Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1993, Blaðsíða 40

Frjáls verslun - 01.07.1993, Blaðsíða 40
STJÓRNUN HLIfTVERK STJÓRNfl I' HLUTAFÉLÖGUM Greinarhöfundur, Halldór Friðrik Þorsteinsson, útskrifaðist úr Viðskipúa- og hagfræðideild Háskóla íslands í vor. Kandídatsritgerð hans var um hlutverk stjórna í hlutafélögum og skrifuð undir handleiðslu Árna Vilhjálmssonar prófessors. Halldór gerði nákvæma könnun á starfsháttum íslenskra hlutafélaga. Valin voru 20 fyrirtæki af handahópi úr hópi 150 stærstu hlutafélaga landsins sem birtust á lista Frjálsrar verslunar ífyrra. Alls tók hann viðtöl við 32 einstaklinga, (stjórnarmenn og forstjóra) og ræddu þeir málin umbúðalaust þar sem þeir vissu að þeir kæmu ekki fram undir nafni. Einhverra hluta vegna hafa stjórnir hlutafélaga fyllt flokk þeirra fyrirbæra sem oft og tíð- um er talað um í niðrandi tón. Menn segja eitthvað á þá leið að almennt séu stjórnir óvirkar, þeim hefur verið líkt við kaffi- klúbba þar sem menn komi sam- an til að rabba um daginn og veg- inn. Meðlætið skipti mestu máli. STJÓRN Á AÐ VERA TÆKITIL GÓÐRA VERKA - EKKITÁLMI Á undanfömum tveimur áratugum hefur á erlendum vettvangi farið mik- ið fyrir umræðu um hlutverk stjórna og hvernig megi virkja þær til góðra verka. Menn deila ekki lengur um hvort stjómir geti látið gott af sér leiða, heldur hvernig þær nái því eftir- sótta markmiði. Spurningin er ein- faldlega þessi: Með hvaða hætti geta stjómir lagt sitt af mörkum til far- sældar fyrirtækja? Hvernig geta þær gegnt uppbyggilegu hlutverki? Meginmarkmiðið hlýtur hinsvegar alltaf að vera það sama: Að ná því besta mögulega út úr stjórnum. Stjóm á að vera tæki til góðra verka en ekki tálmi. Heilmikill akkur getur verið í góðum stjómum. Betur sjá augu en auga. ÁBYRGÐ UMFRAM LÖG Lagaleg ábyrgð stjórnarmanna liggur fyrir í lögum, hún er skjalfest og í aðalatriðum skýr. En er eitthvað það til sem gæti heitið ábyrgð umfram lög, ábyrgð sem er af öðrum toga en lagalegum? Það skulum við rétt vona. Þó svo að lög séu góð og gild þá verð- ur lagasetning, til allrar guðs lifandi lukku, aldrei annað en mjög ófullkom- inn leiðarvísir um tilhlýðilega breytni manna. Tilgangur lagasetningar get- ur vart verið sá að njörfa niður í smæstu atriðum fyrirframákveðna hegðun manna, slíkt yrði óskapnaður. Yfírleitt eru viðhorfin á þá lund að mönnum er í nöp við of mikla og ná- kvæma lagasetningu. Það að planta linnulaust niður lögum og reglugerð- um sé hamlandi heilbrigðu sjálfræði manna. Aldrei sé greiðfært í gegnum frumskóga. Á vissan hátt má segja að lögin kalli á siðferðilega ábyrgð manna því þau eru um margt opin. Þannig segir t.d. í 52. grein hlutafélagalaga að stjómin skuli annast að skipulag og starfsemi félagsins sé jafnan í réttu og góðu horfi. Hvað er rétt og gott horf? Það er áhorfsmál. Og hversu langt eiga menn að ganga fram í að uppfylla þessa skyldu sem lögin leggja mönn- I„Þetta leiðir hugann að frægri setningu Parkinsons þess efnis að í hópstarfi hafi of mikill fjöldi þátttakenda lamandi áhrif á afköst heildarinnar. Rannsóknir hans bentu til þess að þegar fjöldi fólks í hópi sé á bilinu 19-22, þá taki að myndast minni hópur innan heildarinnar sem taki að sér hlutverk hennar.“ 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.