Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1974, Síða 28

Frjáls verslun - 01.11.1974, Síða 28
Verzlunargatan: Einhver kynni að halda að Kristinn Hallsson væri þarna að syngja gamanvísuna um Laugaveginn, en í þetta skipti var hann að selja ljósaperur fyrir Lions-klúbbinn sinn. „Og ég labbaði inn á Laugaveg um daginn” „Og ég labbaði inn á Laugaveg um daginn“. ... hyrjar gamanvísnaflokk’ur, sem birtist í Söng- bók Hins íslenzka stúdentafélags, sem félagið gaf út í Reykjavík árið 1894. Það er engin til- viljun að höf'undur hefur valið Laugaveginn sem vettvang atburða vísnanna því Laugavegur- inn var, er og verður um ófyrirsjáanlega framtíð tvímælalaust líflegasta gata Reykjavíkur. Þar er alltaf eitthvað um að vera, fyrirtæki flytjest þangað, eða flytja þaðan, gömul fyrirtæki breyta um svip eða flytja sig þar á milli húsa og vart fer nokkur maður um Laugaveginn án þess að hitta einhvern sem hann þekkir. Þar sem Laugavegurinn er hvað líflegastur nú í jólamán'uðinum, löbbuðu blaðamaður og Ijósm yndari FV. inn á Laugaveg um daginn og tóku fólk tali í nokkrum fyrirtækjum til að bregða nokkru ljósi á lífið við götuna. Kjötbúð Tómasar í kjötverzlun Tómasar að Laugavegi 2 sá verzlunarstjór- inn varla tíma til að líta upp, því verið var að ganga fra jólapökkum til útlanda. „Við erum búnir að vera með þessa þjónustu í ein átta eða níu ár og færist það mjög í vöxt að fólk notfæri sér hana“ sagði hann. Fólk getur komið, inn í verzlunina og valið sér eitt- hvað matarkyns til að senda vinum eða ættingjum erlend- is, greitt vöruna og síðan sér verzlunin um að pakka henni inn og senda hana út með öllu tilheyrandi umstangi við leyfi og pappíra. Þótt Tómas Jónsson hafi stofnað verzlun- ina árið 1909 og hún sé því elsta eða næst elsta kjötverzl- un í Reykjavik, fylgist hún vel með tímanum og má þar benda á að ekki er svo farið að veiða lax á vorin eða skjóta rjúpu að hausti, að viðkomandi bráð sé ekki um leið komin á föt verzlunarinn- ar. „Við höfum góð sambönd með útvegun" sagði Garðar, Svavarsson, verzlunarstj. og 'ljóstraði ekki frekar upp um þau. 28 FV 11 1974

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.