Frjáls verslun - 01.12.1975, Síða 55
Norðmenn lelja, að tilgang-
ur Sovétmanna með þessum
liðssafnaði sé tengdur hernað-
aráætlunum þeirra á heimsvísu
en honum sé ekki beinlínis
beint gegn Noregi. En Norð-
mönnum brá þó illilega meðan
innrásin í Tekkóslóvakíu stóð
yfir 1968, því að þá röðuðu
sovézkir skriðdrekar sér upp
nokkra metra frá norsku
landamærunum.
• ILLA BÚIÐ LIÐ.
Ef til hernaðarátaka drægi
myndu Sovétmenn sækjast eft-
ir að ná yfirráðum í Norður-
Noregi af tveimur ástæðum.
Flugvellir þar myndu gera
þeim kleift að veita flota sín-
um liðsstyrk úr loíti langtum
lengra á haf út og hafn-
irnar og firðirnir kæmu sér
ákaflega vel sem felustaðir
fyrir sovézka kafbáta. En það
er ekki þar með sagt að sov-
ézkur her gæti ætt yfir landið
á einni nóttu. Hrjóstrugir
fjallgarðar veita vissa vörn og
veðravítin gera aðeins sér-
þjálfuðum herdeildum mögu-
legt að ráðast þar fram mest-
an hluta ársins. Norðmenn ef-
ast um að margir Sovéther-
menn séu nægilega vel búnir
til átaka á þessum slóðum.
Rússneskt skíði, sem einn sov-
ézku hermannanna hafði misst
af sér á göngu meðfram landa-
mærunum, rak yfir stöðuvatn
og hefur nú verið hengt upp
til sýnis í norskri landamæra-
stöð. Það er sagt úr svo slæmu
efni og svo illa smíðað, að
fimm ára gömlu norsku barni
dytti ekki í hug að notast við
það.
• STORKA EKKI
RÚSSUM.
Norðmenn láta sig ekki
dreyma um að geta staðizt
sovézku innrásarliði snúning
við landamærin. Varnarlið 800
manna í herstöðinni í Kirke-
nes myndi tæpast gera meir
en að tefja fyrir sókninni. Að-
allið norska hersins er langt
í burtu, á svæðinu við Narvik.
Með þessu er í og með verið
að forðast allt sem Sovétmenn
gætu kallað ögranir en fyrst
og fremst byggist þetta fyrir-
komulag varnanna á þeirri
skoðun norskra hernaðaryfir-
valda að sovézk innrás yrði
ekki gerð beint yfir landamær-
in í norðri heldur af land-
gönguliðum frá sjó og/eða um
hinn svokallaða Finnlands-
fleyg, sem er aðeins 40 kíló-
metra frá strönd Noregs í
Troms. Álíta norskir hernað-
arsérfræðingar að undir slík-
um kringumstæðum myndu
Sovétmenn krefjast þess af
Finnum, að sovézkar hersveit-
ir fengju að fara yfir finnskt
land samkvæmt ákvæðum
samningsins frá 1948.
Jafnvel þótt sovézk árás
yrði gerð um Finnlands-fieyg-
inn myndu innrásarliðsins bíða
miklir erfiðleikar, því að
þarna er líka gott að verjast.
Markmið norska herliðsins
myndi þá vera að verjast þar
til liðsauki bærist frá Suður-
Noregi og frá bandamönnum í
NATO. No.rðmenn, sem voru
meðal stofnenda Atlantshafs-
bandalagsins, og eru eina að-
ildarríkið auk Tyrkja sem
á landamæri að Sovétrikj-
unum, hafa þann fyrirvara á
þátttöku sinni í vestrænu
varnarsamstarfi að á friðar-
tímum séu ekki erlendar her-
stöðvar né heldur kjarnorku-
vopn í landinu. Þetta hindrar
þó ekki heimsóknir erlendra
hersveita til æfinga enda fara
þær fram reglulega allt árið
um kring.
• DÝRKEYPT REYNSLA.
Eins og Svíar höfðu Norð-
menn aðhyllzt hlutleysis-
st:fnu. Leifturinnrás Þjóðverja
1940, þegar þeir lögðu mestan
hluta landsins undir sig á ein-
um degi, var Norðmönnum
hins vegar ægileg reynsla og
þegar fram í sótti orkaði hún
þannig, að þjóðin hefur lagt
mikið upp úr að treysta varn-
ir sínar. Er uppbygging norska
hersins nú ekki ósvipuð því
sem gerist í ísrael, og er á-
herzla lögð á að varaliðið, sem
hefur vopnabúnað sinn inni á
heimilunum, verði virkt á
skömmum tíma, ef til átaka
dregur. Sérhver karlmaður I
Noregi verður að gegna her-
kvaðningu á aldrinum 20-45
ára. Tvítugir að aldri gegna
No.rðmenn herskyldu í 12 mán-
uði í landhernum en 15 mán-
uði í flotanum og flug'hernum.
Síðan fara þeir til endurþjálf-
unar með vissu millibili næstu
25 árin.
Níu mánuði af þessum tíma
dveljast nýliðar við æfingar
í Norður-Noregi en þrjá í
suðri. Helmingur alls herafl-
ans er jafnan á norðurslóðun-
um. Samanlagt eru um 40 þús-
und manns í norska hernum
en þar af er rúmlega helm-
ingur nýliðar.
• BREZKUR
HERSHÖFÐINGI.
Herstjórn NATO fyrir norð-
urslóðir hefur aðsetur í Kolsás
fyrir utan Osló, þar sem brezk-
ur hershöfðingi fer með stjórn.
Næsti aðstoðarmaður hans er
norskur en annars eru fulltrú-
ar sex ríkja í starfsliði hans.
Þetta er fyrst og fremst áætl-
anastöð þar eð flugherinn ein-
vörðungu kemur undir stjórn
hennar. Öðrum deildum hers-
ins stjórna Norðmenn sjalfir á
friðartímum.
• ÞRÝSTINGUR.
Öðru hverju hafa Sovét-
menn beitt þrýstingi til að
reyna að fá Norðmenn til að
losa um tengsl sín við Atlants-
hafsbandalagið en án árangurs.
Öflin lengst til vinstri í norsk-
um stjórnmálum hafa aldrei
getað fallizt á aðild landsins
að bandalaginu og varð þetta
mjög áberandi síðast á sjötta
áratugnum, þegar kalda stríð-
ið tók að dvína. Árið 1961
sagði hópur vinstrimanna skil-
ið við Verkamannaflokkinn og
stofnaði Sósíalska þjóðar-
flokkinn, sem vann þó engin
afrek fyrr en aðildin að Efna-
hagsbandalaginu var á döfinni
1971. En flokknum hefur ekki
tekizt að magna upp almenna
andstöðu gegn aðildinni að
NATO og átti þetta sérstaklega
við eftir innrás Sovétríkjanna i
Tékkóslóvakíu. Síðan hefur al-
menningsálitið verið í vax-
andi mæli með veru Noregs
í NATO.
FV 12 1975
55