Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1977, Blaðsíða 14

Frjáls verslun - 01.12.1977, Blaðsíða 14
ár. Við vonum að sjálfsögðu að sá tími verði miklu lengri. F.V.: — Það fer ekki fram hjá neinum að þið standið í talsverðri gatnagerð. M.K.: — Það er rétt, mikið var malbikað hér í sumar og hefur verulegur hluti þess verks verið endurlagning á gamlar götur. Hluti eldri gatna hefur verið lagður nýju slitlagi eða nálægt 50% af slitlagi þeirra endurnýjað. Eldri göt- urnar hrundu niður í gosinu og á meðan á hreinsunarfram- kvæmdunum stóð og voru víða orðnar mjög illa farnar. F.V.: — Hvað geturðu sagt okkur af byggingariðnaðinum hér í Eyjum? M.K.: — Byggingarfram- kvæmdirnar hafa skiljanlega verið mjög miklar hérna að undanförnu. Þó má segja að frá miðju síðasta ári hafi ríkt hér nánast eðlilegt ástand í bygg- ingariðnaði og ekki verið verk- efnaskortur. Þó 'hefur maður merkt þá breytingu á síðast- liðnu einu og hálfu ári eða svo, að mun meira hefur hlutfalls- lega verið byggt af atvinnuhús- næði hér í Eyjum en áður. F.V.: — Hvemig er eftir- spurn háttað eftir byggingar- lóðum, er hún meiri en fram- boðið? M.K.: — Það má segja að við gerum meira en að anna eftir- spurninni því við höfum einar 50 lóðir klárar með lögnum og öllu tilbúnar til út'hlutunar. Ástæðan fyrir þessu er fyrst og fremst sú að þegar bærinn var hreinsaður á sínum tíma var vikri ekið og dreift yfir mjög úfið hraun sem þannig varð ákjósanlegt byggingarsvæði. LÍTT ÞOKAST MEÐ DRÁTTARBRAUTINA — F.V.: — Rétt fyrir gos stóð til að setja hér upp dráttar- braut. Hvað hefur gerzt í því máli síðan? M.K.: — Fyrir gos hafði all- ur tækjabúnaður fyrir dráttar- brautina verið fluttur hingað út. Alit var þetta flutt til meg- inlandsins í gosinu en hluti þess er nú komið aftur hingað. Það hefur mikið verið unnið að þessu máli. Eins og er þá mun standa á fjármagni til þess að hrinda þessari dráttarbraut í framkvæmd. Ráðgert er að bæta í dráttarbrautina sleðum þannig að hún geti tekið upp minni skuttogara eins og við erum með hérna. Það segir sig sjálft að þetta er mikið hags- munamál fyrir bæjarfélagið að takast megi sem fyrst að byrja á dráttarbrautinni, bæði með tilliti til útgerðarrekstursins og ekki síður í atvinnulegu tilliti. VIKURÚTFLUTNINGUR ENN Á BIÐLISTANUM F.V.: — Það var talsvert rætt um þáð á sínum tíma að miklir möguleikar væru á útflutningi gjalls og vikurs frá Eyjum? M.K.: — Já það er rétt. Á tímabili virtist það mál vera komið á rekspöl. Eitthvað tókst þó óhönduglega til því þegar ekkert virtist vera eftir nema að skrifa undir sölusamninga fór allt út um þúfur. Nú eru hinsvegar innlendir aðilar að kanna þetta mál með hugsan- lega hagnýtingu fyrir augum. F.V.: — Hvaða aðila.r eru það? M.K.: — Ég man nú ekki í svipinn hvað fyrirtækið heitir, gott ef ekki Jarðefnaiðnaður hf. Það er Ingólfur Jónsson á Hellu sem hefur verið einn af hvatamönnum þess og við von- um að út úr þessu komi ein- hverjir möguleikar. F.V.: — Maður er alltaf að taka eftir því betur og betur hvílíkur fjöldi barna er hér í Eyjum. Þurfið þið ekki að auka skólahúsnæðið af þeim völd- um? M.K.: — Sú þörf er stað- reynd og nú er að komast af hönnunarstiginu ný skólabygg- ing, sem kemur til með að verða í nýja Vesturbænum. Það verður barnaskóli og kem- ur hann til með að leysa af hólmi bráðabirgða hús með tveimur litlum skólastofum sem nú er notað í þeim 'hluta bæjarins. IMýiðnaður: Alsteyping í stórum stíl innan skamms „Telja má, að í byrjun næsta áratugs hef jist álsteyp- ing í stórum stíl hér á landi, og innan 10 ára verði stofn- sett völsunar- og þrýstimót- unarver“, segir Ragnar Hall- dórsson forstjóri ísals í ný- útkomnu starfsmannablaði áiversins. í grein Ragnars kemur fram að á síðasta sumri hafi komið til landsins á vegum Iðnþróunarstofnunar þýzkur sérfræðingur í álsteypu. Hlutverk hans var að koma með tillögur um, hvernig úr- vinnslu áls yrði bezt háttað hér á landi. Hann mun ekki hafa skilað skýrslu um at- huganir sínar, en heyrzt hef- ur að hann sé bjartsýnn á, að hér sé unnt að auka ál- steypingu verulega. Fyrsta ve kefnið gæti orðið að steypa álnetakúlur fyrir fiskiskipaflotann, sem notar um það bil 80.000 stk. á ári, þannig að þar yrði um nokkra fjöldaframleiðsllu að ræða. ÍSAL AÐSTOÐAR VIÐ ÚRVINNSLU ÁLS í aðalsamningi um áliðju- verið milli rkisstjórnarinnar og Alusuisse er gert ráð fyr- ir því, að Alusuisse og ÍSAL muni aðstoða íslenzka aðila við þróun úrvinnslu áls á íslandi, bæði með tækni- framlagi og fjárhagslegri þátttöku. ÍSAL hefur fullan hug á að verða áfram í far- arbroddi iðnþróunar á ís- landi og taka þátt í úr- vinnslu áls, þegar það telst hagkvæmt, segir Ragnar. fslendingar nota árlega um það bil 8 kg. af áli á mann samanborið við 10—20 kg á öðrum Norðurlöndum. 14 FV 12 1977
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.