Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1961, Síða 20

Frjáls verslun - 01.09.1961, Síða 20
Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri: Avarp við opnun Reykjavíkurkynningar 1961 Reykjavík er ungur bær, reistur á fornum grunni. Hún er þrí-einn bær á veraldarvísu. Hún er elzti sögustaður landsins, þar sem stóðu „helg- ar höfuðtóttir“ hins fyrsta landnámsmanns. Hún varð löngu seinna, á átjándu öld, miðstöð nýs atvinnulífs og nýrrar bæjarmenningar. Enn síð- ar varð hún, og er enn, þjóðlegur, íslenzkur höf- uðstaður. Þegar Ingólfur Arnarson setti hér öndvegis- súlur sínar fyrir nær 1100 árum, var nýju landi bætt í víðlent, norrænt víkinga- og siglingaveldi og átti enn eftir að stækka héðan. Síðan hafa rrki risið og stórveldi hrunið, menn þjáðst og konur elskað, auður safnazt og farið forgörðum, þjóðir glatazt og risið til at- hafna í stórhug. Reykjavík hefur verið tákn athafnanna og stórhugarins í íslenzkri sögu síðustu 175 árin. Flestar nýjungar, sem breytt liafa svip og nytjum landsins og lífskjörum fólksins, eru upp- runnar í Reykjavík eða í sambandi við hana. Svo hefur verið allar götur frá því Skúli fógeti og Magnús Gíslason og félagar þeirra lögðu hér grundvöllinn og Eggert Olafsson festi forna sögu- frægð og landnámshelgi við þennan nýja, óráðna stað, sem mætti óvild og vantrausti. Hér var stofnað til nýrra fiskveiða og ís- lenzkra utanlandssiglinga, grundvallaður ís- lenzkur iðnaður og frjáls, íslenzk verzlun. Hér hófst vísir að bankastarfsemi með stofnun inn- lánsdeildar við Hólmsverzlun 1783. Jafnvel ís- lenzkur verzlunarfáni var gerður hér í lok 18. aldar. Bókmenntir hófust hér helzt með Sigurði Pét- urssyni. Bjarni Thorarensen lagði hér hönd að leiksýningum. Sveinbjörn Egilsson vann hér fræðistörf. Jónas Hallgrímsson orti hér kvæði. Jón Arnason safnaði hér þjóðsögum sínum víðs vegar að. Síðan kom hvert öndvegisskáld af öðru og fræðimenn. Reykjavík varð skólabær og höf- uðstaðargildi hans var íullkomnað með endur- reisn Alþingis. Margt hefur breytzt. En eitt hefur staðið stöð- ugt, máttug og mild fegurð bæjarstæðis Reykja- víkur og umhverfisins. Elztu sagnaritarar okkar trúðu því að goðavald hefði vísað fyrsta land- námsmanninum til Reykjavíkur. Öldum síðar sagði merkur erlendur ferðamaður að bæjarstæði Reykjavíkur væri valið af guðlegri forsjón, ekki síður en staðir Aþenu og Rómar, og útlenzkur listamaður, sem sigldi hingað í fyrsta sinn, sagð- ist vera komin á fegurstu liöfn heimsins. Fegurð fjallahringsins og hafsins er stórbrotin, litauðug og mjúk, og yfir bænum stendur Esjan vörð í tign sinni og trúfesti. En Reykvíkingar hafa oft í ráðstöfunum sín- um gleymt því að taka fullt tillit til þeirrar feg- urðar hafs og lands, sem þeim er gefin. Sú fegurð leggur þeim skyldur á herðar, þær skyldur að gera mannvirki Reykjavíkur svo úr garði að þau sæmi fegurð bæjarstæðisins og lifandi sam- ræmi verði milli náttúrunnar og verka marin- anna. Mannvirki Reykjavíkur — stundum rislág, en oft stór — hafa einkennt bæinn og með þeinr óþreytandi og framsækið athafnalíf. Þær atlrafn- ir hafa smám saman breytt litlu, fátæku þorpi í hlutfallslega mjög stóran höfuðstað. Þrátt fyrir mikinn og ágætan vöxt. bæjarins, ber hann samt enn sums staðar svip hins hálf- byggða bæjar, og oft er fegurra og snyrtilegra innanhúss en utan. Og nefna má nýtt landnám bæjarmanna í sumarhúsum víðs vegar um ná- grennið. Þó að Reykvíkingar liafi áhuga á sögu sinni og þeim fremur fáu gömlu minjum, sem til eru, þá er það eitt höfuðeinkenni á reykvískum anda og hugsunarhætti að vera aldrei bundinn því 20 FRJÁLS VF.RZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.