Frjáls verslun - 01.12.1977, Blaðsíða 59
Auglýsingastofan Argus 10 ára:
Hefur byrjað fram-
leiðslu á auglýsinga
kvikmyndum í litum
Rekur eigin stúdíósal með fullkomnum
tækjum
Auglýsingastofan Argus er ííu ára um þessar mundir. Stofan var
stofnsett í nóvember 1967 af tveim auglýsingateiknurum, þeim
Hilmari Sigurðssyni og Þresti Magnússyni. Þeir félagar voru þá
tiltölulega nýkomnir heim frá námi í auglýsingagerð, Hilmar frá
Stuttgart og Þröstur frá Gautaborg.
Auglýsingar eru leyfðar á
búningum íþróttaliða í Vestur-
Evrópu, að Bretlandi undan-
skildu.
AÐ AUGLÝSA SJÁLFAN SIG
Þegar fyrirtæki eru að byrja,
þurfa þau að auglýsa sig sjálf.
Halldór keypti bolta af manni
í Bretlandi, sem hann flutti inn
og spurði þennan mann hvort
hann þekkti einhvern kunnan
breskan íþróttamann, sem væri
til í að lána nafn sitt í tengslum
við framleiðsluna. Hann spurði
hvern Halldór vildi helst fá. Og
Halldór segir: „Ég byrjaði of-
anfrá og nefndi Jimmy Greav-
es, sem þá var talinn besti
knattspyrnumaður Bretlands.
Hann reyndist vera nábúi þessa
manns og féllst á þetta. Ég fór
á staðinn með æfingabúning og
peysu, sem þá var allur lager
fyrirtækisins. Þar kom frétta-
maður frá bresku blaði, til að
mynda þennan merkisatburð.
Engum þurfti að greiða neitt
fyrir þetta.“
Annað dæmi er þegar stjörnu-
lið Bobby Charlton kom hingað
í sumar. Þá fór Halldór á hótel-
ið, þar sem hann bjó, um klukk-
an þrjú eftir hádegi. Hann náði
tali af Bobby Charlton, sem
féllst á að leika í búningum
merktum Henson og þeir voru
tilbúnir áður en leikurinn hófst
um kvöldið.
ENGIN ÁSTÆÐA TIL
AÐ KVARTA
Starfsfólk Henson er nú um
20 manns. Halldór segir að það
skipti sköpum að hafa gott
starfsfólk, þegar framleiða þarf
jafn fjölbreyttar vörur og fyrir-
tækið gerir. Á sínum tíma hófst
starfsemin í fjórum litlum her-
bergjum, en 1973 var flutt í
rýmra húsnæði, sem hafði mjög
góð áhrif á afköstin. Þá hefur
fyrirtækið fengið nýjar vélar og
hefur nú hraðgengustu sauma-
vélar, sem völ er á.
Halldór var að því spurður
hvernig gengi og svaraði þá:
,,Það er erfitt að borga út, inn-
heimtur eru erfiðar og skattar
háir, en við komumst fram úr
þessu og engin ástæða til að
kvarta“.
í fyrstu var stofan til húsa
að Laugavegi 3. Þar kom fljót-
lega í ljós að nauðsyn var fyrir
alhliða auglýsingaþjónustu,
auglýsingaráðgjöf, upplýsinga-
dreifingu og fjölmiðlun var það
mikil, að húsnæði fyrirtækisins
varð of líið. Með auknum verk-
efnum bættust í hópinn teikn-
arar, auglýsingaráðgjafar og
kvikmyndagerðarmenn, verk-
efnum fjölgaði og þau urðu
margþættari.
AÐSETUR í BOLHOLTI 6
í byrjun ársins 1971 flutti
Argus í núverandi húsnæði í
Bolholti 6. Rúmgott húsnæði,
sem Argus leigir ásamt Ijós-
Þefe flkn
» m m Volvo Grand Luxc
ninar i
Nokkur
sýnishorn
af vinnu
Argusar á
10 ára
starfsferli.
Kunn
merki og
auglýsing-
ar sem
stofan
hefur
hannað.
\Vis1 liú hv,ir Hn börn eruí
FV 12 1977 59