Frjáls verslun - 01.01.1971, Blaðsíða 31
FKJALS VERZLUN NR. 1 1971
GREINAR OG VIÐTÖL
íir
31
Guðmundsson alþingismaður
kom í Fjárhagsráð, fór hann
fram á að ég sýndi honum
hvað ég hefði flutt mikið inn
árinu áður, og þegar hann sá
það, raknaði úr með leyfin hjá
mér. Annars var ekki farið
efttir neinum skýrslum. Hann
byrjaði fyrstur á því að
þyggja UPP einhvern kvóta.
Ég get ekki borið Skúla aðra
sögu en þá að hann virtist
vilja vera mjög sanngjarn.
Jónas frá Hriflu hélt því fram
á þessum árum að innflutningi
mætti beina í aðrar áttir með
haftaskipulaginu og það hefur
sennilega verið gert.
ÞÁ var það stríðið.
Svo kemur stríðið og þá
lokast Þýzkaland. Ég man að
fyrsta stríðsdaginn komu hing-
að tvö þýzk skip, og ég fékk
skeyti frá PFAFF þar sem
sagði að um borð í öðru skip-
inu, sem átti upphaflega að
fara til Suður-Ameríku væri
71 saumavél, sem ég mætti
hirða. Af bölvaðri skyldurækni
fer ég með skeytið til Eysteins,
sem þá var fjármálaráðherra,
og hann liggur á þessari um-
sókn minni þar til skipið er
flúið. Þetta skip komst héðan
í noi’ska landhelgi og þaðan
'heim. Svo kom aftur skeyti,
þar sem sagt var að vörunum
hefði verið skipað hér á land,
en það reyndist ekki rétt. Ég
fór með skeytið til þýzka kon-
súlsins til að gera fyrirspurn
um hvað hefði orðið af vélun-
um. Ég man að hann hoppaði
upp úr sætinu, þegar hann sá
helv.... skeytið, og sagði:
„Því komuð þcr ekki strax
hingað með skeytið, það var
þetta skeyti sem mig vantaði
Ui að geta losað úr skipinu.“
Ég var auðvitað hálf sar yí'ir
því að missa af 71 vél, sem ég
mátti eiga, en kannski hefur
þetta orðið til góðs, því ef ég
helði tekið vélarnar heiði ég
sennilega lent á svörtum lista
sem einhver Þjóðvei’jaagent.
Hvenær snýrðu þér eingöngu
að fyrirtæki þínu?
Ég er hjá Björgúlíi til árs-
ins 1935, en þá næxir Marteinn
Einarsson í mig. Eg sem þann-
ig við hann, að ég hafi tima
fyrir minn einkarekstur frá kl.
12 til 4 á daginn og megi
skreppa frá í vinnutíma. Hann
gekk inn á þetta og ég var hjá
honum sem verzlunai’stjóri
fram til ársins 1942. Það ár
reikna ég mig út skattalega og
fann þá út að ég borgaði rúm-
lega helming af laununum hjá
Mai’teini, sem voru ágæt, í auk-
inn skatt. Þá var mér nóg boð-
ið. Verzlunin var lika farin að
ganga vel, enda var ég búinn
að byggja á Skólavöi’ðustígn-
um.
Hvenær byrjaðir þú á þeirri
byggingu?
KEYPTI HÚS OG LÓÐ
FYRIR 50 ÞÚSUND....
REIF OG BYGGÐI.
Nú skal ég rekja þá sögu.
Árið 1933 er auglýst til sölu
húseignin að Laugavegi 4. Ég
var búinn að leggja það niður
fyrir mér að Bergstaðastræti
7 væri enginn framtíðarstaður
fyrir verzlun, og ég vildi ná í
góðan stað, ef ég, eins og ég
RLitlar, hentugar hjónaíbúðir með
g húsgögnum til leigu um lengri
eða skemmri tíma. Einnig eins og
tveggja manna herbergi. Kœli-
skápur, útvarpstæki og dyrasími
fyrir hendi á öllum íbúðum og
herbergjum, og aðgangur að eld-
húsum. Ennfremur sjónvarps-
tæki, ef óskað er.
— GUEST HOUSE —
£Ei
Smiðjustíg 11 — Sími 15145
ÖLL PRENTUN FLJÓTT OG
VEL AF HENDI LEYST.
OFFSETPRENT HF.
Hrólfur Benediktsson
LEIÐAIMDI
IVIAT- OG
IMÝLEIMDUVÖRIJ-
HEILDVERZLUÍM
SÍÐAIM 1912
Nathan & Olsen hf.
Ármúla 8, Reykjavík.
Sími 81234.
Á kaffistofunni hjá Pfaff er oft glatt á lijalla. Lárus Blöndal, bók-
sali, er þar fastagestur; hann situr lengst til vinstri, síðan. Magnús
og þá Kristmann.