Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1959, Side 26

Frjáls verslun - 01.07.1959, Side 26
hluti íbúðareigenda sjálfra málar og hve mikill hluti þeirra lætur málara gera það, og ennfrem- ur þarf liann að vita, hvernig þetta skiptist eftir landshlutum og á annan veg. Vitneskjan þarf ekki að vera mjög nákvæm. Það er þýðingar- mikið að vita, hvort 70% íbúðareigenda mála sjálíir eða aðeins 30% þeirra. Hins vegar myndi auglýsingaherferðin varla vera öðru yísi á grund- velli þeirrar vitneskju, að 28% máluðu sjálfir, en þeirrar, að 32% gerðu það. Með fræðilegum aðferðum, sem hér skal ekki nánar vikið að, er hægt að færa sterk rök að því. 1000—1200 manna úrtak nægi hér á landi til þess að fá áreiðanlega vitneskju um allflest ein- kenni með allri þjóðinni, t. d.: „málar sjálfur“ eða „lætur málara mála“, að því tilskildu, að úrtakið sé rétt. Við þær skoðanakannanir, sem framkvæmdar hafa verið hér á landi eftir aðferð Gallups, hafa úrtökin jjví verið af j)essari stærð. I allflestum tilfellum er, á grundvelli slíks úrtaks, hægt að gefa niðurstöður, sem ekki eru meira en 2—3% óviss, og sú nákvæmni nægir allajafna. Tryggja þarf að „vel sé blandað í pokann“. Það er gert með því að velja úr allri þjóðinni, þannig að hver einstaklingur hafi jafnmiklar líkur til þess að lenda í úrtakinu — til J)ess að verða spurður. Sé unnið með 1000 manna úr- taki, en það samsvarar hér um bil einum hundr- aðasta af öllum fullorðnum íslendingum, þá er tekinn einn af hverjum hundrað af nafnaskrá í Reykjavík, öllum kaupstöðum og öllum sýslum, og reynt að ná til þeirra. Með þessu er úrtakið smækkuð mynd af þjóðarheildinni og skiptist eins og hún eftir búsetu, aldri, kyni og öðru því, sem áhrif hefur á afstöðu manna. Tryggja þarf, að sá, sem spyr, geti „ekki gægzt í pokann“ — j). e. a. s„ að hann geti ekki sjálfur valið þá, sem spyrja skal. Starfsmenn við skoð- anakönnun hafa J>ví fyrirmæli um að spyrja cngn aðra en j)á, sem á úrtaksskránum eru, og að reyna að ná til jæirra allra. Þessi regla er afar þýðingarmikil því að ef t. d. starfsmaður, í stað þess að spyrja mann, sem er á skrá, en er ekki heima í það skiptið, spyr nágrannann, þá getur slíkt auðveldlega valdið röngum niðurstöðum, m. a. vegna þess að maður, sem er mikið heima við er sennilega einnig að öðru leyti frábrugðinn þeim, sem er lítið heima við. Þegar búið er að fá svar frá öllum þeim, sem á skrá eru, og hægt hefur verið að ná til, eru svörin færð á spjöld til vélaúrvinnslu, en svara- eyðublöðunum brennt, því að allt er gert til þess að tryggja þeim, sem j)átt hafa tekið í skoðana- könnun, að óviðkomandi fái ekki vitneskju um svör þeirra. A vélaspjöldin er skráð búseta, aldur, kyn, at- vinna, tekjur o. a„ sem æskilegt þykir að flokka svörin eftir, og með hinum fljótvirku hagskýrslu- gerðarvélum, sem nú eru notaðar, er hægt að flokka og rannsaka úrtakið á allan hugsan- legan hátt, og' með lítilli fyrirhöfn. Hvað geta nú fyrirtæki eða atvinnusamtök spurt um, og hvernig geta þau notfært sér nið- urstöður slíkrar könnunar? Sé um framleiðslu- eða verzlunarfyrirtæki að ræða er hægt að fá nákvæmar upplýsingar um dóm almennings um vörur fyrirtækjanna sjálfra, og auðvitað líka um vörur keppinautanna. Hægt er að fá þýðingar- miklar vísbendingar um árangur auglýsinga- starfsemi og einnig um, hvernig skipuleggja skal slíka starfsemi. Hægt er að leggja uppkast að nýjum umbúðum undir dóm almennings, athuga hvernig viðbrögð hans við nýrri vörutegund myndu vera o. s. frv. Almennt má segja, að skoðanakönnun sé bezta leiðin fvrir fyrirtæki til j)ess að i'á vitneskju um allt j)að, er neytandann snertir, en viðfangsefn- in eru auðvitað eins margvísleg og fyrirt.ækin sjálf og atvinnurekstur þeirra. Kostnaður við slíka skoðanakönnun fer aðallega eftir því, hve mörgum spurningum fyrirtækið vill fá svar við. Kostnaður Það hefir sýnt sig, að ekki þýðir að spyrja meira en 35—40 spurninga alls í sömu lotu. Verði spurningarnar fleiri gefast margir upp við að svara þeim, enda fara frá 20 upp í 40 mínút- ur í slíkt viðtal. Þar sem heildarkostnaður við skoðanakönnun er um 70—80 J)úsund krónur, verður kostnaður á hverja spurningu um tvö til þrjú þúsund krónur eftir fjölda þeirra. Nú í sumar verður aftur framkvæmd skoð- anakönnun á landsmælikvarða. Aðeins er búið að ákveða tuttugu spurningar, þannig að enn er hægt að bæta nokkrum við. Hefðu atvinnufyrir- tæki eða félagssamtök áhuga á að fá svar við einni cða fleiri spurningum, myndi greinarhöf- undur með ánægju gefa allar upplýsingar, er að gagni mættu koma. 2G F H J Á L S V K H Z L U N

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.