Frjáls verslun - 01.11.1974, Blaðsíða 12
hefur lagt stund á fram-
kvæmdastjórn við kunna
stofnun í Sviss. Vandamál
Lego-fyrirtækisins nú er allt of
ör vöxtur og stjórnendur þess
glíma við hugmyndir um það
hvernig best sé að skipu-
leggja framleiðsluna og
breikka starfssviðið. Sonurinn
vill að notaðar séu nýjustu
stjórnunaraðferðir, en Kirk er
íhaldssamari og vill vera með
í ráðum á öllum sviðum.
Nýtt aðalfyrirtæki stofnsett.
í sumar var samt sem áður
nýtt fyrirtæki stofnsett til
þess að aðlaga reksturinn nú-
tímanum, og farið var eftir
ráðleggingum þekkts stjórnun-
arráðgjafa. Lego-fyrirtækinu
hefur verið skipt í fimm „dótt-
urfyrirtæki", sem öll eru í
eigu Kirk Christiansens og
fjölskyldu hans. Lego A/S er
móðurfyrirtækið, sem á allar
verksmiðjur og byggingar að-
alstöðvanna í Billund í Dan-
mörku, og öll einkaréttindi
framleiðslunnar. Auk þess á
það að hluta til í 15 sölufyrir-
tækjum Legos víða um heim.
Þá á það sérstakt Lego-fyrir-
tæki, sem aðeins sér um sölu
á Lego-leikföngum í Dan-
mörku. Lego System A/S sér
um framleiðsluna, samhæfingu
heildarsamsteypunnar og sölu-
kynningu fyrir öll Lego-fyrir-
tæki. Tvö önnur dótturfyrir-
tæki sjá um rekstur Legolands
barnaskemmtigarðsins í Dan-
mörku, og sams konar
skemmtigarða í öðrum löndum.
Með tilkomu nýja aðalfyrir-
tækisins og breyttum starfsað-
ferðum, minnka bein afskipti
Kirks af rekstrinum. Aðal-
framkvæmdastjórar bera nú
meiri ábyrgð á rekstri ein-
stakra fyrirtækja og deilda
innan heildarsamsteypunnar.
Flestir þeirra hafa viðurkennt
að erfitt sé fyrir Kirk að sætta
sig við breytingarnar. „Einu
sinni vissi hann allt, en nú er
það ekki iengur hægt“, segir
Ole Nielsen, framkvæmdastjóri
hjá Lego A/S, sem hefur ver-
ið hægri hönd stjórnarfor-
mannsins í 13 ár.
Kirk hefur verið með frá
byrjun.
Kirk hefur verið með fra
upphafi Lego-ævintýrisins, sem
hyrjaði sem smáfyrirtæki og á
'hann því erfitt með að sætta
sig við, hve umfangsmik-
ill reksturinn er orðinn. Þetta
byrjaðd allt þegar faðir hans,
Ole Christiansen missti vinn-
una á kreppuárunum, en hann
var trésmiður. Til þess að sjá
fjölskyldu sinni farborða, tálg-
aði hann leikföng í tré. Þar
sem flest allir íbúar Billunds
voru jafn illa settir og Ole,
gátu þeir ekki keypt leikföng-
in hans. Þá fékk Ole hug-
myndina um að skipta á þeim
og mat og klæðum. Bakarinn
fékk t. d. leikföng handa
börnunum sínum fyrir brauð,
verzlunareigandinn lét egg og
smjör í skiptum og garðyrkju-
bóndinn grænmeti, svo að
dæmi séu nefnd. Eftir
nokkur ár tókst Ole að safna
nægilegu fé til þess að stofna
trésmíðaverkstæði og fram-
leiða leikföng í stærri stíl en
áður. Upp úr 1940 var hann
kominn með nokkra smiði í
vinnu og framleiddi 200 mis-
munandi tréleikföng.
Plastframleiðslan breytti tré
í gull.
„Faðir minn fékk strax á-
huga á hinum nýju möguleik-
um“,‘ segir Kirk. Lego-fyrir-
tækið varð fyrsta fyrirtækið í
Danmörku, sem notaði plastik
í framleiðslu sína, en það var
árið 1950. Þegar hingað var
komið sögu, hafði Kirk það
hlutverk að finna upp ný leik-
föng og vegna innflutnings-
takmarkana, sem fylgdu í
kjölfar seinni heimsstyrjaldar-
innar, urðu feðgarnir að end-
urskoða heildarframleiðsluna.
Höftunum var síðan aflétt og
innflutningur á erlendum leik-
föngum gefinn frjáls. For-
sjálni feðganna kom sér vel.
Þeir höfðu gert sér það ljóst,
að nauðsynlegt væri að fjölda-
framleiða leikföng, til þess að
bjarga fyrirtækinu í harðri
samkeppni. Árið 1953 fór Kirk
í fyrstu viðskiptaferð sína til
útlanda í fylgd með innkaupa-
stjóra hjá einu stærsta verzl-
unarhúsi Danmerkur. Þeir
fóru til Englands, en inn-
kaupastjórinn var nýr í starfi,
og því uppfullur af ferskum
hugmyndum. Kirk spurði
hann hvað honum fyndist á-
bótavant í leikfangaiðnaðinum.
„Leikfangaiðnaðurinn er tóm
endaleysa, vegna þess að hann
er skipulagslaus, kerfislaus og
ruglingslegur“, sagði maður-
SJÁVARFRÉTTIR
Nýtt tímarit
um sjávar-
útvegsmál,
markaðsmál,
tækninýjungar
og margt
fleira.
*
Askrif tasímar
82300 - 82302
12
FV 11 1974