Frjáls verslun - 01.12.1977, Blaðsíða 18
Á árinu 1976 eignuðust ium 6000 Norðurlandabúar sovéskan
Lada-bíl.
ar. í sameiningu eru reist fyrir-
tæki og unnið að lausn tækni-
legra og vísindalegra verkefna.
AUKNING í VIÐSKIPTUM
VIÐ DANI
Sovésk-sænska samstarfs-
nefndin kemur saman árlega til
að ræða helstu vandamál efna-
hagstengsla landanna tveggja.
Nefndin er starfrækt á miili-
ríkjagrundvelli og hefur gert
mikið til að þróa samstarf Sví-
þjcðar og Sovétríkjanna á sviði
efnahagsmála, tækni og vísinda.
Á undanförnum árum hafa
viðskiptin við Danmörku auk-
ist stórlega. Á árinu 1977 nem-
ur viðskiptajöfnuðurinn 200
miljónum rúblna, miðað við út-
kcmuna af fyrstu 10 mánuðum
ársins.
Árið 1977 tók til starfa sov-
ésk-danskur starfshópur um
samstarf á sviði efnahagsmála
og iðnaðar. Fyrsta verkefni
hans er að vinna að þróunar-
áætlun til langs tíma um slíkt
samstarf milli Sovétríkjanna og
Danmerkur.
Efnahagssamstarf Sovétríkj-
anna og Noregs færist einnig í
aul^ana. Á undanförnum árum
liafa orðið umtalsverðar breyt-
ingar á uppbyggingu viðskipt-
anna. Áður var mest um að
ræða viðskipti með hráefni á
báða bóga, en nú fer æ meira
fyrir; verslun með vélar og sam-
göngutæki.
TÍUNDI HVER BÍLL
SOVÉSKUR
Ágæt þróun hefur orðið í við-
skiptum SSSR og fslands.
Fyrstu 9 mánuði ársins 1977
nam viðskiptajöfnuðurinn yfir
50 miljónum rúblna. Um þess-
ar mundir er hlutur Sovétríkj-
anna í heildarútflutningi fslend-
inga u.þ.b. 10%. Sovétmenn sjá
íslendingum fyrir nær öllum
þeim olíuvörum sem þeir þurfa,
og tíundi hver bíll á íslandi er
sovéskur. Sovétmenn eru
stærstu kaupendur freðfisks og
saltsíldar frá íslandi og sama
er að segja um fisklagmeti,
málningu og ullarvörur.
Á nýbyrjuðu ári fást tölfræð-
ingar enn við að draga ályktan-
ir af árangri ársins sem liðið
er, en þó er þegar hægt að full-
yrða að í heild hafi tengsl Sov-
étríkjanna við Norðurlönd stig-
ið enn eitt skref fram á við.
Samkvæmt upplýsingum um
fyrstu þrjá ársfjórðunga árs-
ins 1977 var viðskiptajöfnuður-
inn við Svíþjóð, Danmörku,
Noreg og ísland 10% hærri en
á sama tíma árið 1976. Þarna
er um að ræða aukningu, bæði
á útflutningi á sovéskum vör-
um til þessara landa og inn-
flutningi á vörum frá Norður-
löndum.
Um leið ber að geta þess, að
nú er þróunarhraði viðskipta
SSSR við Norðurlönd minni en
hann var í upphafi áttunda ára-
tugsins. Skýringin er ekki að-
eins fólgin í þeim efnahagserf-
iðleikum sem þessi lönd eiga
nú við að glíma, heldur einnig
í því að verðhækkanir á hrá-
efnamarkaðinum eru ekki eins
miklar og þær voru á árunum
1973—74.
Möguleikar á auknum við-
skiptum á hefbundnum sviðum
eru nú að miklu leyti þrotnir.
Aukin fjölbreytni er undir því
komin að báðir aðilar kunni að
notfæra sér þær nýju leiðir
sem opnast hafa á undanförn-
um árum til samstarfs á sviði
efnahagsmála og iðnaðar.
Markaðsþáttur FRJÁLSRAR VERSLUNAR kynnir vörur og vörumerki.
Birtir ítarlegar, áreiðanlegar og tæknilegar upplýsingar, sem gefa kaupend.um
meiri valkosti.
Markaðsbáttur FRJÁLSRAR VERSLUNAR — ný aðferð, sem skilar árangri.
FRJÁLS VERZLUN — kynningardeild — Ármúla 18.
18
FV 12 1977