Frjáls verslun - 01.10.1985, Síða 11
í FRÉTTUM
Ríkið af I hirðir 2.f lesínkau >60 milljónir ipendum
I október sl. hækkaði
bensínverð enn einu
sinni. Aö þessu sinni
komst þó rækilega til
skila að hækkunin staf-
aöi einvörðungu af auk-
inni skattheimtu ríkis-
ins, en ekki vegna
hækkunar til olíufélag-
anna.
Hlutur olíufélaganna í
útsöluverði hvers lítra
er aðeins um 10%, eða
3,44 krónur. Þessi upp-
hæð á að nægja til að
stranda straum af inn-
flutningi, rýrnun, fjár-
magnskostnaði, öllum
rekstri, dreifingu og af-
hendingu vörunnar.
Ríkið fær aftur á móti
um 21,29 krónur eða
tæpt 61% í tolla, vega-
skatt og söluskatt. Aðrir
liðir eru innflutnings-
verð um 24%, verðjöfn-
unargjald 2% og inn-
kaupajöfnunargjald
3%.
Fróðlegt er að reikna
út hversu háar upphæð-
ir ríkið innheimtir þann-
ig í formi skatta af bens-
ínsölu. Áriö 1984 seld-
ust um 95 þúsund tonn
af bensíni á íslandi. Sé
gert ráð fyrir sömu sölu
1985 þýðir það að mið-
að við núverandi álögur
fær ríkið 2.660 milljónir
króna í ríkiskassann á
ársgrundvelli.
í fjárlögum fyrir árið
1986 er gert ráö fyrir
um 2.000 milljónum
króna til vegamála.
Skattur á bensín miðað
við núverandi álögur er
hins vegar 2.660 mill-
jónir eins og áöur sagöi.
Það má því glöggt sjá á
þessum tölum hversu
griðarleg skattheimta
ríkisins er á ári. Framan-
greindar upplýsingar
eru fengnar hjá Olíufé-
laginu Skeljungi.
Neytendaverð hækkar
ekkiíEBE
Á dögunum gerðist
það í fyrsta sinn í sög-
unni, að neytendaverð
hækkaði ekkert milli
mánaða í löndum EBE,
Efnahagsbandalags
Evrópu. Þetta geröist
milli mánaðanna júlí og
ágúst.
Tölur frá hagskýrslum
sýna, aö veröbólgan í
löndum EBE á tímabil-
inu ágúst 1984 til ágúst
1985 er komin niöur í
um 5,5%. Ef litið er á
einstök lönd í ágúst-
mánuði þá lækkuöu
neytendaverð í Dan-
mörku, Vestur-Þýzka-
landi og Luxemborg um
0,3%, í Danmörku um
0,4%. í Hollandi og
Belgíu var stöðugt verð-
lag og síðan var um
0,1% hækkun í Frakk-
landi, um 0,2% hækkun
á Ítalíu og í Bretlandi og
Grikklandi hækkaði
neytendaverö um 0,3%.
Ef litiö er á síðustu
tólf mánuði kemur í Ijós,
að Vestur-Þjóðverjar
standa best að vígi, þar
hækkaði neytendaverð
á einu ári aðeins um
2,1%. Verðbólgan í
Hollandi var um 2,3%,
um 4,1% í Danmörku, í
Luxemborg um 4%, í
Belgíu um 4,5%, í ír-
landi um 5,5%, í Frakk-
landi um 5,6% og i Bret-
landi hækkaði neyt-
endaverð um 6,2% á
einu ári. Á Ítaiíu var
hækkunin um 9,1% og
um 17,8% í Grikklandi.
ísraelsmenn
vilja viðskipti
við íslendinga
ísraelsmenn hafa sýnt
áhuga á auknum við-
skiptum við íslendinga.
Hafa þeir í því sambandi
haft samband bæði við
Viðskiptaráðuneytið og
Ver zlunarráð íslands.
Samkvæmt upplýsing-
um Frjálsrar verzlunar
liggja nú ýmis gögn
varöandi hugsanleg
viðskipti frammi hjá
Verzlunarráði íslands,
sem gefur nánari upp-
lýsingar. Má t.d. finna
ýmsan fróöleik í bóka-
safni ráösins.
11