Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1985, Side 74

Frjáls verslun - 01.10.1985, Side 74
í NÝJUM STÖÐUM Fiskvinnslan á eftir að standa fyrir sínu í náinni framtíð sem fyrr — segir Friðrik Pálsson, nýráðinn forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna FRIÐRIK Pálsson, sem veriö hefur framkvæmdastjóri Sölu- sambands íslenskra fiskfram- leiöenda, SÍF, hefur veriö ráöinn forstjóri Sölumiöstöövar hraö- frystihúsanna, SH og tekur hann viö því starfi nú um þessi ára- mót. Friörik Pálsson er viðskipta- fræöingur aö mennt og útskrif- aöist hann frá Háskóla íslands áriö 1974. Hann er kvæntur Ólöfu Pétursdóttur lögfræöingi. Frjáls verslun ræddi viö Friö- rik um hiö nýja starf, en óhætt er aö segja aö starf forstjóra SH er eitt af ábyrgöarmestu störfum i íslensku þjóöfélagi. Friörik var aö því spurður hvað oröiö hafi til þess að hann hafi ákveðið að skipta um starf. SKIL VIÐ SÍF MEÐ SÖKNUÐI „Ég er þeirrar skoðunar að menn eigi ekki að staldra við of lengi i sama starfi og þegar mér bauðst starf forstjóra SH, þá fannst mér skynsemin segja að ég ætti aö þiggja það góða boð. Ég hef starfað hjá SÍF í 12 ár og auðvitað mun ég skilja við það fyrirtæki með söknuði. Ég tel að það sé öllum hollt að skipta um starf og það er ekki sist hollt fyr- irtækjunum að fá nýtt blóð inn í starfsemina," sagði Friðrik. — Nú ferö þú úr starfi þar sem aðalverkefniö er sala á fiski og segja má að það sama sé aöal- verkefni forstjóra SH. Er í raun mikill munur á þessum störfum? „Ég tel að þessi störf séu tölu- vert frábrugöin hvort öðru. Starf forstjóra SH er töluvert meira að umfangi. Breytingin verður einnig mikil hvað varðar samskipti við markaði. Það er allt annar mark- aður þar sem saltfiskur er seldur á en freðfiskur og i raun eru þetta ólik menningarsvæöi. Hins vegar eru framleiðendurnir þeir sömu að miklu leyti og mér finnst það mjög ánægjulegt að geta haldið samstarfi við stóran hluta af min- um mönnum áfram, enda þótt á nýjum vettvangi sé. Hvað aðra þætti varðar sem frábrugðnir gætu veriö, þá á ég von á þvi að hjá SH fari meiri timi hjá mér i stjórnunarstörf, en hér hjá SIF hef ég tekið mikinn þátt i sölunni. Ég á von á því að bein afskipti af sölu minnki hjá mér i hinu nýja starfi," sagði Friðrik. 74
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.