ár, snerist um atriðin — hvernig lifum við,
á hverju lifum við, fyrir hvað lifum við?
Sýningar til landkynningar eru einkum ætl-
aðar almenningi, en viðskiptalegt gildi þeirra
skyldi samt. ekki vanmetið.
Hins vegar eru sölusýningar eða kaupstefnur,
sem einkum beinast að kaupsýslumönnum, og
þar sem ætlazt er til að viðskipti geti farið
fram. — Þróunin hefur þó orðið sú, að reynt er
að laða almenning að vörusýningum með ýmsu
móti, jafnframt því sem þær eru skipulagðar með
16
FRJÁLS VERZLUN