Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1961, Blaðsíða 12

Frjáls verslun - 01.09.1961, Blaðsíða 12
Sveinn S. Einarsson, verkfræðingur: Jarðgufuorkuver við Hveragerði Talið er, að rafmagnsnotkun erlendis um það bil tvöfaldist á hverjum 10 árum. Hér á landi mun þró- unin að undanförnu hafa verið jefnvel enn örari. Þetta þýðir, að tíminn milli þess að byggðar eru nýjar aflstöðvar styttist, og við íslendingar nálg- umst það óðum að þurfa að vinna að virkjunar- framkvæmdum að staðaldri. Nú þegar þui'fum við að vinna samtímis að rannsóknum og undirbún- ingi virkjana á mörgum stöðum, til þess að jafnan liggi fyrir nægilega greinargóðar upplýsingar fyrir þá aðilja, sem ákvarðanir taka um það, í hvaða virkjun skuli ráðizt hverju sinni. Um þessar mundir cr um ])að rætt, að eitt af næstu virkjunarskrefunum á Suðvesturlandi kunni að verða bygging 15.000 kw jarðgufuorkuvers við Hveragerði, er síðar yrði stækkað upp í 30.000 kw, ef til kemur. Gerðar hafa verið kostnaðaráætlanir um stofnkostnað og rekstrarkostnað þessarar stöðv- ar, og hafa þær leitt í ljós, að hún megi stórt á litið teljast samkcppnisfær við vatnsaflsstöðvar af svipaðri stærð, þótt við tiltölulegar hagstæðar að- stæður sé miðað. En á margt fleira ber að líta, og ekki er óeðlilegt að margur spyrji, hvort nokkrar sérstakar ástæður séu til þess að virkja jarðhita til raforkufram- leiðslu í þessu landi hinna mörgu fossa og fall- vatna. Áður en reynt verður að svara þeirri spurningu, er rétt að líta á reynslu annarra þjóða af raforku- framleiðslu með jarðhita, og ennfremur að gefa les- andanum nokkra hugmynd um það undirbúnings- starf, sem unnið hefur verið hér á landi og liggur að baki hugmyndinni um jarðhitaorkuverið. Framleiðsla raforku með jarðgufu er ennþá mjög fágæt starfsemi, þar eð rafmagn er í dag aðeins framleitt í þremur löndum á þennan hátt, þ. e. í Ítalíu, Nýja Sjálandi og Bandaríkjunum. Reynslan, sem fengizt hefur í þessum löndum, er hins vegar ákaflega hagstæð, og fer áhuginn á þessari orku- vinnslu hraðvaxandi, eins og skýrt kom í ljós á ný- afstaðinni ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Róma- borg um nýjar orkulindir, þar sem hagnýting jarð- hitans var eitt af ])remur aðalumræðuefnum. Jarðhitaraforkuver hafa starfað í stórum stíl við Larderello á Italíu um 30 ára skeið. í dag er sam- anlagt afl uppsettra véla þar um 350.000 kw, og rafmagnsframleiðslan yfir árið í þessum stöðvum nemur um 2 milljörðum kílówattstunda. Til sam- anburðar má geta þess, að uppsett vélaafl allra rafstöðva landsmanna var á sl. ári um 500 milljón kílówattstundir. Jarðgufuaflstöðvarnar við Larder- ello framleiða þannig árlega um fjórum sinnum meiri raforku en nemur allri raforkuframleiðslu Is- lendinga. Raforkan frá Larderello er notuð við rekstur ríkis- járnbrautanna á Italíu og seld á 3 lírur eða tæplega 21 eyri á kílówattstund. Engum, sem séð hefur Larderello, dylst, að hér hlýtur að vera um mjög ábatasama starfsemi að ræða, enda. munu stöðv- arnar vera byggðar algjörlega fyrir eigið fé, og fyrir- tækið er nú að endurbyggja bæinn með mjög ný- tízkulegu sniði. Um rekstraröryggi stöðvanna er það gefið upp, að stærsta stöðin í Larderello, sem byggð var 1949 og er um 100.000 kw, hafi gengið með fullum af- köstum rúmlega 98% af tímanum, seni liðinn cr frá því hún var tekin í notkun. Árið 1958 var tekin í notkun 09.000 kw jarð- gufuaflstöð í Wairakei á nyrðri eyju Nýja Sjá- lands. Eftir þeim fregnum, sem þaðan liafa borizt, hefur rekstur stöðvarinnar gengið mjög vel, og unn- ið er nú að því að stækka stöð þessa upp í 192.000 kw. Um áramótin 1902—’03 er áætlað að stöðin fullnægi um 20% af raforkuþörf eyjarinnar. í 12 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.