Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1975, Blaðsíða 26

Frjáls verslun - 01.12.1975, Blaðsíða 26
IMorska útflutningsráðið Veitir útflytjendum margvíslega aðstoð við áætlanir og framkvæmd þeirra Rætt við forstjóra ráðsins, Gunnar Rogstad Það er óvænt tilbreyting að mæta forstöðumanni áhrifamikillar stofnunar í útlöndum, sem heils- ar manni á íslenzku og talar hana næstum reiprennandi út heilt blaðaviðtal. Þetta gerðist þó þegar við komum upp á 13. hæð skrifstofubyggingar norskra iðnrekenda í Osló en þar er skril'stofa Gunnars Rogstad, forstjóra norska útflutningsráðsins, sem aðsetur hefur í þessu stórhýsi. Eins og vænta mátti hefur Gunnar Rogstad dvalist á ís- landi en hann var starfsmaður norska sendiráðsins hér á stríðsárunum og er kvæntur íslenzkri konu. Hann sagði, að íslenzka væri oft töluð á heim- ilinu og hann reyndi einnig að halda málinu við með að lesa blöð frá íslandi. Gunnar hefur oft komið til íslands eftir að dvöl hans hér lauk og hann hefur haft gott samstarf við forystumenn íslenzkra iðnrek- enda. Annars hefur hann að- allega starfað fyrir norsku ut- anríkisþjónustuna og m. a. verið sendiherra í Hollandi. SÍÐAN í STRÍÐSLOK Við spurðum Rogstad, hver saga norska útflutningsráð?- ins væri og hvernig það væri skipulagt. Hann skýrði svo frá, að ráðið hefði verið deild inn- an utanríkisráðuneytisins þar til í stríðslok að það varð sjálfstætt. Árið 1956 var starf- semi ráðsins endurskipulögð og komið á útflutningsgjaldi, sem til þess rann, en það var á- kveðið % promille af út- flutningsverðmæti og greiða útflytjendur þann skatt, sem ráðið notar síðan til starfsemi sinnar. Ráðið er skipað 47 full- trúum, sem koma frá fyrir- tækjum i iðnaði, fiskveiðum, frá Alþýðusambandinu og fleiri samtökum norskum. Framkvæmdastjórnin er hins vegar í höndum 15 manna. Á aðalskrifstoýu útflutnings- ráðsins í Osló starfa 100 manns og 60 fulltrúar þess eru í 20 löndum utan Noregs. Verkefni alls þessa starfsliðs er að að- stoða útflutningsaðila við að gera áætlanir og framkvæma þær, annast upplvsingaþjón- ustu bæði í Noregi og erlendis, ákveða þátttöku norskra fyrir- tækja í vörusýningum erlendis og undirbúa hana síðan. Þátt- taka í kaupstefnum og vöru- sýningum kemur til viðbótar við aðra markaðsþróun. Rog- stad gat þess, að næstu tvær vikurnar framundan væru 12 slíkir viðburðir á dagskrá, m. a. mikil sýning á vetrarsport- vöru^n í Bandaríkjunum og sýning á fjarskiptatækjum í Genf. Rogstad tók fram, að það væru ekki starfsmenn út- flutningsráðsins, sem tækju allar ákvarðanir um þátttöku í sýnmgum, heldur væru full- trúar hinna ýmsu framleiðslu- fyrirtækja spurðir hvers þeir óskuðu í sambandi við störf út- flutningsráðsins að þessu leyti. Siðari hluta sumars er svo gerð áætlun eitt ár fram í tím- ann og þátttaka í stærstu lillSifftÍsVÖ-iA-'Jl mnmnnn, A; - „ ^"1 ■ v*' i r i' '** ■ s y-- mmmmmm- p&Mnmm t•mmpmm ' - .sssss ÍHÍHHÍIJTI •|BPHIWW» v iwiiwt??--** •rrr,rrrrr ■■nKsW*''\ f stórhýsinu til hægri á myndinni, sem er í eigu norskra iðnrek- cnda, hefur norska útflutningsráSiS aSsetur. 26 FV 12 1975
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.