Frjáls verslun - 01.12.1977, Page 50
Fyrirtaeki, framleiðsla
IVIjólkursamsalan í Reykjavík:
Dreifir mjólk frá Lómagnúpi
að Þorskafirði
Viöhorf breytast við aö hætta smásölu
I hópi stærstu iðnfyrirtækja í Reykjavík er Mjólkursamsalan. A síðasta ári velti fyrirtækið um 4
milljörðum króna, sem skiptist \>annig á milli deilda fyrirtækisins, að velta Mjólkurstöðvarinnar í
Reykjavík nam 2,7 milljörðum, ísgerðar 170 milljónum, brauðgerðar 170 milljónum og Mjólkursam-
lagsins í Búðardal 300 milljónum. Það sem eftir er skiptist á milli mjólkurbúða samsölunnar, tré-
smíðaverkstæðis og bílaverkstæðis. Mjólkurbúðirnar hafa nú allar verið lagðar niður, nema ein,
sem er í Mjólkurstöðinni í Reykjavík.
Mjólkur-
neysla ft r
minnkandi.
Var hún
8% minni
í janúar -
september------------------------------„
í ár en á sama tíma 1976 á svæði Mjóíkursamsölunnar.
Verulegar breytingar hafa
orðið á rekstri Mjólkursamsöl-
unnar á þessu ári, eftir að ný
lög voru sett, þess efnis, að loka
skyldi mjólkurbúðum fyrirtæk-
isins 1. febrúar, 1977, og Mjólk-
ursamsalan framvegis eingöngu
sjá um heildsöludreifingu.
FLEIRI ÚTSÖLUSTAÐIR
EFTIR BREYTINGAR Á
MJÓLKURDREIFINGU
Framkvæmdastjóri Mjólkur-
samsölunnar, Guðlaugur Björg-
vinsson, segir að ein af breyt-
ingunum sé sú, að útsölustöðum
hafi fjölgað í Reykjavík. Þeir
voru áður 85, en eru nú komnir
yfir hundrað. Hann segir að
þetta auki nokkuð vinnu við
dreifingu auk þess sem stund-
um sé erfiðara að koma mjólk-
inni í verslanirnar, sem ekki
eru sérstaklega hannaðar með
mjólkurdreifingu í huga, eins
og mjólkurbúðirnar voru.
Áður fór ís og brauð aðallega
í eigin búðir og kom þá greiðsla
í peningum dag frá degi. Núna
verður að lána þessar vörur að
verulegu leyti og er það gert
með mánaðarúttekt. Greiðslu
fyrir mjólk, skyr jógúrt, rjóma
og kókómjólk, er hagað þannig,
að greitt er daglega. Vikusalan
er áætluð og einn fimmti þeirr-
ar upphæðar greiddur daglega
og lokauppgjör að vikunni lok-
inni.
Guðlaugur segir: „Fyrst í
stað komu upp ýmis vandkvæði,
sem öllum var hægt að leysa úr.
Það tekur alltaf nokkurn tíma
að venjast nýrri vörutegund, en
ekki verður annað sagt en að
þessi breyting hafi gengið vel“.
ÁRÓÐUR OG MINNKANDI
MJÓLKURNEYSLA
Neysla á mjólk hefur farið
minnkandi að undanförnu. í
ágúst 1977 var neysla 4,7%
minni en í sama mánuði í fyrra
og í mánuðunum janúar til sept-
ember 1977 minnkaði mjólkur-
neysla á dreifingarsvæði Mjólk-
50
FV 12 1977