Frjáls verslun - 01.12.1971, Síða 43
Sólarfilma
Framleiðandi litskuggamynda, póstkorta o myndabóka fyrir ferðamenn
og jólakorta fyrir islendinga
Sívaxandi ferðamennska á ís-
landi hefur stóreflt ýmsar þjón-
ustugreinar landsmanna og
skapað grundvöll fyrir nýjung-
ar í framleiðslu svo sem minja-
gripi. litskuggamyndir og aukið
úrval póstkorta svo að dæmi
séu nefnd. Fyrirtækið Sólar-
filma hefur nú um áratugar-
skeið miðað rekstur sinn að
verulegu leyti við þennan nýja
og stækkandi markað en auk
þess framleitt jólakort fyrir
okkur íslendinga. Þó að ekki
liggi fyrir neinar skýrslur um
heildarútgáfu og sölu jólakorta
er samt víst. að þau seljast í
milljónum eintaka á ári hverju
hérlendis.
Birgir Þórhallsson, einn af
eigendum Sólarfilmu, svaraði
nokkrum spurningum FV um
rekstur fyrirtækisins í 10 ár.
— Þegar ég hafði látið af
störfum fyrir Flugfélag íslands
í Kaupmannahöfn og fluttist
heim, sagði Birgir, varð mér
fljótlega ljóst, að hér vantaði
tilfinnanlega litskuggamyndir á
markað fyrir erlenda ferða-
menn. Ég mat í þessu sambandi
mest landkynningargildi slíkra
mynda og tók að kanna mögu-
leika á útgáfu þeirra. Snorri
flugmaður Snorrason, mágur
minn, hafði stundað ljósmynd-
un sem áhugamaður og sýndi
þegar mikinn áhuga á málinu,
svo að við afráðum að gefa út
fyrstu litskuggamyndirnar á
vegum Sólarfilmu í ágúst 1961.
Þær voru 18 talsins og hlutu
þegar í stað góðar viðtökur.
Síðan hefur útgáfan eflzt jafnt
og þétt og myndasafnið verið
aukið og endurbætt á hverju
ári þannig að myndir frá okk-
ur á markaðinum eru nú 500
talsins í framhaldi af þessu
er rétt að minnast á áhrif Surts-
eyjargossins á vöxt og við-
gang fyrirtækisins, því að það
skipti raunverulega sköpum fyr-
ir Sólarfilmu og nokkrar mynd-
ir af þessu mikilfenglega nátt-
úrufyrirbæri hafa selzt betur en
flestar aðrar úr safni okkar.
Surtsey réð satt að segja úrslit-
um um að Sólarfilma varð al-
vörufyrirtæki.
Hverjir hafa tekið þessar
myndir ?
Birgir: „Póstkortin ódýrustu
minj agripirnir.
— Við Snorri unnum aðal-
lega að myndatökunni í byrjun
en nú höfum við samband við
tugi ljósmyndara. sem láta okk-
ur myndir í té. Snorri fæst líka
við þetta ennþá en ég hef dreg-
ið mig í hlé. Myndirnar eru
sendar til fjöldaframleiðslu til
Kodak í Danmörku en inn-
rammaðar og pakkað inn í
samstæðum hér heima. Við
þessi störf vinna jafnaðarlega
fjórir menn hjá fyrirtækinu.
— Eru horfur á, að vinnsla
myndanna verði látin fara
fram hérlendis?
— Sem sakir standa er hag-
kvæmt að hálfvinna framleiðsl-
una hér. Vélar til þessara nota
eru dýrar og engan veginn
grundvöllur til að nýta þær
sem skyldi á þessu stigi málsins.
Samt skal það tekið fram, að
litskuggamyndirnar eru sú
framleiðsla, sem við leggjum
langmesta alúð við og sala
þeirra nemur um þriðjungi
veltu fyrirtækisins.
— Kaupa íslendingar þessar
myndir?
— Já. Nokkuð ber á því,
bæði til heimabrúks og þó að-
allega til að senda útlending-
um eða til að sýna erlendis á
eigin vegum. Til fróðleiks má
geta þess, að Sólarfilma hefur
nú í undirbúningi útgáfu á sér-
stakri samstæðu fyrir skóla og
áhugafólk um jarðfræði. og
fylgir henni sérfræðilegur texti,
sem Sigurður Þórarinsson hef-
ur samið. Enn hefur ekki verið
ákveðið að halda lengra á þess-
ari braut en þörfin fyrir þess
konar fræðsluefni til notkunar
í skólunum er mikil. Úrlausn
í því efni hlýtur þó að vera
verkefni fyrir Fræðslumynda-
safn ríkisins.
— En svo við víkjum okkur
að jólakortunum. Hvenær hófst
útgáfa þeirra hjá Sólarfilmu?
— Sólarfilma byrjaði á því
sviði með jólakorti með Surts-
eyjarmynd árið 1964. Jólakort-
unum hefur á seinni árum
fjölgað um 30-40 nýjar tegundir
á hverju ári, svo að núna eru
á boðstólum hátt á annað
hundrað tegundir. Okkur hefur
tekizt að ná góðum tengslum
við verzlanir varðandi sölu
kortanna, því að þær vilja kom-
ast hjá því að gera viðskipti
við marga aðila í þessu efni.
— Eru íslenzku jólakortin
fullkomlega samkeppnishæf við
erlend kort, sem hér eru fáan-
leg?
FV 12 1971
41