Frjáls verslun - 01.01.1971, Blaðsíða 33
FRJÁLS VERZLUN NR. 1 1971
GREINAR OG VIÐTÖL
33
menn sem stóðu dag eftir dag
í stiganum við skrifstofuna
bara til þess að fá NEI. Ég hef
látið það fjúka fyrr, að í þessu
ráði voru menn sem ekki höfðu
minnstu þekkingu á Því sem
þeir voru að gera — og þar
voru skiptin ekki alltaf hrein.
Við byrjuðum samtimis að
byggja, ég og Sambandið. Þeir
byggðu sitt óhindrað á rösku
ári, en ég var látinn hangsa
með mitt, meira að segja
dæmdur í tukthús og sektir
fyrir of mikla athafnasemi í
sambandi við bygginguna!
Hvernig stóð á sektinni?
Ég var með leyfi í höndun-
um, sem mátti hártoga. Ég var
dæmdur í 2.500 króna sekt, og
ef ég greiddi ekki sektina bar
mér að sitja inni í 40 sólar-
hringa, sem var óvenju þung-
ur dómur — líklega hefur við-
komandi dómara ekki fundizt
ég bera nógu mikla respekt
fyrir sér og málsatvikum, a.
m. k. lét ég hann heyra álit
mitt á vinnubrögðum hins op-
inbera.
Þarna hefur þú kannski lent
í einna mestum erfiðleikum?
ÞÁ VAR GREINILEGA
KOMIN LYKT AF MÉR...
Já, svokallaðir fjármála-
menn voru farnir að gefa mér
góðar gætur og bjóða mér að-
stoð, svo að það var greinilega
komin lykt af mér. Blessuð
dýrtíðin hefur síðan lagað
þetta, enda þótt maður sé bú-
inn að kaupa þetta allt aftur
af ríkinu í formi eignaskatts
og stóreignaskatts í tvígang, þá
hefur þetta nú samt bjargazt.
LOKAÐIST FYRIR VIÐ-
SKIPTIN VIÐ ÞÝZKALAND.
Ef við snúum okkur aftur að
þeim tíma þegar stríðið byrj-
ar, þá lokaðist fyrir öll við-
skipti við Þýzkaland og það
var ekkert annað að gera en
reyna fyrir sér á öðrum víg-
stöðvum. Þá byrjaði ég að selja
garn, og ég komst í samband
við Sigfús í Heklu, sem hafði
þá góð sambönd í Ameríku.
Hjálmar Finnsson útvegaði vél-
ar fyrir Sigfús og mig og var
feikilega duglegur við það
verk. Allt sem hann náði í
seldum við samstundis.
Var ekki dálítið skrýtið að
verzla á stríðsárunum þegar
peningaveltan var svona mik-
il en erfitt að ná í vörur?
Það var eiginlega ekkert
sport í að verzla á þeim tíma.
JiorpmM&foiífr
W
JIorpmM&Mli