Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1959, Síða 18

Frjáls verslun - 01.07.1959, Síða 18
takmark í sjálfu sér, sem ekki þurfi að ívlgja eftir; er ávallt vert að hafa í huga, að vöru- sýning, sem og aðrar tegundir auglýsinga, skapar tækifærin, en ekki viðskiptin sjálf. Sýnendur skyldu þess vegna jafnan. íhuga, að mikilvægt er að notfæra sér þá möguleika til persónulegra sambanda og viðkynningar, sem þátttaka í vöru- sýningu skapar, og nauðsyn þess að geta gefið nægar og góðar upplýsingar um vörur sínar á staðnum, hafa góð sýnishorn og vel og smekk- lega búnar sýnin^ardeildir; þar eins og annars staðar er árangur að miklu leyti kominn undir starfinu og fyrirhöfninni. I stuttu máli má segja, að góður undirbúningur að þátttöku og gott upplýsingastarf meðan á sýningunni stendur séu undirstöðuatriðin, enda þótt þeim sé oft mis- jafnlega sinnt. Erfiðasta starfið er ])ó eftir — að nýta þann árangur, sem náðst hefur. Yfirleitt hafa íslenzkir útflytjendur ekki gefið mikinn gaum að þeim möguleikum, sem þátt- taka í vörusýningum býður upp á. — Nokkur framtakssöm fyrirtæki hafa þó nokkrum sinn- um sýnt vörur sínar á erlendum vettvangi, bæði ein sér og sameiginlega, og þá síðari árin einkum fyrir forgöngu Vörusýninganefndar, en í henni eiga sæti fulltrúar flestra hérlendra framleið- enda, svo og Tðnaðarmálaráðuneytisins. Auglýsingakostnaður þykir óþarfur Ástæðurnar fyrir litlum áhuga íslenzkra aðila á þáttöku í vörusýningum eru sjálfsagt margar, og vil ég reyna að rekja nokkrar, sem ég tel helztar. Með fáum undantekningum eru íslenzkir út- flytjendur ekki miklir auglýsingamenn, svo að það er e. t. v. ekki von, að vörusýningum hafi verið sérstakur gaumur gefinn, fremur en öðrum formum vörukynningar og auglýsinga. Islenzk framleiðsla stendur tæknilega framar- lega á mörgum sviðum, og Tslendingar eru fljótir að tileinka sér ýmiss konar nýjungar. Mikil tilhneiging hefur ávallt verið til þess að líta á framleiðsluaukningu sem lausn flestra eða allra vandamála, án þess að um það sé jafnframt hugsað af verulegri alvöru, að aukin framleiðsla krefst aukinna markaða. Þess vegna er oft litið svo á, að auglýsingar og önnur sölustarfsemi sé óþarfi — og beri sém mest að takmarka þann kostnað, er slíkri starfsemi fylgir. — T»etla geng- ur oft svo langt, að fyrst er lækkað á þessum lið hjá ýmsum fyrirtækjum, ef eitthvað blæs á móti, jafnvel þótt eftirspurn eftir vörum þeirra hafi gengið saman. I flestum tilfellum ætti að fara öfugt að og auka auglýsingar og sölustarf- semi. Ekki er þó hægt að saka litflytjendur eina um það, sem miður fer. Þeir hafa átt við mikla — oftast heimatilbúna — erfiðleika að striða. — Röng gengisskráning, skattpíning, öfugsnúin fé- Eftir sýninguna í Kaupmannahöfn 1956 var íslenzka deildin flutt til Ítalíu og sett þar upp óbreytt í tveimur borgum, Ancona og Parma. Myndin sýnir sýningargesti í Parma skoða íslenzkar niðursuðuvörur lagalöggjöf — allt hefur þetta heft eðlilega þró- un og vöxt fyrirtækja, framleiðslu og sölu. Allir þekkja hina árlegu samninga um rekstr- argrundvöll útflutningsíramleiðslunnar, þar sem samið er mn, að ríkisvaldið skili aftur til hennar einhverju af þeim gengismun, sem af lienni er hirtur. Margir þekkja líka þá tilhneigingu, sem jafn- an vill ríkja í þeim efnum, að skera svokallaðar uppbætur við nögl, og kemur það ekki sízt nið- ur á sjóðum, sem verja ætti til markaðsleitar og auglýsinga. — Þétta, ásamt því hve lítið áhættufé verður fyrirliggjandi hjá fyrirtækjun- mn af siimu ástæðum, veldur þvi, að auðveldasta og áhættuminnsta leiðin er valin í litflutnings- málum, en hún er að auka viðskiptin við vöru- 18 FRJALS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.