Frjáls verslun - 01.12.1971, Blaðsíða 33
Greinar og viótöl
Samtíðarmaður
Skarphéðinn
Ásgeirsson
forstjóri
IVVaðurinn, sem byrjaði á að smiða leikföng
í kreppunni, rekur nú storfyrirtækið Amaro
á Akureyri
Skarphéðinn Ásgeirsson: „Hét því að fara aldrei feti lengra en
svo, að ég kœmist einfœr til baka.”
„Það var mest fyrir einhverja
undarlega tilviljun, að Amaro
var sett á stofn. Við fórum suð-
ur 1940, Valgarður Stefánsson
og ég, og vorum staðráðnir í
að gera eitthvað til að koma af
stað fyrirtækisrekstri á Akur-
eyri. í Reykjavík hittum við
Svein Valfells og fengum tæki-
færi til að ræða málin við hann.
Þó að ég hefði aldrei fengizt við
neitt annað en trésmíðar og
leikfangagerð, fannst okkur
Valgarði líklegast að einhvers
konar fatasaumur myndi helzt
koma til greina og nefndum
skyrtusaum við Svein. Hann
taldi það fremur slæman kost,
þar sem nokkrar verksmiðjur
innanlands stunduðu hann þá
þegar. — ,,En hvað um undir-
föt fyrir kvenfólk?,“ spurði
Sveinn. „Það er aðeins ein
saumastofa sem sérhæfir sig í
slíku hér syðra og engin utan
Reykjavíkur“. Þar með var það
ákveðið og Amaro var stofnað
í apríl 1941.
„Hvað þýðir nafnið? Það
lýsir því ástandi sem ríkjandi
var hérlendis við stofnun fyrir-
tækisins, stríði og frið, ama og
ró.“
Þannig lýsir Skarphéðinn
Ásgeirsson, forstjóri Amaro á
Akureyri tildrögum að stofnun
fyrirtækis, sem nú rekur um-
fangsmikla heildverzlun til
verzlana um allt land og smá-
söluverzlun í stórum og glæsi-
legum húsakynnum í Hafnar-
stræti á Akureyri. Á næsta
leiti eru búðir KEA. sem lil
skamms tíma hefur verið talið
einrátt í viðskiptum í höfuð-
stað Norðurlands, að minnsta
kosti af sunnanmönnum.
FV 12 1971
31