Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1974, Qupperneq 29

Frjáls verslun - 01.11.1974, Qupperneq 29
Bláa búðín „Ég fór að verzla hérna við Laugaveginn því Silli og Valdi, sem höfðiu leigt mér húsnæði í Aðalstræti, þurftu á því að halda og sögðu mér upp“, sagði Helga Thorberg í Bláu búðinni að Laugavegi 11, en hún byrjaði að verzla þar árið 1950 eftir að hafa verzl- að í Aðalstræti í fimm ár, eða þar um bil. „Ég varð ósköp skelkuð, þegar mér var sagt upp húsnæðinu, og í fljótu Fálkinn hljómplötudeild Hljómplötudeild Fálkans hf. er að Laugavegi 24, en Fálk- inn hefur um margra ára skeið fengist við útgáfu ým- issa íslenzkra verka á hljóm- plötum, m. a. upplestra frægra höfunda og tónlist snillinga. Anna Hansen, verzl- unarstjóri, sagði okkur að þessar plötur seldust jafnt og þétt og væri búið að gefa flestar þeirra út oftar en einu sinni. Meðal frægra manna, sem lesið hafa inn á plötur hjá Fálkanum, má nefna Sigurð Nordal, Jón Helgason, Tómas Guðmundsson, Gunnar Gunn- arsson, Davíð Sefánsson, Hall- dór Kiljan Laxness o. fl. Af tónsnillingum má nefna Dr. Pál ísólfsson, Björn Ólafsson og Rögnvald Sigurjónsson. Þótt popplöturnar seljist í yf- irgnæfandi meirihluta, eða um 60% af sölunni, sagði Anna að mikil söluaukning væri greinileg í verkum sí- gildu sniliinganna að undan- förnu. Plötur eins og Kardi- mommubærinn og Dýrin í Hálsaskógi eru þær barnaplöt- ur, sem lang mest seljast, en annars fannst Önnu of lítið úr- val barnaplata á markaðnum. Hún sagði að börnin hefðu mjög ákveðinn smekk á plöt- um, ef þau fengju að ráða sjálf og líkaði engin plata á boðstólnum, létu þau sig jafn- vel hafa það að fá enga plötu. bragði var hvergi húsnæði að fá þá nema inni á Grensásvegi, sem þá var ekki byggður upp eins og nú, en Valdi tók ekki í mál að ég yrði að fara þang- að og útvegaði mér sjálfur þetta húsnæði,“ sagði hún. „Mér þótti svolítið skrítið að vera hér til að byrja með, því ég kunni svo vel við mig í Að- alstrætinu, en það er nú allt komið í lag.“ „Ég hef reynt að fylgjast með þörfum iðnaðarmanna, bæði í verkfærum og annarri járnvöru, sem þá hefur van- hagað um á hverjum tíma“, sagði Björn Guðmundsson, for- stjóri Brynju, sem er í húsinu nr. 29 við Laugaveginn. Brynja, sem stofnuð var 1919, var fyrst r.r. 24 við Lauga- veg, en flutti á nr. 29 árið 1930, eða tveim árum áður en Björn, núverandi forstjóri byrjaði að sendast hjá verzl- uninni. Gull og silfur Ást, kærleikur, vinskapur og þakklæti, öll hugtök þurfa sína útrás og gjarnan gerir fólk það með því að gefa við- komandi einhvern þann hlut, sem það ímyndar sér helst að muni lýsa ást, gleði eða kær- leika. Gull & silfur, nr. 35 við Laugaveg leitast við að sinna þörfum þessa fólks, og og eins og nafnið bendir til er þar á boðstólnum hvers konar dýrindis gjafavara. Sigurður Steindórsson, einn eigenda, FV 11 1974 29

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.