Frjáls verslun - 01.10.1968, Qupperneq 23
FRJALS VERZLUN
23
VALUR VANDAR
VÖRUNA
Sultur * Avaxtahlaup
IUarmilaði Safir
IVIatarlitur Sósulitir
Ediksýra Borðedik
Tomatsósa Issósur
- Sendum um allt land -
VALUR - EFNAGERÐ
BDX 1313 SÍMI 4D795 REYKJAVÍK
fasteignamati, sem sam-
svarar 375 ára afskriftar-
tíma, ef fasteignamatið er
talið vera 1/15 hluti raun-
verulegs kostnaðarverðs.
Augljóst er því, að afskrift-
ir af þessum tegundum
fasteigna er algjör hégómi
og að fyrirtæki endur-
heimta fjármagn sitt seint
í gegnum slíkar afskriftar-
reglur.
Augljóst er því, að núver-
andi afskriftarreglur
tryggja ekki fyrirtækjum,
að þau geti endurheimt
fjármagn sitt á þann hátt,
að fjármagnið viðhaldi
kaupmætti sínum og hljóta
því fyrirtæki jafnan, við
núverandi aðstæður, að
tapa fjármagni, ef miðað
er við raungildi fjármagns-
ins.
Hitt er svo annað mál, að
fyrirtæki geta hagnazt
krónulega við sölu á eign-
um sínum sökum þess, að
þessar eignir eru síðar
seldar gegn greiðslu í verð-
minni gjaldmiðli og kemur
þannig fram krónulegur
hagnaður, sem hins vegar
mun sjaldnast svara til
verði’ýrnunar gjaldmiðils-
ins, nema í sérstökum til-
vikum sé. Skattalega séð
hefur verið reynt að firra
bæði fyrirtæki og einstakl-
inga beinu tjóni við sölu
eigna með því að undan-
þiggja slíkan „söluhagnað"
bæði fasteigna og lausa-
fjár, skattlagningu, ef um
eignarhald er að ræða til
ákveðins tíma.
2. Tekjuafgangur:
Veigamesta leiðin til fjármagns-
myndunar hjá félögum samkvæmt
gildandi lögum er byggð á tekju-
afgangi félagsins. Um skattlagn-
ingu tekjuafgangs af hlutafélög-
um gildir nú sú regla, að 25%
tekjuafgangs er heimilt að leggja
í varasjóð og er hann undanþeginn
opinberri skattlagningu, en af-
gangurinn, 75%, skattleggst sam-
kvæmt venjulegum reglum og
greiðist af því allt að 50% í tekju-
skatt og tekjuútsvar. Það sem þá
verður eftir af tekjuafgangi, er síð-