Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1961, Blaðsíða 13

Frjáls verslun - 01.09.1961, Blaðsíða 13
Gufuraforkustöð í Larderello á Ítalíu Wairakei eru aðstæður að mörgu leyti líkari því, sem gerist á jarð- hitasvæðum hér á laudi, heldur en í Larderello, og vitað er, að á Nýja Sjálandi hefur verið unnið mjög merkilcgt rannsóknarstarf í jarðhitamálum. Því miður hefur enginn íslendingur ennþá átt kost á ]>ví að heimsækja jarðhitasvæð- in á Nýja Sjálandi og komast í bein kynni við hið eftirtektar- verða starf, sem þar hefur verið unnið. Loks má geta þess, að á sl. ári var 12.500 kw jarðgufuaflstöð tek- in í notkun í Geysers Valley skammt norðan við San Francisco í Kaliforníu. Ilefur rekstur þcirr- ar stöðvar gengið að óskum, og er undirbúningur hafinn að stækk- un hennar. Þessi dæmi sýna, að framlciðsla raforku með jarðgufu fer nú þcg- ar fram í mjög stórum stíl í þeim löndum, sem lengst eru komin í þessari grein, og að hún virðist ekki einungis vera mjög hagkvæm fjárhagslega, heldur fullnægja ýtrustu kröfum um rekstraröryggi, sem gera verður í rekstri almenn- ingsrafstöðva. Haustið 1926 fluttu þeir Steingrímur Jónsson, raf- magnsstjóri, og Þorkell Þorkelsson, veðurstofustjóri, erindi á fundi Vcrkfræðingafélags íslands um notk- un hvcraorku. í erindi sínu lýsti Steingrímur bor- unum fyrir jarðgufu og virkjun hennar til raforku- framleiðslu við Larderello á Italíu, og benti fyrstur manna á nauðsyn þess að hefja boranir í rann- sóknaskyni á jarðhitasvæðum hér á landi. Þetta munu vera fyrstu umræðurnar, sem hér hafa farið frain, um þessi mál. Þær eru ekki sízt minnisverðar fyrir það, að þarna varpaði þáverandi forsætisráðherra, Jón Þorláksson, fram þeirri spurn- ingu, „hvort ckki mætti fullnægja hitunarþörfinni í Rcykjavík og Hafnarfirði með því að veita þang- að heitu jarðvatni“. Jón svaraði þessu sjálfur á næsta fundi félagsins mánuði síðar, þar sem hann flutti fyrirlestur um Hitaveitu Reykjavíkur og komst að eftirfarandi niðurstöðu: „Hér er hvorki að ræða um skýjaborgir né fjarlæga framtíðar- drauma, heldur er þetta næsta verklega viðfangs- efni Reykjavíkurbæjar“. Hugmyndin um framleiðslu raforku mcð jarð- gufu hérlendis var ekki tímabær um þessar mundir og hcfur í rauninni ekki orðið það fyrr en nú, eins og síðar verður vikið að. Málinu hefur þó jafnan verið haldið vakandi af íslenzkum verkfræðingum innan félags þeirra og utan, og koma þar margir menn við sögu. Á meðan hefur hagnýting jarðhita þróazt ört hér á landi á öðrum sviðum. Um ])að bil fjórði hver íslendingur hefur nú afnot af hitaveitu, um 100.000 m* af gróðurhúsum og nálega 80 sundlaugar eru í dag hitaðar upp með jarðhita. Þessi orkulind hefur því nú þegar stórkostlega ])jóðhagslega þýðingu, meiri að tiltölu en í nokkru landi öðru, og menn er farið að dreyma um að nota jarðhitann í sam- bandi við iðnaðarstarfsemi og jafnvel sem grund- völl nýrra atvinnugreina. Til þessa hafa íslendingar nær eingöngu tekið lághitasvæðin í notkun (þ. e. svæði þar scm hitinn er 100° C eða lægri). í landinu eru hins vegar mörg jarðgufusvæði, þar sem hægt verður að vinna vatn eða gufu með allt upp í 200° hitastigi. Von- irnar um fjölbreyttari notkun jarðhita heldur en nú er hér á landi eru ekki sízt tengdar þessum svæð- FRJÁLS VERZLUN 13

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.