Frjáls verslun - 01.12.1971, Side 31
leg og loftið tært, Ferðafólk
hefur áhuga á að kynnast því,
hvernig lslendingar búa, og
Reykjavík ætti ekki að vera
olnbogabarn í þessum efnum.
Þetta ætti að vera stórt mál
fyrir Ferðamálaráð Reykjavik-
ur. Það er ekki aðeins hags-
munamál okkar, sem verzlanir
rekum, heldur borgarbúa í öll-
um greinum, og ekki sízt
kvennanna, sem eru heima að
prjóna vörur fyrir ferðafólkið,“
sögðu þeir að lokum.
Stefnt að sérhæfingu
í sölu aukahluta fyrir bíla, hjá GT-búðinni
GT-búðin á Laugavegi 173
hóf starfrækslu s.l. vor og hef-
ur á stuttum tíma náð miklum
árangri í sölu bílamálningar,
fyllisefnis og rafkerfis, sem
verzlunin flytur inn og selur í
smásölu. En þar að auki stefna
eigendurnir að sérhæfingu í
sölu flestra aukahluta fyrir bif-
reiðir. t.d. á leðurstýrum, tré-
stýrum, felgum, speglum og ótal
öðrum hlutum, sem ætlað er að
gera bifreiðina sportlegri útlits,
kraftmeiri og nýtízkulegri. GT-
búðin selur blöndunga og út-
blásturskerfi með 4-5 ára
ábyrgð.
Aðaláherzluna leggur verzl-
unin í augnablikinu á bílamáln-
inguna, sem er frá Herberts.
Allir bílalitir hafa sitt númer
og getur eigandi bifreiðarinnar
fengið málninguna afgreidda
með einnar til átta klukku-
stunda fyrirvara. Einn af eig-
endum verzlunarinnar, Harald-
ur Ingimarsson, hefur verið er-
lendis hjá Herberts-verksmiðj-
unum, sérstaklega til að kynna
sér blöndun málningar. eigin-
leika hennar og hegðun.
Þá flytur verzlunin inn fylli-
efni vegna bifreiðainnréttinga,
sem hefur reynzt einstaklega
vel og öll sértæki, sem þarf
til réttingavinnu. Einnig öll
undirefni vegna bílamálningar.
Af öðrum vörum verzlunar-
innar má nefna kerti í allar teg-
undir véla, bifreiðar, báta,
dráttarvélar, flugvélar o.s.frv.
Þá hefur verzlunin á boðstólum
Hallogen—Lux bílljós. Þetta
eru sterkari ljós en gengur og
gerist í bifreiðum og sérstak-
lega góð í dimmviðri.
Eigendur verzlunarinnar
hafa áhuga á að auka sölu á
höfuðpúðum fyrir bifreiðasæti.
Þessi áhugi er ekki eingöngu
verzlunarlegs eðlis, enda benda
þeir á, að höfuðpúðarnir séu nú
lögboðnir í Bandaríkjunum.
Telja þeir. að tvímælalaust ætti
að lækka tolla hérlendis á þess-
ari vöru vegna þess aukna ör-
yggis, sem leiðir af notkun
þeirra. „Þessi vara er hátolluð“,
segja þeir, „og tollarnir verða
að lækka.“
Auk Haraldar eru eigendur
verzlunarinnar þeir Stefán G.
Stefánsson og Ævar Guðmunds-
son. Haraldur vinnur sjálfur í
verzluninni. GT-verzlunin er í
130 fermetra húsnæði, en hygg-
ur á stækkun við fyrsta tæki-
færi.
Frá GT-búðinni.
FV 12 1971
29