Frjáls verslun - 01.12.1977, Blaðsíða 20
Creinar og wlðlBI
Opinber stjórnsýsla:
Nefndakóngar í krónum
taldir
Skrá yfir þá sem fengu greiddar 300 þúsund krónur eða meira
fyrir nefndastörf á vegum ríkisins ■ fyrra
Mjög eru nefndastörfin misjöfn að vöxtum og verðmætum. Fjöldi manna starfar í nefndum án
þess að fá nokkra þóknun fyrir, aðrir starfa í nefndum, þar sem litlar þóknanir er,u greiddar fyrir
störf og enn aðrir í nefndum, þar sem þóknunin er veruleg upphæð. Loks er fjöldi manna, sem
starfar í mörgum nefndum, sumum launalausum, öðrum launalitlum og sumir sitja einnig í
nefndum, þar sem launin eru talsverð upphæð. Frjáls verzlun hefur látið taka saman lista yfir
þá, sem fengu greiddar 300 þúsund krónur eða meira fyrir nefndarstörf á vegum ríkisins 1976.
Guðmundur Skaftason, hrl.,
er ótvíræður nefndakóngur árs-
ins 1976, en fyrir nefndarstörf
sin fékk hann greiddar 2.331.117
krónur; formaður kjaranefndar
v/BSRB, formaður kjaradóms,
formaður skattanefndar og
formaður kauplagsnefndar.
Loks var Guðmundur formað-
ur ríkisskattanefndar og fékk
sem slíkur 1.059.667 krónur í
laun.
Jón Sigurðsson, hagrann-
sóknastjóri, fékk greiddar
1.435.577 krónur fyrir nefnda-
störf þetta árið (samstarfs-
nefnd um háskólamálefni, for-
maður sjóðanefndar, sáttasemj-
ari, kjaranefnd v/BSRB og
Kjaradómur).
Guðlaugur Þorvaldsson, há-
skólarektor, fylgir fast á hæla
Jóns með 1.310.177 krónur fyr-
ir sín nefndarstörf, en þess skal
getið að Guðlaugur, sem aðrir,
er hér skipa efstu sæti, sat og
í ólaunuðum nefndum, en þókn-
un fékk háskólarektor fyrir
stjórn happdrættis Háskóla ís-
lands, samstarfsnefnd um há-
skólamálefni, byggingamefnd
Þjóðarbókhlöðu, formennsku í
nefnd um kjör mjólkurfræð-
inga, sáttasemjarastörf, ríkis-
skattanefnd og formennsku í
stjórn lífeyrissjóðs bænda.
NORDAL í FJÓRÐA
SÆTI
Jóhannes Nordal, seðlabanka-
stjóri fékk þóknun fyrir störf
sem formaður Landsvirkjunar,
formaður stjórnar iðnþróunar-
sjóðs og sem formaður viðræðu-
nefndar um orkufrekan iðnað;
samtals 1.263.921 krónu.
Egill Sigurgeirsson, hrl., fékk
1.059.640 krónur í þóknun fyr-
ir formennsku matsnefndar
eignarnámsbóta.
Torfi Ásgeirsson, deildar-
stjóri, fékíc 1.004.330 krónur í
þóknun fyrir eftirtalin nefndar-
störf; yfirstjóm mannvirkja-
gerðar á Landspítalalóðinni,
samstarfsnefnd um háskólamál-
efni ,nefnd um stofnkostnað
skóla, formennsku nefndar til
að semja drög að frumvarpi til
nýrra laga um námslán og
námsstyrki, verðlagsnefnd land-
búnaðarafurða og yfirfasteigna-
matsnefnd.
Næstur milljóninni neðan frá
kom Olafur Björnsson, prófess-
or, með 967.442 krónur í þókn-
ur fyrir formennsku í stjórn
námsbrautar í almennum þjóð-
félagsfræðum við Háskóla ís-
lands, formennsku í stjórn
stofnunarinnar aðstoð íslands
við þróunarlöndin, kjaranefnd
v/BHM, formennsku í stjórn
lífeyrissjóðs sjómanna, og for-
mennsku í bankaráði Útvegs-
banka íslands.
Gunnar Guðbjartsson, for-
maður Stéttarsambands bænda,
i’ékk 929.245 krónur í þóknun
fyrir; bankaráð Búnaðarbanka
íslands, stjórn Áburðarverk-
smiðjunnar, verðlagsnefnd
landbúnaðarafurða, stjóm fram-
leiðslusjóðs landbúnaðarins,
landbúnaðaráætlunarnefnd,
bjargráðasjóðsstjórn og stjórn
lífeyrissjóðs bænda.
Baldur Möller, ráðuneytis-
stjóri, fékk í þóknun greiddar
917.279 krónur fyrir kjara-
nefnd v/BHM, formennsku í
happdrættisráði vöruhapp-
drætti SÍBS og samninganefnd
ríkisins í kjaramálum.
20
FV 12 1977