Frjáls verslun - 01.01.1971, Síða 9
FRJÁLS VERZLUN NR. 1 1971
ISLAND
9
Sveitarfélögin
5-10% tekna
til eigin
ráðstofunar
Fjármálaleg samskipti ríkis
og sveitarfélaga eru nú til end-
urskoðunar, og vinnur að því
sérstök fjögurra manna nefnd,
skipuð ráðuneytisstjórunum
Hjálmari Vilhjálmssyni og Jóni
Sigurðssyni og formanni og
framkvæmdastjóra Sambands
ísl. sveitarfélaga, Páli Líndal
borgarlögmanni og Magnúsi
Guðjónssyni. Nefnd þessi hef-
ur lagt fram drög að nýrri
verkaskiptingu milli aðila, þar
sem gert er ráð fyrir mikilli
einföldun, einkum með hreinni
skiptingu á verkefnum í stað
hins almenna samkrulls, sem
nú tíðkast um flesta hluti í hin-
um fjármálalegu samskiptum
aðilanna.
Samkrullið hefur þróazt
smátt og smátt í áratugi, og er
löngu orðið allt of fiókið og
þungt í vöfum. Kveður svo
rammt að því, að sveitarfélög-
in hafa nær ekkert fjármagn
til frjálsrar ráðstöfunar, alls
staðar kemur ríkið við sögu
meira eða minna, og er þetta
báðum til verulegs óhagræðis
og vafalítið dýrara en þvrfti
að vera. Hvað sveitarfélögin
snertir er það vitaskuld erfið-
ur þröskuldur, að í raun hafa
þau aðeins 5—10% af tekjum
sínum til algerlega sjálfstæðra
athafna. Um 50% fara til lög-
bundinna og algerlega óhagg-
anlegra útgjalda, um 25% til
annarra lögbundinna verkefna
og um 25% til samningsbund-
inna verkefna. Þar af eru þó
aðeins 5—10% alveg frjáls,
eins og fyrr segir. Þetta þýðir
fyrir sveitarfélög, eins og
Kópavog og Akureyri, að þau
hafa e. t. v. 7.5—15.0 milljónir
til frjálsrar ráðstöfunar á ári.
Og sem dæmi um það, hversu
þetta fyrirkomulag er úr sér
gengið, má nefna, að sveitar-
félögin greiða löggæzlukostn-
að. þótt þau hafi annars ekkert
yfir löggæzlunni að segja.
Raunar er fyrirkomulag lög-
gæzlu í landinu eitt þeirra
mála, sem hvað lengst er á eft-
ir samtímanum, enda sniðið við
fornar aðstæður.
Samhliða endurskoðun á
verkefnaskiptingu milli ríkis-
ins og sveitarfélaganna, er
rætt um framhald á uppbygg-
ingu landshlutasamtaka sveit-
arfélaganna, sem nú hafa ver-
ið stofnuð alls staðar, svo og
um að færa lögsagnar- og dóm-
þingsumdæmi í nýjan búning
til samræmis við fjórðungs-
samtök sveitarfélaganna og ger-
breyttar þjóðfélagsaðstæður.
Af réttsýnum aðgerðum í þess-
um efnum má vafalaust gera
ráð fyrir stórvægilegri og mik-
ilvægri einföldun og hagræð-
ingu í sveitarstjórnarmálum,
löggæzlu og dómsstörfum.
Vissulega eru byltingar-
kenndar umbætur af því tagi,
sem hér er um að ræða, ætíð
vandráðnar og alls ekki sárs-
aukalausar. Við ákvörðun um
ýmis verkefni hins opinbera,
þarf til dæmis mjög að gæta
munar landshátta og mann-
fjölda. Og gjörbreyting á lög-
gæzlu- og dómþingsumdæmum
og þá væntanlega einkum sam-
eining smárra umdæma og
breytingar á umdæmamörkum,
hljóta að koma við ýmsa. En
slíkt er óumflýjanleg fórn, ef
gæta á sjálfsagðrar og nauð-
synlegrar hagsýni og réttsýni
í ljósi nútíðar og næstu fram-
tíðar.
Stjórnun
IMámskeið á
vegttm ríkisins
að hefjast
Þann 18. jan. nk. hefst nám-
skeið í stjórnun á vegum iðn-
aðarráðuneytisins undir nafn-
inu „Stjórnunarfræðslan —
kynningarnámskeið um stjórn-
un fyrirtækja“. Stjórnunarfé-
lag íslands annast skrifstofu-
hald fyrir námskeiðið, og verð-
ur það í húsnæði félagsins að
Skipholti 37. Þriggja manna
stjórn, skipuð af iðnaðarmála-
ráðherra, veitir námskeiðinu
forstöðu. f stjórninni eru Jak-
ob Gíslason orkumálastjóri og
formaður Stjórnunarfélags ís-
lands, Árni Vilhjálmsson pró-
fessor við Viðskiptadeild H. í.
og Sveinn Bjömsson fram-
kvæmdastjóri Iðnaðarmála-
stofnunar íslands. Forstöðu-
maður hefur verið ráðinn
Brynjólfur I. Sigurðsson lekt-
or við Viðskiptadeild H. í.
Námskeið þetta mun standa
160 kennslustundir, auk æfinga
í lokin. Hið opinbera stendur
að nokkru undir kostnaði, en
þátttökugjald er 15 þús. kr.
fyrir hvern þátttkanda og eru
öll gögn þá innifalin. Þeir þátt-
takendur, sem stunda námið af
kostgæfni. fá að lokum ski'l-
ríki til viðurkenningar á námi
sinu.
Upphaf að meiru. Að tilhlut-
an Stjórnunarfélags íslands,
starfaði á sínum tíma nefnd,
skipuð af menntamálaráðherra,
og gerði hún tillögur um tilhög-
un fræðslustarfsemi á sviði
stjórnunar. Er námskeið þetta
hið fyrsta, sem haldið er í
framhaldi af þeim tillögum. og
var því hrundið á skv. tillögu
iðnaðarráðherra í ríkisstjórn-
inni við inngöngu fslands í
EFTA. Tilgangur námskeiðsins
er skilgreindur þannig „að
gefa starfandi stjórnendum og
þeim, sem takast á hendur for-
ystuhlutverk í stjórnun fyrir-
tækja, kost á almennri kynn-
ingu á undirstöðuatriðum í nú-
tímafræðum f yrirtækj arekstr-
ar“. Að því er formaður stjórn-
ar námskeiðsins, Jakob Gísla-
son, hefur tjáð FV, er ætlunin
Jakob Gíslason og Brynjólfur Sigurðsson,