Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 24
/
/
Herradeild P & O,
karlmannafataverzlun
Pétur Sigurðsson og Ólaiur Maríusson í nýju verzluninni við Pósthússtræti
Nýlcga var opnuð ný karl-
mannafataverzlun í Pósthússtræti
(í húsinu Austurstræti 14) og eru
þar á boðstólum hvers konar herra-
vörur aðrar en skófatnaður. Eig-
endur hins nýja fyrirtækis, þeir
Pétur Sigurðsson og Ólafur Mar-
íusson, hafa mikla reynslu af þess-
ari tegund verzlunar, og munu þeir
leitast við að lciðbeina viðskipta-
vinnm verzlunarinnar um vöru-
val. Húsnæði verzlunarinnar er
mjög smekklega innréttað, en hvað
mesta athygli vekur þó „kjallar-
inn“ þar sem viðskiptavinirnir geta
skoðað tilbúinn fatnað og mátað í
nýstárlegu og skemmtilegu um-
hverfi.
Pétur Sigurðsscni er fæddur 23.
júní 1918 í Reykjavík. Foreldrar
hans eru hjónin Sigurður Árnason
vélstjóri og Þuríður Pétursdóttir.
Pétur vann frá 12 ára aldri í verzl-
un Haraldar Árnasonar, lengst af
í herradeildinni, eða þar til hann
opnaði sína eigin verzlun.
Olajur Maríusson er fæddur 25.
október 1921 í Reykjavík. For-
eldrar hans eru hjónin Maríus
Ólafsson skáld og Karolína Andr-
ésdóttir. Ólafur vann einnig mjög
lengi hjá Haraldi Árnasyni, eða
frá 11 ára aldri, og var, eins og
Pétur, lengst af í herradeildinni.
Það síðastnefnda var fyrst sett á
b/v Júpiter á stríðsárunum.
Hlutafélögin Júpiter og Marz
reistu fiskverkunarstöð á Kirkju-
sandi i Reykjavík árið 1949. Ári
síðar var bætt við stóru fiskþurrk-
unarhúsi. Næstu árin fór skreiðar-
útflutningur vaxandi, og 1953 létu
fyrirtækin reisa fiskþurrkunar-
trönur í Garðahrauni og Selási. Á
árunum 1954—’59 var byggt
frystihús á Kirkjusandi, og hafa
fiskiðnfyrirtækin þar síðan stöð-
ugt farið stækkandi, þannig að
heildargólfflötur þeirra er nú uni
8.000 m2. Mun þetta eitt bezt
skipulagða fiskiðjuver landsins.
Þegar mest er, vinna hjá Júpi-
ter og Marz á fjórða hundrað
manns, þar af allt að hundrað
á togurunum þremur. Eru þetta
því með stærstu fyrirtækjum á
fslandi. Tryggva hefur oftast tek-
izt að velja sér trausta og ötula
samverkamenn og á samstarfinu
við þá hefur byggzt sú farsæld,
sem fylgt hefur fyrirtækjum hans
til þessa dags. Sumir starfsmenn
útgerðarinnar hafa ekki haft vista-
skipti í 2—3 áratugi.
Tryggvi Ófeigsson kvæntist ár-
ið 1920 Herdísi dóttur Ásgeirs
Þorsteinssonar skipstjóra og konu
hans, Rannveigar Sigurðardóttur.
Börn þeirra eru: Páll Ásgeir hrl.
(kvæntur Björgu Ásgeirsdóttur
Ásgeirssonar forscta), Jóhanna
(gift Jónasi Bjarnasyni lækni í
Hafnarfirði), Rannveig (gift Hall-
varði Valgeirssyni viðskiptafr.),
IJerdís (gift Þorgeiri Þorsteinssyni
lögfr.) og Anna, sem er ógift og
býr hjá foreldrum sínum.
24
FRJÁLS VEKZLUN