Frjáls verslun - 01.12.1971, Qupperneq 49
borgarstígur 34. Þetta var gjöf
Elisabetar Friðriksdóttur og
Jóns Betúelssonar skósmiðs.
Brunabótamatsverð þess húss
er rúmlega 3.7 millj. króna.
Auk þessa er félaginu ætíð að
berast eitthvað af gjöfum,
smærri og stærri, og ekki ó-
sennilegt að gjafir til félagsins
aukist vegna þess mikla starfs,
sem þar er nú unnið vegna
Biblíuútgáfunnar.
FJÖLBREYTT VERKEFNI
Verkefni Hins íslenzka bi-
blíufélags eru margvísleg, enda
þótt helzta hlutverk félagsins
sé það, sem felst í eftirfarandi
orðum herra Sigurbjarnar Ein-
arssonar biskups, sem er for-
seti félagsins: „Hlutverk Bi-
blíufélagsins er að gefa Biblí-
una út, dreifa henni og greiða
fyrir lestri hennar. Hið íslenzka
biblíufélag hefur oftast getað
séð um það, að landsmenn gætu
eignazt Biblíuna. Þó hefur út-
gáfa hennar um langt skeið
verið of fábreytileg og fátæk-
leg. Dreifing hennar hefur held-
ur ekki verið nógu markvís og
útgáfur bóka og ritlinga til að-
stoðar við biblíulestur hafa
engar verið.“
Arið 1946 gekk félagið í
Sameinuðu Biblíufélögin (Unit-
ed Bible Societies), stofnað af
efnaðri þjóðum til styrktar
Biblíuútgáfu og dreifingu með-
al fátækari þjóðfélaga. Fram-
lag félagsins er eðlilega ekki
hátt í krónutölu, en nam þó í
heild tæplega 119 þús. kr. á
sl. ári. Þar af nam framlag til
Biblíuútgáfu í kristniboðslönd-
um rúmlega 97 þús. kr., og
mun væntanlega hækka tals-
vert á þessu ári. Þetta framlag
fer til Eþíópíu vegna íslenzka
kristniboðsins þar í landi. Með
þessu eru íslendingar að gjalda
skuld: „Minnumst þess, að ís-
lendingar nutu um langan ald-
ur stuðnings og fyrirgreiðslu
erlends biblíufélags. Þar eigum
vér ógoldna skuld. Vér getum
grynnt á henni með því að láta
fátækum bræðrum örlitla hjálp
í té,“ sagði biskup íslands á
Biblíudaginn 1969.
BÓKASAFN
Loks má geta þess, að félagið
leggur talsverða áherzlu á að
koma sér upp bókasafni, sem
hefur notið margra góðra gjafa.
Það er nokkuð um það, að fólk
gefi á efri árum sínum guðs-
orðabækur, sem það hefur eign-
azt, þá einkum, ef um sjald-
gæfar útgáfur er að ræða. Auk
þess berast félaginu erlendar
útgáfur af Biblíunni og ritum
tengdum henni. Loks hefur fé-
lagið notað lítilsháttar af eigin
fé til bókakaupa. Stefna bóka-
söfnunar félagsins er markvís,
enda er í hverri ársskýrslu að
finna lista yfir bækur, sem fé-
lagið vantar í safn sitt, svo og
lista yfir bókagjafir.
ÚTBREIDDASTA BÓKIN
Hérlendis er Biblían út-
breiddust allra bóka. Hið ís-
lenzka biblíufélag seldi á sl.
ári um 2200 eintök af Biblíu,
Nýja testamentinu og einstök-
um í’itum Ritningarinnar.
Hin nýja útgáfa, sem nú er
framundan, er ekki aðeins
nauðsynleg vegna skorts, held-
ur og vegna þess, hve nauðsyn-
legt var, að öll þýðing Biblí-
unnar yrði endurskoðuð. Þetta
verk hefur nú staðið frá árinu
1963, og enn er langt í land.
Hér er um að ræða mikið verk,
afrek á sína vísu, þótt það jafn-
ist naumast á við það hrein-
ræktaða afrek Guðbrands Þor-
lákssonar biskups, að fullgera
verk Odds Gottskálkssonar, og
þannig bjarga íslenzkri tungu
frá því að stórskaðast af er-
lendum útgáfum.
Vegna hinnar miklu út-
breiðslu mun hin nýja útgáfa
Ritningarinnar að sínu leyti
hafa gildi fyrir íslenzka tungu
— gildi, sem hvorki verður
mælt né vegið, en er ómetan-
legt.
TRÉSMIÐJAN VlÐIR auglýsir: FRJÁLS
Kaupið borðstoíuhúsgögnin núna, það borgar VERZLUN
sig, lágt verð og góðir greiðsluskilmálar. hefur flutt
Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt. skrifstofur sínar að
Verzlið í Laugavegi 178,
* III. hæð.
VIÐI Símar:
Laugavegi 166, símar 22222 - 22229. 82300 - 82302.
FV 12 1971
47