Frjáls verslun - 01.01.1971, Qupperneq 13
FRJÁLS VERZLUN NR. 1 1971
13
LTLÖIXID
Efnahagsmál
vaxandi vandamál
Verðbólga
Verðbólga fer nú ört vax-
andi í iðnaðarríkjum heims.
Óttast margir hagfræðingar að
ef ekki tekst að stöðva hana,
verði ekki komizt hjá alvar-
legri heimskreppu fyrr eða síð-
ar.
Nefnd hagfræðinga hefur ný-
lega sent frá sér skýrslu, sem
gerð var fyrir OECD, þar sem
réðlagt er að grípa til mjög
róttækra ráða í baráttunni
gegn verðbólgunni. Ráðleggja
þeir að draga úr hagvexti í
iðnaðarlöndunum og að láta
atvinnuleysi vaxa fram úr því
sem nú er.
Skýrsla þessi var birt 20.
nóvember síðastliðinn og urðu
strax um hana miklar deilur.
Eins og kunnugt er hafa flestar
ríkisstjórnir vestrænna ríkja
þá steifnu að halda atvinnu-
leysi sem lægstu og ýta undir
sem örastan hagvöxt. Telja
flestar þessar ríkisstjórnir það
pólitískt óframikvæmanlegt að
framkvæma þessar ráðlegging-
ar.
Þá hafa verkalýðsfélögin
mótmælt stefnu þeissari ákaft,
enda myndi hún koma harðasl
niður á meðlimum þeirra, sem
mega vart við því. Sá þekkti
eltingaleikur kaupgjalds og
verðlags, sem er orðinn að hefð
ihér á íslandi, er nú að breiðast
í vaxandi mæli um iðnaðarlönd
hins vestræna heims, og halda
sérfræðingar OECD því fram,
að það sé skárra að leggja eitt-
hvað á sig til að ná tökum á
verðbólgunni, en að verða
henni að bráð með kreppu.
Á fyrri hluta sjöunda ára-
tugsins var verðlag stöðugt í
Bandaríkjunum, Vestur-Þýzka-
landi og Japan, sem hafði þau
áhrif að halda niðri verði á
heimsmarkaði og þannig al-
mennri verðbólgu. Nú hefur
orðið á þessu breyting og öil
þessi ríki verða að horfast í
augu við verulega verðbólgu.
Ekkert hinna þróuðu iðnaðar-
ríkja er nú laust við verðbólgu.
í sumum löndum Vestur
Evrópu er vinnuaflsskortur,
eins og í Vestur-Þýzkalandi,
þar sem vantar níu starfsmenn
fyrir hvern sem er skráður at-
vinnulaus. Þeir sem eru á at-
vinnuieysisstyrk eru nær allir
óstarfhæfir.
En í Bretlandi og Bandaríkj-
umum er að gerast annað, sem
ek'ki kemur heim við kenning-
ar flestra hagfræðinga. Bæði
verðbólga og atvinnuleysi fara
vaxandi. Veldur þetta áhyggj-
um, en ekki er ljóst hvernig
á að leysa þennan vanda.
LITLU ÞJÓÐIRNAR VINNA
GEGN VERÐBÓLGUNNI
Litlu þjóðirnar vinna af
kappi gegn verðbólgunni, á
meðan stórþjóðir, eins og Bret-
ar, Bandaríkjamenn, Frakkar
og Þjóðverjar, eru að ræða
hvað gera skuli. Þannig segir í
U.S. News and Worid Report
28. desember.
Er þar m. a. skýrt frá verð-
stöðvuninni á Íslandi. Einnig'
segir að í Noregi sé verðstöðv-
un, launahækkanir bannað ut-
an gildandi samninga um miðj-
an nóvember og að dregið hafi
verið úr lánsfjármagni. Þá er
minnst á verðstöðvun í Svíþjóð
og Danmörku og taldar líkur
á að Danir innleiði eitthvert
verðlagseftirlit þegar verð-
stöðvun lýkur.
í Finnlandi hafa verkalýðs-
félögin, bændur og atvinnu-
rekendur samið til langs tíma
um ráðstafanir til að halda
niðri verðlagi. Hafði Kekkon-
en forseti forgöngu um þá
samninga. Núverandi sam-
komulag er 1 gildi til marz
1972. Með slíkum samningum
hefur Finnum tekizt að halda
árlegri verðbólgu innan við
3% á síðustu tveimur árum,
sem er lægst í Evrópu.
Hollenska stjórnin tilkynnti
í miðjum desember að hún
myndi hafa eftirlit með launa-
hækkunum á fyrri hluta þessa
árs og belgíska stjórnin hefur
tekið upp strangara verðlags-
eftirlit á fyrstu þrem mánuðum
ársins. Á írlandi hafa laun
hæst launuðu ríkisstarfsmanna
verið lækkuð um minnst 10%
og sérstök fríðindi þeirra, sem
lúta að fjármálum, verið af-
numin. Er búist við að lög-
festar verði reglur um hækk-
anir á vörum og alm. launum.
Hinum megin á hnettinum
var sett verðstöðvun á Nýja-
Sjálandi, um tveggja mánaða
skeið, til að gefa stjórninni
tíma til að móta nýja stefnu
í efnahagsmálum, þar sem
hækkanir verðlags og kaup-
gjalds hafa skipzt á.
Hvort þessar hörðu aðgerðir
bera árangur er ekki víst.
Margir efnahagssérfræðingar
telja að tímabundnar verð-
stöðvanir geti verið gagnlegar
við að berjast við verðbólguna,
ef þær eru gerðar á réttum
augnablikum. Telja þeir mik-
ilvægt í því sambandi, að vöxt-
ur í viðskiptalífi þessara landa
minnki nógu mikið. Ef ekki,
má búast við miklum verð-
hækkunum strax og slakað er
á takmörkunum og því næst
miklum launahækkunum.