Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 14

Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 14
Við nefndarmenn spnrðnmst auðvitað fyrir um það hjá þeim stofnunum og fyrirtækjum, sem við heimsótt.um, hvernig samstarfsnefndirnar hefðu gef- izt í reynd. í Danmörku héldu menn til að byrja með, að því er okkur var sagt, að samvinnunefnd- irnar gætu bókstaflega Ieyst alla hluti og fram- undan blasti við gjörnýting hráefnis og vinnuafls, og að á vinnustöðum myndi upp renna sannkallaður Fróða-friður. En því miður hafa samstarfsnefnd- irnar að ýmsu leyti brugðizt vonum manna. Ahuginn mestur hiú stórum fyrirtaekjum Danska vinnuveitendasambandið efndi nýlega til skoðanakönnunar meðal félagsmanna sinna. Varð árangurinn sá, að einn þriðji aðspurðra var á móti samstarfsnefndafyrirkomulaginu, einn þriðji tók ekki afstöðu til þess, en síðasti þriðjungurinn taldi það gera gagn. Athugun leiddi í ljós, að það var fyrst og fremst í stóru fyrirtækjunum, scm vinnuveitendur töldu, að samstarfsnefndirnar hefðu gert verulegt gagn. Norðmenn hafa ekki látið framkvæma neina kerf- isbundna athugun á því, hvað vinnuveitendur segja um samstarfsnefndirnar, en eftir því, scm Vinnu- veitendasamband Noregs hafði fregnað hjá félags- mönnum sínum, var þar alveg sama útkoman og í Danmörku, þ. e. að í stóru fyrirtækjunum líkuðu mönnum samstarfsnefndirnar vcl og töldu þær gera mikið gagn, jafnvel svo að sumir vinnuveitendur töldu sig ekki geta án þeirra verið. Alveg sama skoðun virtist ríkja hjá alþýðusamböndum Noregs og Danmerkur, j). e. að samstarfsnefndirnar hefðu gert mest gagn í stórum fyrirtækjum. Á Egelund, sem er hcill skammt fyrir utan Kaup- mannahöfn, rekur danska Vinnuveitendasamband- ið alls konar fræðslustarfsemi fvrir félagsmenn sína og fvrir verkstjóra. Vinnuveitendur, ungirsem gaml- ir, geta komizt jrarna á lengri eða skemmri nám- skeið. tg skrifaði hjá mér til gamans, hvað þar hafði verið kennt a fjögurra daga námskeiði, sem vinnuveitendur höfðu vericð á skömmu áður en við komum þangað. Var Jiað meðal annars: Hvaða not mætti hafa af samstarfsnefndunum, túlkun samn- inga, verkstjórn, reglur í sambandi við almenna vinnusamninga, bætt nýting vinnuaflsins (arbejds- studier), gcfnar voru upplýsingar um hagfræðileg efni og hagþróunina í þjóðfélaginu, áformin um Evrópumarkað, tæknileg atriði í sambandi við skrif- stofustörf og svo framvegis. Þá heimsóttum við Esbjerg höjskole, sem verka- Orðsending til lesenda: Ná er liœgt að fá keypta lieila árganga eða einstök hefti af Frjálsri Verzlun frá upphafi, en af nokkrum heftum er upplag Jió mjög tak- markað og verða þau ekki seld ein sér. Þeir, sem eiga gamla árganga, œttu að athuga hvort l>á vantar ekki einstök hcfti, því nú cr tœki- fwrið til að fá það sem á kann að vanta. Gömlum og nýjum kaupendum skal bent á, að hœgt er að fát öskjur utan um Frjálsa Verzl- un, þannig að nú má geyma hana óbundna, en ]>ó á smekklegan hátt, í bókaskápnum. Öslcjur m.eð nafni tímaritsins, sem taka um 7C>—7<S hefti, og kosta kr. 37,í>0, fást í Iiit- fangaverzlun Isafoldar í Rankastradi. _____________________________________________ lýðssamtökin reka. Þar eru einnig alls konar nám- skeið fyrir verkamenn, sérstaklega þá, sem eiga að verða forustumenn í samstarfsnefndunum og trún- aðarmenn á vinnustað. Einnig komum við í skrif- stofur Verkstjórasamtakanna, en verkstjórasamtök- in og vinnuveitendasamtökin hafa mikið samstarf um menntun verkstjóra, og verkstjórarnir halda námskeið sín á Egelund. Eru námskeið fyrir þá að % kostuð af vinnuveitendum og % af verkstjórum. Þá skoðuðum við nokkrar verksmiðjur, m. a. lakk- og málningarverksmiðjuna Sadolin og Holm- blad, Philipsverksmiðjurnar, sem framleiða útvarps- tæki, sjónvarpstæki, perur o. s. frv. og síðast cn ekki sízt Carlsbergverksmiðjurnar, sem allir vita víst nokkurn veginn hvað framleiða. A framan- gréindum stöðum eru samstarfsnefndir, sem starfa með miklum blóma, og var að skilja bæði á fulltrú- uni vinnuveitcnda og starfsfólki, að hin mcsta ánægja ríkti með störf jieirra. Fengum við þarna gott tækifæri Lil að ræða við fulltrúa samstarfs- nefndanna, sem lóku á móti okkur í öllum verk- smiðjunum. Heimsókn til Noregs 1 Noregi heimsóttum við hliðstæðar stofnanir vinnuveitenda og verkamanna eins og í Danmörku og sömuleiðis nokkrar verksmiðjur. Af stórum verk- smiðjum, sem við heimsóttum þar voru t. d. Stand- ardtelefon og Kapelfabrik og Christiania Portland- sementsverksmiðjurnar, en þar vinna eitthvað um þrjú þúsund manns. Þessar verksmiðjur voru að 14 FRJALS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.